Löngum dvölum á bráðamóttöku hefur fjölgað hratt

Fjöldi þeirra sjúk­linga sem dvelja tvo daga eða lengur á bráða­deild meira en tvö­fald­að­ist á tveimur árum. „Styttra og styttra er milli álagstoppa og þeir vara lengur og lengur,“ segir for­maður Lækna­fé­lags­ins.

Löngum dvölum á bráðamóttöku hefur fjölgað hratt
Bráða­mót­taka Land­spít­al­ans Heil­brigð­is­starfs­menn hafa talað um neyð­ar­á­stand á deild­inni að und­an­förnu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Álag á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans í Fossvogi er komið langt yfir þol­mörk og dval­ar­dagar sjúk­linga við deild­ina hafa marg­fald­ast á und­an­förnum árum. Á þetta bendir Reynir Arn­gríms­son, for­maður Lækna­fé­lags Íslands, í grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Lækna­fé­lagið hefur varað sótt­varna­lækni, Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins, Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Per­sónu­vernd og Embætti land­læknis við stöð­unni, með til­liti til öryggis sjúk­linga og starfs­manna, per­sónu­verndar, sótt­varna og eld­varna. „Álag á Land­spít­al­ann er komið yfir þol­mörk eins og heyra má af lýs­ingum starfs­fólks og starf­sem­is­tölur stað­festa,“ skrifar Reynir. Þær sýna stig­vax­andi fjölda bráð­veikra sjúk­linga sem þurfa inn­lögn á sjúkra­hús.“

Reynir Arn­gríms­son

Bendir hann á að fjöldi dval­ar­daga þeirra sjúk­linga sem dvelj­ast lengur en tvo daga á deild­inni hafi marg­fald­ast und­an­farin ár og orðið sögu­lega hár undir lok nýlið­ins árs. Þannig voru í nóv­em­ber 2017 aðeins 100 sjúk­lingar sem dvöldu tvo daga eða lengur á deild­inni. Í nóv­em­ber 2018 voru þeir 193 og í nóv­em­ber 2019 voru 250 sjúk­lingar sem dvöldu lengur en í tvo daga. Að sama skapi hefur fjölgað þeim sjúk­lingum sem dvelja enn lengur á deild­inni, það er í þrjá eða fleiri daga.

„Styttra og styttra er milli álagstoppa og þeir vara lengur og lengur,“ skrifar Reynir. „Ef horft er til þró­unar sam­fé­lags­ins, ald­urs og heilsu­fars borg­ar­anna er ekk­ert sem bendir til að aðstreymi sjúk­linga sem þurfa bráða­inn­lögn á með­ferð­ar­deild fari minnk­andi. “

Reynir leggur til að heil­brigð­is­yf­ir­völd reyni að minnka aðflæði á Land­spít­ala með því að veita heil­brigð­is­þjón­ustu víðar en á Land­spít­al­anum. „Einn af hverjum 20 hjúkr­un­ar­fræð­ingum hverfur ótíma­bært úr starfi,“ skrifar hann. „Starfs­að­stæður skipta þar miklu máli. Með því að færa hluta lækn­is­þjón­ustu frá Land­spít­ala til ann­arra veit­enda heil­brigð­is­þjón­ustu myndi skap­ast nýr starfs­vett­vangur með öðrum starfs­að­stæðum sem mögu­lega gæti snúið þeirri þróun við.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár