Ríkislögreglustjóri ætlar að eiga „samtal við samfélagið um fordóma“

Rík­is­lög­reglu­stjóri ætlar að bregð­ast við gagn­rýni á störf lög­reglu vegna leitar að ungum manni sem til­heyrir minni­hluta­hópi, meðal ann­ars með „sam­tali við sam­fé­lagið um for­dóma“. Vara­þing­maður Pírata telur að auka þurfi eft­ir­lit með lög­reglu.

Lögregla hefur leitað Gabríels í rúman sólarhring. Gagnrýni á störf hennar við leitina hefur verið áberandi og hefur ríkislögreglustjóri brugðist við og hvetur til varkárni í samskiptum um málið og önnur mál sem tengjast minnihlutahópum.
Lögregla hefur leitað Gabríels í rúman sól­ar­hring. Gagnrýni á störf hennar við leit­ina hefur verið áber­andi og hefur rík­is­lög­reglu­stjóri brugð­ist við og hvetur til var­kárni í sam­skiptum um málið og önnur mál sem tengj­ast minni­hluta­hópum. Mynd: Bára Huld Beck

Lög­reglan hefur í rúman sól­ar­hring leitað að tví­tugum karl­manni, Gabríel Douane Boama, sem slapp úr haldi lög­reglu við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í gær­kvöldi. Gabríel var í síbrota­gæslu vegna fjölda mála og fór aðal­með­ferð í einu máli hans fram í hér­aðs­dómi í gær og flúði hann lög­reglu þegar verið var að leiða hann úr dóm­sal.

Leit hefur ekki borið árangur en í dag barst lög­reglu ábend­ing um að Gabríel væri í stræt­is­vagni. Það reynd­ist ekki rétt en sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra hafði afskipti af 16 ára ung­lingi, dökkum á hör­und, sem var í vagn­inum. Lögregla hefur verið gagn­rýnd fyrir aðgerðir sínar í dag. Í til­kynn­ingu sem rík­is­lög­reglu­stjóri sendi frá sér í kvöld segir að um leið og sér­sveit­ar­menn fóru inn í vagn­inn hafi þeir séð að ekki var um að ræða ein­stak­ling­inn sem leitað er að og því hafi þeir yfir­gefið vagn­inn.

Móðir drengs­ins hafði sam­band við rík­is­lög­reglu­stjóra og lýsti áhyggjum af þeirri stöðu sem komin var upp, þar sem ung­menni í minni­hluta­hópi ótt­ist að vera tekin í mis­gripum vegna útlits. „Í sam­tal­inu komu fram mik­il­vægar áherslur sem rík­is­lög­reglu­stjóri ætlar að bregð­ast við, þ.m.t. sam­tal við sam­fé­lagið um for­dóma,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þar segir einnig að rík­is­lög­reglu­stjóra þyki leitt að dreng­ur­inn hafi í dag orðið hluti af þessum aðgerðum lög­reglu en ábend­ing barst um að hann væri sá sem var lýst eftir, sjálfur hafði dreng­ur­inn ekk­ert unnið sér til sakar.

Rík­is­lög­reglu­stjóri hvetur til var­kárni í sam­skiptum um málið og önnur mál sem tengj­ast minni­hluta­hópum. „“Fordómar eiga aldrei rétt á sér. Leit að hættu­legu fólki má ekki verða til þess að minni­hluta­hópar í okkar sam­fé­lagi upp­lifi óör­yggi eða ótta við að sam­ferða­fólk þeirra til­kynni það til lög­reglu án til­efnis,“ segir í til­kynn­ingu rík­is­lög­reglu­stjóra, sem var meðal ann­ars deilt á Facebook-síðu emb­ætt­is­ins.

Borið hefur á rasískum ummælum við fréttir af mál­inu, bæði í athuga­semda­kerfum fjöl­miðla og á sam­fé­lags­miðlum. Í til­kynn­ingu rík­is­lög­reglu­stjóra, sem meðal ann­ars er birt á Facebook-síðu rík­is­lög­reglu­stjóra, segir að for­dóma­fullar athuga­semdir verði áfram fjar­lægðar af miðlum lög­regl­unnar um málið og lokað verði fyrir frek­ari athuga­semdir. Ábend­ingum sem tengj­ast mál­inu skulu eftir sem áður ber­ast Lög­regl­unni í síma 112.

Þarf að fara varlega með valdbeitingu til að viðhalda trausti

Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata, telur að störf lög­reglu í mál­inu sýni að það sé frekar við hæfi að auka eft­ir­lit með lög­reglu áður en rann­sókn­ar­heim­ildir hennar verði auknar, eins og lagt er til í frum­varps­drögum dóms­mála­ráð­herra. Í færslu á Facebook bendir hún á að lög­reglan er eina stofn­unin á Íslandi sem hefur heim­ild í lögum til að beita borg­ara ofbeldi.

[links]„Með svo­leiðis heim­ildir í lögum þarf að fara mjög var­lega með vald­beit­ingu til að við­halda trausti og það að vopnuð sér­sveit ásamt tveimur öðrum lög­reglu­bílum taki 16 ára barn úr strætó ein­ungis vegna húð­litar er ekki til þess fallið. Ég get ekki ítrekað hversu hættu­legt þetta er ef þetta eru við­brögð lög­regl­unnar í hvert skipti sem ein­hver af öðrum kyn­þætti er eft­ir­lýstur,“ segir Lenya í færsl­unni.

Hún hefur áður gagn­rýnt frum­varps­drög dóms­mála­ráð­herra um að efla for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir lög­reglu. Með frum­varp­inu eru lagðar til breyt­ingar á lög­reglu­lögum til að að skýra og efla heim­ildir lög­reglu til aðgerða í þágu afbrota­varna, einkum hvað varðar skipu­lagða brota­starf­semi og öryggi rík­is­ins, að því er fram kemur í sam­ráðs­gátt­inni.

Í síð­asta mán­uði deildi hún fast á áform ráð­herra á þingi. „Lög­reglan á að fá auknar heim­ildir til að njósna um fólk og nálg­ast gögnin þeirra, ef að lög­reglan telur mögu­legt að þetta fólk geti hugs­an­lega orðið glæpa­menn í fram­tíð­inn­i,“ sagði Lenya. Að hennar mati þarf lög­regla að sæta öfl­ug­ara eft­ir­liti eigi hún að fá að sinna öfl­ug­ara eft­ir­liti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár