Gagnrýnir að lög­reglan eigi að fá auknar heim­ildir „til að njósna um fólk“

Vara­þing­maður Pírata deilir fast á ný frum­varps­drög dóms­mála­ráð­herra og segir að ef lög­reglan vill sinna öfl­ugra eft­ir­liti þurfi hún sjálf að sæta öfl­ugra eft­ir­liti.

Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata.
Lenya Rún Taha Karim vara­þing­maður Pírata. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Lenya Rún Taha Karim vara­þing­maður Pírata spyr hvort í stað­inn fyrir að efla for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir til að stöðva glæpi, væri „ekki eðli­legra að byggja upp félags­legt stuðn­ings­net og kerfi sem koma í veg fyrir að fólk leið­ist út í glæpi til að byrja með“.

Þetta kom fram í máli hennar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær.

Hóf hún ræðu sína á að segja að á sama tíma og Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra tæki á móti úkra­ínsku flótta­fólki laum­aði hann í sam­ráðs­gátt stjórn­valda frum­varpi til að efla svo­kall­aðar for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir lög­regl­unnar.

„Lög­reglan á að fá auknar heim­ildir til að njósna um fólk og nálg­ast gögnin þeirra, ef að lög­reglan telur mögu­legt að þetta fólk geti hugs­an­lega orðið glæpa­menn í fram­tíð­inni,“ sagði hún.

[adspot]

Fengju heimild til að fylgjast með einstaklingum sem hafa tengsl við skipulagða brotastarfsemi

Með frum­varp­inu eru lagðar til breyt­ingar á lög­reglu­lögum til að að skýra og efla heim­ildir lög­reglu til aðgerða í þágu afbrota­varna, einkum hvað varðar skipu­lagða brota­starf­semi og öryggi rík­is­ins, að því er fram kemur í sam­ráðs­gátt­inni.

Þá segir enn fremur í sam­ráðs­gátt stjórn­valda að frum­varp­inu sé ætlað að skerpa á heim­ildum lög­reglu til að afla upp­lýs­inga og við­hafa eft­ir­lit í því skyni að draga úr brota­starf­semi en núgild­andi heim­ildir byggi öðru fremur á almennum ákvæðum lög­reglu­laga auk ákvæða í sér­lögum. Annars vegar sé mælt fyrir um heim­ild lög­reglu til að afla upp­lýs­inga í þágu afbrot­varna við fram­kvæmd almennra lög­gæslu­starfa og frum­kvæð­is­verk­efna, þar á meðal sam­skipti við upp­ljóstr­ara, eft­ir­lit á almanna­færi og vöktun vef­síðna sem opnar eru almenn­ingi. Hins vegar sé lög­reglu veitt heim­ild til að við­hafa sér­stakt eft­ir­lit með ein­stak­lingum sem hafa tengsl við skipu­lagða brota­starf­semi eða sem af kann að stafa sér­greind hætta fyrir almanna­ör­yggi.

Ráðherrann vill fyrirbyggja að framin séu alvarleg brot og að „lögregla geti gripið fyrr inn í atburðarás“

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir að til­drög þess megi rekja til frum­kvæðis dóms­mála­ráð­herra um að ráð­ast í end­ur­skoðun á ákvæði 15. grein lög­reglu­laga um aðgerðir til að afstýra brotum eða stöðva þau. Markmið end­ur­skoð­un­ar­innar hafi verið að skýra heim­ildir lög­reglu til að grípa til aðgerða í þágu afbrota­varna, einkum hvað varðar afbrot eða athafnir sem raskað geta öryggi borg­ar­anna og rík­is­ins, afbrot sem tengj­ast skipu­lagðri brota­starf­semi og afbrot sem framin eru á net­inu.

„Löggæsla nú á tíðum snýr ekki síður að frum­kvæð­is­vinnu í formi upp­lýs­inga­öfl­unar og grein­ingu upp­lýs­inga. Breytt afbrota­mynstur og útbreiðsla skipu­lagðrar brota­starf­semi á milli landa krefst þess að lög­gæslu­yf­ir­völd geti brugð­ist við og gripið til aðgerða áður en ein­stök brot eru framin. Með frum­varpi þessi er því lögð aukin áhersla á mik­il­vægi þess að lög­regla geti gripið fyrr inn í atburða­rás og þannig fyr­ir­byggt að framin séu alvar­leg afbrot. Við fram­an­greinda end­ur­skoðun var sem endranær gætt að því að stjórn­ar­skrár­varin grund­vall­ar­mann­rétt­indi borg­ar­anna væru virt í hví­vetna,“ segir meðal ann­ars í frum­varps­drögum ráð­herr­ans.

Við hæfi að auka eftirlit með störfum lögreglunnar

Lenya Rún benti á í ræðu sinni á Alþingi í gær að dóms­mála­ráð­herra rök­styddi þessar breyt­ingar sínar með vís­unar til þess hvernig málum er háttað í Noregi og Danmörku. „Mér hefði því þótt við hæfi að hann myndi líka leggja til að auka eft­ir­lit með störfum lög­regl­unnar, í sam­ræmi við það sem tíðkast í Noregi og Danmörku. Því ef lög­reglan vill sinna öfl­ugra eft­ir­liti þarf hún sjálf að sæta öfl­ugra eft­ir­liti,“ sagði hún.

Nefndi hún jafn­framt að á Íslandi væri til staðar nefnd um eftir­lit með lög­reglu sem fengi ekki upp­lýs­ingar um eft­ir­lit lög­reglu með almennum borg­urum nema af lög­reglan upp­lýsti um það sjálf. „Og þegar nefndin kallar eftir gögnum frá lög­reglu þá er hún treg við að afhenda þau, eins og for­maður nefnd­ar­innar lýsti í fjöl­miðlum í fyrra,“ sagði hún og vís­aði í frétt þess efnis.

Frekar byggja upp stuðningsnet sem kæmi í veg fyrir að fólk leiddist úr í glæpi

Lenya Rún sagð­ist sann­færð um að aukið eft­ir­lit með lög­reglu yrði henni til hags­bóta. „Til dæmis myndi aukið aðgengi fjöl­miðla að upp­tökum úr búk­mynda­vélum lög­reglu taka af allan vafa um störf hennar, sem er einmitt einn meg­in­til­gangur mynda­vél­anna að sögn yfir­lög­reglu­þjóns. Núver­andi aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra hefur jafn­framt sagt að mynda­vél­arnar séu gríð­ar­leg rétt­ar­bót fyrir lög­reglu­menn, með upp­tök­unum losni þeir undan til­hæfu­lausum ásök­unum um mis­beit­ingu valds. Ef lög­reglu­menn hafa ekk­ert að fela þurfa þeir ekk­ert að ótt­ast aukið eft­ir­lit, er það nokkuð?

Í stað­inn fyrir að efla for­virkar rann­sókn­ar­heim­ildir til að stöðva glæpi, væri ekki eðli­legra að byggja hér upp félags­legt stuðn­ings­net og kerfi sem koma í veg fyrir að fólk leið­ist út í glæpi til að byrja með? Það er alvöru for­virk aðgerð sem virkar. Við ættum bara að byrja þar,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár