Ragnar Þór: Allir vissu en ekk­ert var aðhafst fyrr en málið komst í fjöl­miðla

Formaður VR segir að íslenskt sam­fé­lag sé „óþol­andi með­virkt“ og að oft sé horft fram­hjá alvar­legum málum ef þau kom­ast ekki í almenna umræðu eða fara á for­síðu frétta­miðla.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR segir í sam­tali við Kjarnann að líf­eyr­is­sjóðir virð­ist ekki hafa mik­inn hvata til að leita réttar síns ef grunur leikur á brot­legri eða sið­lausri hátt­semi stjórn­enda fyr­ir­tækja sem þeir fjár­festa í, þrátt fyrir fag­ur­gala um sið­ferð­is­við­mið og alþjóð­leg sam­fé­lags­leg við­mið.

Kjarninn leit­aði álits Ragnars Þórs vegna umfjöll­unar mið­ils­ins um ásak­anir ungrar konu á hendur þriggja valda­manna í íslensku við­skipta­lífi. Einn þeirra, Þórður Már Jóhann­es­son, var stjórn­ar­for­maður Festi þangað til í dag og eru stærstu eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins líf­eyr­is­sjóðir. Fram kom í umfjöllun Kjarnans að stjórn Festi hefði vitað af mál­inu í dágóðan tíma og líf­eyr­is­sjóð­irnir í margar vikur.

Vísar hann í þessu sam­bandi í við­mið umhverf­is­legra og félags­legra þátta og stjórn­ar­hátta (UFS) en það eru við­mið sem fjár­festar nota til að meta fjár­fest­ingar út frá aðferða­fræði ábyrgra fjár­fest­inga. Félags­leg við­mið snúa að því hvernig fyr­ir­tæki kemur fram við starfs­fólk sitt, birgja, við­skipta­vini og sam­fé­lagið sem það starfar í. Ragnar Þór segir að slík við­mið séu auð­vitað orðin tóm ef ekki er farið eftir þeim þegar á reynir.

Enn langt í land að eitthvað breytist

[links]Nefnir Ragnar Þór einnig að fjöldi saka­mála sem líf­eyr­is­sjóðir fóru í eftir hrun beri vott um að meiri hvati sé til þögg­unar en skoð­unar. „Samanber Mílu-málið, Bakka­varar-málið, förgun skipa hjá Eimskip og fjölda ann­arra mála þá hefur lítið heyrst í stjórnum líf­eyr­is­sjóð­anna, bara hreint ekki neitt. Þrátt fyrir kröfu almenn­ings um við­brögð.“

Hann telur hins vegar að umræða um hversu virkir og óvirkir eig­endur líf­eyr­is­sjóðir eiga að vera í fyr­ir­tækjum sé að aukast og margt jákvætt verið að ger­ast, sér­stak­lega hjá þeirra sjóði LIVE. „En það er enn langt í land að eitt­hvað raun­veru­lega breyt­ist.“

Snýst um að komast upp með að gera það sem þeim sýnist

Ragnar Þór segir enn fremur að með­virknin eigi sér fleiri birt­ing­ar­myndir. „Við stingum höfð­inu í sand­inn fyrir óeðli­legum hags­muna­tengslum stjórn­mála­manna, tengslum þeirra við skatta­skjól eða stór­fyr­ir­tæki á meðan kollegar þeirra í Skand­in­avíu segja af sér fyrir að hafa notað vit­laust kort í strætó.

Fjölmörg dæmi eru um að við­skipta­blokkir í miklum minni­hluta stjórni fyr­ir­tækjum sem eru að mestu í eigu líf­eyr­is­sjóða. Fyr­ir­tækjum og sjóðum sem stjórnað er af nafn­tog­uðu fólki sem hefur orð á sér fyrir að skeyta engu um sam­fé­lags­leg áhrif gjörða sinna, skeyta engu um almennt sið­ferði eða kröfu um óflekkað mann­orð. Allt snýst um gróð­ann og græðgina. Og ekki síst að kom­ast upp með að gera það sem þeim sýn­ist,“ segir hann.

Oft horft framhjá alvarlegum málum

Varðandi við­talið við kon­una sem um ræðir sem birt­ist í fyrra­dag þá segir Ragnar Þór að málið sé auð­vitað hrika­legt og að átak­an­legt hafi verið að horfa á það. „Við erum óþol­andi með­virkt sam­fé­lag,“ segir hann í þessu sam­bandi.

Hann segir jafn­framt að oft sé horft fram­hjá alvar­legum málum ef þau kom­ast ekki í almenna umræðu eða fara á for­síðu frétta­miðla. „Þetta er ekki ósvipað og afstaða sumra innan KSÍ var á sínum tíma. Að allir vissu en ekk­ert var aðhafst fyrr en málin komust í hámæli fjöl­miðla og urðu óþægi­leg fyrir það fólk. Heilög ritn­ing PR-fólks­ins er að þegja af sér hlut­ina og það virkar best, svona í flestum til­fellum,“ segir hann að lokum.

Hægt er að lesa um við­brögð líf­eyr­is­sjóð­anna við mál­inu í umfjöllun Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár