Helgi Seljan búinn að segja upp – RÚV á ekki að þurfa að stilla upp í vörn

Einn þekkt­asti frétta­maður lands­ins, sem hefur hlotið þrenn blaða­manna­verð­laun og fjórum sinnum verið val­inn sjón­varps­maður árs­ins, hefur sagt upp störfum hjá RÚV.

Helgi Seljan, sem hefur starfað hjá frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik hjá RÚV á und­an­förnum árum og þar áður hjá Kast­ljósi, hefur sagt upp störfum.

Helgi hefur verið í leyfi frá störfum um hríð en mun ekki snúa aftur til RÚV, þar sem hann hefur starfað frá árinu 2006, þegar því lýkur.

Stundin til­kynnti skömmu eftir að þessi frétt fór fyrst í loftið að Helgi hefði verið ráð­inn til starfa hjá fjöl­miðl­inum, í hlut­verk rann­sókn­ar­rit­stjóra.

Í stöðu­upp­færslu sem Helgi birti inni lok­uðu vef­svæði starfs­manna RÚV, þar sem hann greindi frá ákvörð­un­inni, segir hann að hún hafi hvorki tekin í skyndi eða af neinni vonsku. „Ég mat það bara sem svo að nú væri rétti tím­inn til að takast á við nýjar áskor­anir á nýjum stað. Ég ætla þó ekki að halda því fram að atburð­ar­rás und­an­far­inna miss­era hafi ekki haft nein áhrif á að ég yfir­leitt fór að velta þessum mögu­leika fyrir mér. Ég skil þó við RÚV sáttur við allt og alla, vit­andi það að öll höfum við lært og munum draga lær­dóm af því sem gengið hefur á.“

Atburð­ar­rásin sem Helgi vísar í er sú sem átt hefur sér stað eftir umfjöllun Kveiks um Sam­herj­a­skölin í nóv­em­ber. Hún hefur meðal ann­ars falist í því að starfs­maður Samherja elti og áreitti Helga mán­uðum saman, „Skæru­liða­deild Samherja“ vann skipu­lega að því að reyna að draga úr trú­verð­ug­leika hans, Samherji kærði hann fyrir siða­nefnd RÚV og ýmis konar aðdrótt­anir voru settar fram gegn honum í þáttum sem Samherji lét fram­leiða og sýna á net­inu. Stefán Eiríks­son, útvarps­stjóri RÚV, sagði í yfir­lýs­ingu sem send var út í mars í fyrra, að Helgi hefði búið við „for­dæma­lausar árásir“ af hálfu Samherja“.

Helgi hefur hlotið fjöl­margar við­ur­kenn­ingar fyrir störf sín, þar á meðal þrenn blaða­manna­verð­laun og fjölda til­nefn­inga, meðal ann­ars fyrir umfjöllun um Sam­herj­a­skjölin, sam­keppn­islaga­brot Mjólk­ur­sam­söl­unnar, ára­tuga­langa brota­sögu kyn­ferð­is­brota­manns og þöggun trú­fé­laga og stofn­ana um þau, umfjöllun um bók­halds­brellur og skatta­snið­göngu stór­iðju­fyr­ir­tækja á Íslandi, lög­brot og aðgerð­ar­leysi eft­ir­lits­stofn­anna í sjáv­ar­út­vegi, mann­rétt­inda­brot gegn geð­sjúkum í íslenskum fang­elsum og brota­starf­semi á íslenskum vinnu­mark­aði.

[adspot]Þá hefur hann fjórum sinnum verið val­inn sjón­varps­maður árs­ins á Eddu­verð­launa­há­tíð­inni, síð­ast í fyrra. Þá völdu les­endur DV Helga mann árs­ins árið 2019.

Flótti fagmanna af RÚV

Helgi segir í stöðu­upp­færslu sinni að hann geri sér grein fyrir því að und­an­farna mán­uði hafi kvarn­ast hressi­lega úr hópi starfs­manna RÚV. Sú stað­reynd geri ákvörðun hans ekki auð­veld­ari. „Að lokum vil ég segja þetta: Rík­is­út­varpið og starfs­fólk þess á ekki að þurfa að stilla upp í vörn. Alls ekki. Rík­is­út­varpið á að sækja á. Innan þess­arar stofn­unar er ótæm­andi bunki af hæfi­leikum, dugn­aði og elju sem skilar sér til fólks á hverjum degi. Og þannig á það að vera áfram. Auk þess að vera fræð­andi og skemmti­legt, á Rík­is­út­varpið líka að vera ögrandi og erfitt. Hlust­endum og áhorf­endum er eng­inn greiði gerður með því að sitja undir kurt­eis­is­hjali við skoð­anir þess og heims­mynd öllum stundum. Þannig hefur það ekki verið og má ekki verða.“

Félagar hans úr Kveik, sem unnu umfjöll­un­ina um Sam­herj­a­skjölin með Helga, þeir Aðal­steinn Kjart­ans­son og Stefán Drengs­son, hættu báðir störfum í fyrra og réðu sig annað. Aðal­steinn sagði í stöðu­upp­færslu sem hann setti á Facebook af þessu til­efni að eftir margra mán­aða umhugsun hafi hann kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að RÚV „sé ekki vinnu­staður fyrir mig eins og stend­ur.“ Annar sam­starfs­fé­lagi þeirra úr Kveik, Lára Ómars­dóttir, hætti störfum í febr­úar í fyrra og réð sig sem sam­skipta­stjóra fjár­fest­inga­fé­lags.

Á meðal ann­arra sem hafa hætt störfum hjá RÚV nýverið eru Rakel Þor­bergs­dóttir, fyrr­ver­andi frétta­stjóri, Sunna Val­gerð­ar­dóttir, sem réð sig til sam­keppn­is­að­ila, Þór­hildur Þor­kels­dóttir, sem réð sig til BHM, Einar Þor­steins­son, einn umsjón­ar­manna Kast­ljóss, og Fanney Birna Jóns­dóttir, sem var annar umsjón­ar­manna Silf­urs­ins um ára­bil.

Aðrir sem hafa horfið á braut eru meðal ann­ars Sigyn Blöndal, sem stýrði margs­konar barna­efni hjá RÚV, íþrótta­f­rétta­mað­ur­inn Haukur Harð­ar­son og Milla Ósk Magn­ús­dóttir, sem gerð­ist aðstoð­ar­maður ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár