„Ekkert annað en fordómar“

Lög­reglan hafði afskipti af ungum dreng í annað sinn á tveimur dögum í morgun vegna leitar að stroku­fanga. Móðir hans var með honum í þetta skiptið og segir í sam­tali við Kjarnann að þetta sé ekk­ert annað en áreiti. Hún tók upp atvikið sem um ræðir.

Lögreglu barst ábend­ing í morgun að Gabríel Dou­ane Boama, tví­tugur karl­maður sem strauk úr haldi lög­reglu við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur fyrir tveimur dögum, væri í bak­aríi í Mjódd­inni í Reykja­vík.

Ekki reynd­ist það vera Gabríel heldur 16 ára drengur í fylgd með móður sinni að kaupa bakk­elsi. Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem lög­reglan stöðvar för drengs­ins en í gær hafði hún afskipti af honum í stræt­is­vagni.

[adspot]Lög­regla var í fram­hald­inu harð­lega gagn­rýnd og átti móðir drengs­ins fund með Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra í gær vegna atviks­ins. Móðirin segir í sam­tali við Kjarnann að sonur hennar hafi verið í miklu upp­námi eftir atvikið í gær.

[links]Rík­is­lög­reglu­stjóri sendi frá sér til­kynn­ingu í gær­kvöldi vegna máls­ins en þar segir að um leið og sér­sveit­ar­menn fóru inn í vagn­inn hafi þeir séð að ekki var um að ræða ein­stak­ling­inn sem leitað er að og því hafi þeir yfir­gefið vagn­inn.

Móðir drengs­ins hafði sam­band við rík­is­lög­reglu­stjóra og lýsti áhyggjum af þeirri stöðu sem komin var upp, þar sem ung­menni í minni­hluta­hópi ótt­ist að vera tekin í mis­gripum vegna útlits.

„Í sam­tal­inu komu fram mik­il­vægar áherslur sem rík­is­lög­reglu­stjóri ætlar að bregð­ast við, þ.m.t. sam­tal við sam­fé­lagið um for­dóma,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Maður á Teslu hringdi í lögregluna

Kjarninn hefur undir höndum mynd­band af atvik­inu í morgun þar sem lög­reglu­menn sjást ganga fyrir utan glugg­ann á bak­arí­inu en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans var sér­sveitin einnig fyrir utan. Í mynd­band­inu sést hvernig mæðginin eru sest við borð til að fá sér að borða. Móðirin tekur strax til máls þegar lög­reglu­mað­ur­inn nálg­ast og heyr­ist hún segja: „I knew it!“ eða „ég vissi það.“ Þegar lög­reglu­menn­irnir ganga að henni segir hún: „You can not talk to my child“ eða „þið megið ekki tala við barnið mitt.“

Hún skiptir yfir í íslensku og segir að hún viti af hverju lög­reglan sé komin. „Þetta er ekki hann!“ segir hún við lög­reglu­mann­inn og útskýrir að dreng­ur­inn hennar sé ekki stroku­fang­inn sem leitað er nú að. Sýnilegt er að móð­irin er í upp­námi, enda gerð­ist slík hið sama í gær í strætó, eins og áður segir, þegar lög­reglu­menn og sér­sveit­ar­menn stöðv­uðu vagn­inn til að athuga hvort dreng­ur­inn væri sá sem leitað er að.

Móðirin segir í mynd­band­inu að hún viti að maður á Teslu hafi hringt í lög­regl­una þar sem hún hafi séð bíl­inn snigl­ast í kringum þau á bíla­stæð­inu. Hún segir í sam­tali við Kjarnann að mað­ur­inn á Teslunni hafi beðið fyrir utan þangað til lög­reglan kom.

Hún útskýrir í mynd­band­inu fyrir lög­regl­unni að hún hafi ákveðið að fara í bak­aríið með syni sínum til að róa hann niður eftir atvik gær­dags­ins. „Þetta var mjög erfitt kvöld,“ segir hún við lög­regl­una. „Þegar barnið mitt, 16 ára, þið sendið sér­sveit á hann og eruð komin aftur í dag.“ Hún bendir á í sam­tali við lög­regl­una að hún hafi talað við Sigríði lög­reglu­stjóra í gær og hún seg­ist skilja að lög­reglu­þjón­arnir séu að vinna vinn­una sína en að þetta sé ekki í lagi.

„Þetta er ekk­ert annað en „racial profil­ing“ á 16 ára barn sem ég er að reyna að róa niður vegna atviks gær­dags­ins,“ segir hún við lög­reglu­menn­ina. „Racial profil­ing“ þýðir að lög­reglan beini athygli sinni ein­göngu að fólki af ákveðnum kyn­þætti og frá ákveðnu svæði við rann­sókn mála.

Annar lög­reglu­mað­ur­inn í mynd­band­inu tekur til máls og segir að nú séu þeir komnir, þeir séu rólegir og sjái að ekki sé um stroku­fang­ann að ræða. „Þá erum við bara farin,“ segir hann.

Þarf hún að vera með drengum öllum stundum?

Móðirin spyr á móti hvort sonur hennar geti gengið niður göt­una í friði – þurfi hún alltaf að vera með honum hvert fót­mál? „Ég hélt honum heima í gær,“ segir hún og útskýrir frekar fyrir lög­regl­unni að hann hafi ekki treyst sér í vinn­una í morgun og í stað­inn hafi þau ætlað að eiga stund saman í bak­arí­inu.

Hún spyr jafn­framt hvaða stroku­fangi muni sitja inn á veit­inga­stað til að borða. Annar lög­reglu­mað­ur­inn segir að þeir þurfi að leita af sér allan grun. Móðirin seg­ist styðja þá með það en að það verði að finna lausn á þessu því barnið hennar eigi að geta verið í friði.

Lög­reglu­mað­ur­inn tekur undir það. Hún spyr hvort dreng­ur­inn þurfi að raka af sér hárið til að fá frið. „Hvernig eigum við að leysa þetta?“ spyr hún. „Þetta er áreiti.“

Lög­reglu­mað­ur­inn segir að nú viti þeir að hann sé ekki umræddur stroku­fangi. Móðirin spyr hvort dreng­ur­inn þurfi að ganga í gegnum þetta aftur og aftur. „Þetta er bara ekki í lagi. Þið getið sent óein­kenn­is­klæddan [lög­reglu­mann] þannig að hann verði ekki smeykur við ykkur og ég þarf ekki að vera í þess­ari stöðu að vera „the mad black mom“. Þetta er ekki í lagi.“

Hann segir að það sé vissu­lega betra; að vera með óein­kenn­is­klædda lög­reglu­menn til að sinna þess­ari skyldu. „En akkúrat núna erum við bara þrír lög­reglu­menn á vakt ...“ en móð­irin segir að það sé ekki hennar að leysa það. Hann seg­ist skilja það.

„Ég er núna að sinna barni sem svaf varla í nótt,“ segir hún og lög­reglu­mað­ur­inn segir að honum þyki það mjög leitt. Hún seg­ist hafa viljað sitja með honum í smá næði og spjalla saman um það sem gerð­ist í gær og af hverju hann þurfi ekki að ótt­ast lög­regl­una. „En svo er lög­reglan bara mætt aftur! Þetta eru ekk­ert annað en for­dómar.“

Lög­reglu­mað­ur­inn biður í fram­hald­inu um kenni­tölu drengs­ins og móð­ur­innar. Hún sam­þykkir að gefa þær upp­lýs­ingar í næði en bætir að end­ingu við að þessar aðfarir séu alls ekki í lagi.

Fangi á eigin heimili

Móðirin segir í sam­tali við Kjarnann að atvikið hafi verið nið­ur­lægj­andi. Lög­reglan var hjá þeim í nokkrar mín­útur eftir að mynd­band­inu lauk og segir móð­irin að hún hafi séð ótt­ann í and­liti barns­ins allan tím­ann. „Þetta er ekki í lagi,“ segir hún.

Hún hefur þegar haft sam­band við rík­is­lög­reglu­stjóra en hún krefst breytts verk­lags án tafar þar sem barnið hennar sé nú fangi á eigin heim­ili fyrir glæp sem hann framdi ekki.

Vit­und­ar­vakn­ing hjá lög­regl­unni og sam­fé­lag­inu sé brýn og nauð­syn­leg. Móðirin mun funda á ný með rík­is­lög­reglu­stjóra seinna í dag vegna atviks­ins en mark­miðið er að reyna finna lausn á þessu máli með hag drengs­ins að leið­ar­ljósi.

Dreng­ur­inn er sjálfur með ósk sem hann vill koma á fram­færi: „Ég væri til í að geta stigið út úr mínu eigin húsi og vera með vinum mínum án þess að lög­reglan stoppi mig fyrir það hvernig ég lít út.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár