Fylgi Samfylkingar eykst og Miðflokkurinn dalar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins í könnun MMR. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eykst lít­il­lega.

Fylgi Samfylkingar eykst og Miðflokkurinn dalar
Logi Már Ein­ars­son Sam­fylk­ingin mælist næst stærsti flokkur lands­ins í könnun MMR.

Sam­fylk­ingin bætir við sig tveimur pró­sentu­stigum í nýrri könnun MMR á fylgi stjórn­mála­flokk­anna. Mælist flokk­ur­inn með 16,8 pró­senta fylgi og yrði næst stærsti flokkur lands­ins. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist sem áður stærstur með 20,3 pró­senta fylgi, nær óbreytt frá síð­ustu mæl­ingu.

Fylgi Mið­flokks­ins dalar hins vegar og mælist 12,9 pró­sent. Mældist flokk­ur­inn með 14,3 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi flokk­anna sem á eftir koma er mjög jafnt. Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð mælist með 11,1 pró­sent, örlitlu meir en í síð­ustu könnun. Píratar mæl­ast með 11 pró­senta fylgi og dala lít­il­lega frá síð­ustu könnun. Þá er fylgi Við­reisnar 10,5 pró­sent og fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins 8,2 pró­sent.

Loks mælist Sós­í­alista­flokkur Íslands með 4,1 pró­sent og Flokkur fólks­ins með 3,5 pró­sent. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist nú 41,2 pró­sent, sam­an­borið við 39 pró­sent í síð­ustu könnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár