Lára Ómars yfirgefur RÚV og gerist samskiptastjóri fjárfestingafélags

Lára Ómars­dóttir frétta­maður hefur verið ráð­inn sam­skipta­stjóri fjár­fest­inga­fé­lags­ins Aztiq Fund. Hún hefur starfað um ára­bil í fjöl­miðlum við bæði fréttir og dag­skrár­gerð.

Lára Ómarsdóttir hefur starfað um árabil við fjölmiðla.
Lára Ómars­dóttir hefur starfað um ára­bil við fjöl­miðla. Mynd: Aðsend

Lára Ómars­dóttir, frétta­maður Rík­is­út­varps­ins, sem að und­an­förnu hefur starfað í frétta­skýr­ing­ar­þætt­inum Kveik, hefur verið ráðin sam­skipta­stjóri fjár­fest­inga­fé­lags­ins Aztiq Fund. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu.

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að Aztiq Fund hafi verið virkur lang­tíma­fjár­festir hér­lendis og erlendis, meðal ann­ars í fast­eignum, lyfja­iðn­aði, heilsu­efl­ingu og menn­ing­arauði. Á vef félags­ins kemur fram að stærstu eignir þess séu í Alvogen, Alvotech og fast­eigna­fé­lag­inu Sæmundi.

Árni Harð­ar­son, aðstoð­ar­for­stjóri Alvogen, sem einnig er stjórn­ar­maður í Aztiq Fund, segir sanna ánægju að fá Láru til starfa.

„Með því stígum við mik­il­vægt skref í þá átt að sam­eina fjár­fest­ingar eig­enda undir einum hatti og skapa þannig öfl­ugt fjár­fest­inga­fé­lag sem mun verða virkur þátt­tak­andi í upp­bygg­ingu atvinnu­lífs og auð­ugs sam­fé­lags á Íslandi. Ég er sann­færður um að víð­tæk reynsla Láru af fjöl­miðlum muni nýt­ast í vit­und­ar­upp­bygg­ingu félags­ins og í sam­skiptum við hag­að­ila,“ er haft eftir Árna í til­kynn­ing­unni.

[adspot]

Þar segir að hlut­verk Láru verði að halda utan um sam­skipti við meðal ann­arra yfir­völd, fjöl­miðla og fjár­festa og byggja upp vit­und á fyr­ir­tæk­inu. „Hún mun einnig taka virkan þátt í að móta stefnu félags­ins til fram­tíðar, en félagið hyggur á frek­ari fjár­fest­ingar hér­lendis og erlendis sem og að stækka fjár­festa­hóp­inn, sem nú þegar sam­anstendur af öfl­ugum íslenskum og erlendum ein­stak­lingum sem og alþjóð­legum fjár­fest­ing­ar­sjóðum,“ segir í til­kynn­ing­unni frá Aztiq Fund.

Lára hefur lengi starfað sem frétta­maður og dag­skrár­gerð­ar­kona bæði í útvarpi og sjón­varpi. Hún lauk B.ed gráðu í íslensku og stærð­fræði árið 2004, en áður starf­aði hún meðal ann­ars sem inn­kaupa­stjóri og sem fram­kvæmda­stjóri knatt­spyrnu­fé­lags. Hún hefur skrifað eina bók, Hagsýni og ham­ingja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár