Vörn Vilhjálms: „Dapur að sjá fólk sem ég taldi vini stinga mig í bakið“

„Ef fólk heldur að það sé auð­velt að semja við Halldór Benjamín og hans fólk þá veður fólk villu vegar,“ segir Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins sem svarar fullum hálsi gagn­rýni for­manns Eflingar á nýjan samn­ing við SA.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinsambands Íslands.
Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­grein­sam­bands Íslands.

„Ég skal fús­lega við­ur­kenna að ég er sorg­mæddur og dapur að sjá fólk sem ég taldi vera góða vini mína stinga mig í bakið með því að segja að ég hafi nán­ast framið „glæp“ með þessum samn­ingi. Samningi sem gildir í rétt rúmt ár með launa­hækk­unum til þeirra sem höllustum fæti standa á íslenskum vinnu­mark­aði, hækk­unum sem ekki eiga sér hlið­stæðu hvað verka­fólk á hinum almenna vinnu­mark­aði varðar.“

Þetta segir Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins. Samn­ing­ur­inn sem náð­ist í gær við Samtök atvinnu­lífs­ins sé „sá lang­besti sem ég hef komið að á mínum 20 árum sem for­ystu­maður í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, hvað verka­fólk á hinum almenna vinnu­mark­aði varðar“. Það sé „stað­reynd sem eng­inn getur and­mælt“.

[adspot]

Vil­hjálmur fer ítar­lega yfir for­sendur hins nýja samn­ings í færslu á Facebook-síðu sinni. Þá svarar hann einnig gagn­rýni for­manns Eflingar sem fram hefur komið í dag.

Sautján af nítján aðild­ar­fé­lögum Starfs­grein­sam­bands­ins und­ir­rit­uðu samn­ing­inn. Tvö aðild­ar­fé­lög, Efling og Verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur, eru ekki aðilar að honum.

[links]Vil­hjálmur segir að hann og Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, séu sam­mála um að lífs­kjara­samn­ing­ur­inn frá árinu 2019 hafi verið mjög góður. Í því ljósi „skil ég ekki þessa gagn­rýni á nýjan samn­ing SGS sem inni­heldur á þessum stutta samn­ings­tíma mun meiri launa­hækk­anir en feng­ust í lífs­kjara­samn­ingnum“.

Þótt Efling hafi ákveðið að standa utan við kjara­við­ræður SGS og SA seg­ist Vil­hjálmur hafa haldið Sólveigu Önnu upp­lýstri um fram­vind­una allan tím­ann.

„Ég veit hins vegar að upp­lýs­ingum var lekið til fjöl­miðla meðan við­ræður okkar voru á við­kvæmu stigi og mark­miðið getur ekki hafa verið annað en að skemma þá vinnu sem við vorum að vinna að og afvega­leiða það sem verið var að semja um,“ skrifar Vil­hjálmur. „Ég veit líka að haft var sam­band við alla­vega tvo for­menn innan SGS og þeir beðnir um að skrifa ekki undir nýjan samn­ing. Hver var til­gang­ur­inn annar en bara að eyði­leggja það sem við vorum að gera.“

Félögin „yfir sig ánægð“

Hann segir það hafa legið fyrir að þau aðild­ar­fé­lög sem skil­uðu umboði til félags­ins hafi verið „yfir sig ánægð með inni­haldið og kom fram á for­manna­fundi að þau hafðu ekki séð svona launa­hækk­anir til handa verka­fólki. Ég sem for­maður samn­inga­nefndar SGS fékk fullt umboð frá öllum um að ganga frá þessum samn­ingi og því kom það á óvart að sjá að annað af þessum aðild­ar­fé­lögum sem haft var sam­band við dró umboð sitt til baka.“

Hann seg­ist virða þá ákvörðun Eflingar að vera ekki með í sam­flot­inu. „Því er það svo sorg­legt hjá aðilum sem kusu að vera ekki í sam­floti að gagn­rýna þá nið­ur­stöðu sem SGS komst að, en að okkar mati er þetta gríð­ar­lega góður samn­ingur sem er fram­leng­ing á lífs­kjara­samn­ingum.“

Áhersla á að ná samningum fljótt

Hvað samn­ing­inn sjálfan varðar segir Vil­hjálmur að „gríð­ar­leg áhersla“ hafi verið lögð á að ná nýjum samn­ingi við Samtök atvinnu­lífs­ins „hratt og vel“ og að launa­hækk­anir þær sem samið var um myndu gilda frá 1. nóv­em­ber í ár, með öðrum orðum nýr samn­ingur myndi taka við af þeim sem var að renna sitt skeið“.

Mat samn­inga­nefndar SGS hafi verið það að lág­tekju­fólk sem er á töxtum „gæti alls ekki beðið eftir launa­hækk­unum til að mæta þeim gríð­ar­legu kostn­að­ar­hækk­unum sem hafa dunið á lág­tekju­fólki sem og öðru launa­fólki“.

[adspot]

Hag­vaxt­ar­auki, sem samið var um í lífs­kjara­samn­ing­unum, er, eins og orðið ber með sér, tengdur hag­vexti. „Núna liggur orðið nokkuð ljóst fyrir að hann mun skila 13.000 kr. hækkun sem átti að koma til útborg­unar 1. maí 2023,“ skrifar Vil­hjálmur.

Það hafi verið „ský­laus krafa Samtaka atvinnu­lífs­ins“ að þessi upp­hæð yrði kostn­að­ar­metin á þeim rökum að um væri að ræða kostn­að­ar­auka fyrir fyr­ir­tækin sem kæmi á árinu 2023. Þessu hafn­aði SGS alger­lega, skrifar Vil­hjálmur, enda búið að semja um þennan hag­vaxt­ar­auka.

Málamiðlanir

Því þurfti að finna mála­miðl­anir og ein leið var að flýta hag­vaxt­ar­auk­anum þannig að hann kæmi fyrr inn til hækk­unar launa. „Um þetta var deilt fram og aftur og SA bauð okkur að flýta honum til 1. mars 2023 en því höfn­uðum við alger­lega og svona gekk þetta lengi. Að síð­ustu buðu þeir okkur að hann kæmi inn 1. jan­úar en við sögðum ef það á að kostn­að­ar­meta hag­vaxt­ar­auk­ann þá verður hann að gildi frá 1. nóv­em­ber 2022 eins og allar launa­hækk­anir. Okkur tókst þetta eftir gríð­ar­leg átök um þennan þátt samn­ings­ins og með því að flýta honum sex mán­uði þá skilar hag­vaxt­ar­auk­inn 78.000 kr. auka­lega þar sem ekki þarf að bíða eftir honum til 1. maí 2023.“ Þetta mun, að sögn Vil­hjálms, skila auka­hækkun sem nemi 5.200 kr. á samn­ings­tím­anum fyrir taxta­fólk og mun hann að auki skila hærri álgas­greiðslum fyrir vakta­vinnu­fólk. „Og munið að hag­vaxt­ar­auk­inn er ekki ein­greiðsla heldur kemur hann ofan á kaup­taxta til fram­búðar.“

Vil­hjálmur segir að sam­kvæmt samn­ingnum fái fólk með fimm ára starfs­reynslu launa­hækkun sem nemi 40 þús­und kr. á mán­uði án hag­vaxt­ar­auka og frá 50.000 kr. upp í 52.000 kr. með flýttum hag­vaxt­ar­auka. „Hvenær hafa svona launa­hækk­anir komið til lág­tekju­fólks, mitt svar er skýrt - aldrei!“

Með gríð­ar­legri vinnu, þar sem allir lögðu hart að sér, hafi tek­ist að ná samn­ingi sem komi „til móts við þær miklu kostn­að­ar­hækk­anir sem dunið hafa á launa­fólki und­an­farið. Það tókst án átaka,“ skrifar Vil­hjálmur.

„Það er einnig mik­il­vægt fyrir alla sem ekki þekkja til kjara­samn­ings­gerðar að stétt­ar­fé­lögin eru ekki að semja við sig sjálf,“ heldur hann áfram. „Við erum með við­semj­anda sem er í þessu til­felli Samtök atvinnu­lífs­ins og ef fólk heldur að það sé auð­velt að semja við Halldór Benjamín og hans fólk þá veður fólk villu vegar.“

Náðu 54 prósent af kröfunni 2019

Hann rifjar upp að krafa VR, Eflingar og Verka­lýðs­fé­lags Akraness í kjara­samn­ingnum 2019 launa­hækkun hafi numið 125.000 kr. launa­hækkun í þriggja ára samn­ingi. Nið­ur­staðan hafi hækk­anir sem námu 90.000 kr. í fjög­urra ára samn­ingi. „Það þýðir að í lífs­kjara­samn­ingnum náðum við 54% af okkar launa­kröfu vegna þess að samn­ing­ur­inn var lengri og upp­hæðin lægri.“

Þetta sé eðli kjara­við­ræðna. Báðir aðilar nái aldrei öllum sínum kröfum. „Það ber að skoða kröfu­gerð Eflingar í ljósi þess­ara stað­reynda, ekki nema fólk telji að allt sem lagt er fram náist í gegn. Slíkt hefur aldrei gerst því þá eru þetta ekki samn­inga­við­ræður.“

Vil­hjálmur segir það eilífð­ar­verk­efni að lag­færa kjör verka­fólks „og í þessum fram­lengda lífs­kjara­samn­ingi var stigið enn eitt skrefið í átt til þess. Og það á svo sann­ar­lega eftir að stíga enn fleiri skref í þeirri lífs­kjara­bar­áttu“.

[adspot]

Samhliða kjara­við­ræð­unum var Starfs­greina­sam­bandið í við­ræðum við stjórn­völd um atriði til að styðja við samn­ing­inn. „Í gær hringdi for­sæt­is­ráð­herra í mig og taldi það skyn­sam­legt að bíða með yfir­lýs­ingu frá stjórn­völdum þar til allri vinnu væri lokið og fleiri lands­sam­bönd hafi klárað sína kjara­samn­inga.

For­sæt­is­ráð­herra full­viss­aði mig um að stjórn­völd muni koma með atriði til að styðja við samn­ing­inn en ég tel mik­il­vægt að því sé komið á fram­færi og þeirri vinnu er ekki lokið og henni verður haldið áfram af öllum lands­sam­böndum innan ASÍ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjaraviðræður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár