Aðalsteinn hættur á RÚV og í Kveik – „Ekki vinnustaður fyrir mig eins og stendur“

Einn þeirra sem stóð að gerð umfjöll­unar Kveiks um Sam­herj­a­málið hefur ákveðið að hætta störfum hjá RÚV. Hann segir að RÚV sé „ekki vinnu­staður fyrir mig eins og stendur.“

Aðal­steinn Kjart­ans­son, sem hefur verið lyk­il­maður í teym­inu sem stendur að frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV, er hættur störfum hjá fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu. Hann segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að eftir margra mán­aða umhugsun hafi hann kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að RÚV „sé ekki vinnu­staður fyrir mig eins og stendur.“

Aðal­steinn seg­ist ekki vera að fara í neinu fússi heldur að vand­lega athug­uðu máli. „Löngunin til að gera góðar fréttir er sann­ar­lega enn til staðar og sem betur fer eru fleiri fjöl­miðlar sem geta veitt mér vett­vang til þess.“

[adspot]Heim­ildir Kjarnans herma að Aðal­steinn hafi ráðið sig til starfa á Stund­inni. Síðasta innslag hans fyrir Kveik var birt í gær og fjall­aði um rekstur á einu af tölvu­kerfum íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem er í upp­námi eftir að í ljós kom að þjón­ustu­að­ili þess hefur rukkað sjóð­ina um vinnu sem efa­semdir eru um að stand­ist lög. Í Kveik kom fram að hund­ruð millj­óna króna hafi streymt út úr félagi sem ann­ast rekstur tölvu­kerfis.

Tók þátt í stórum opinberunum

Aðal­steinn var hluti af teymi sem vann Kveiks-þátt um Samherja og við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins í Afríku sem sýndur var í nóv­em­ber 2019. Hann skrif­aði bók­ina „Ekkert að fela“ um málið ásamt Helga Seljan og Stefáni Drengs­syni og þeir hlutu Blaða­manna­verð­laun árs­ins 2019 fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku ásamt Inga Frey Vil­hjálms­syni á Stund­inni fyrir þá umfjöllun.

Áður vann Aðal­steinn meðal ann­ars hjá Reykja­vik Media og var hluti af teym­inu sem opin­ber­aði Panama­skjölin árið 2016.

Aðal­steinn var einn þeirra ell­efu frétta- og dag­skrár­gerð­ar­manna RÚV sem Samherji kærði til siða­nefndar RÚV vegna ummæla á sam­fé­lags­miðlum. Siða­nefndin sýkn­aði tíu úr hópnum í nið­ur­stöðu sinni, þar á meðal Aðal­stein. Helgi Seljan var hins vegar tal­inn hafa brotið gegn siða­reglum með fjórum ummælum. Mikil óánægja hefur verið með þá nið­ur­stöðu hjá starfs­mönnum RÚV og þeir hvatt til þess að siða­regl­urnar verði end­ur­skoð­aðar sem fyrst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár