Raunvirði ráðstöfunartekna efstu tíundarinnar jókst þrefalt á við aðra í fyrra

BHM segir að kjaragliðnun hafi átt sér stað milli launa­fólks og fjár­magns­eig­enda síð­ast­lið­inn ára­tug. Sú gliðnun jókst til muna í fyrra. Kaup­máttur fjár­magnstekna jókst um 85 pró­sent á tíu árum á meðan að kaup­máttur atvinnu­tekna jókst um 31 pró­sent.

Friðrik Jónsson er formaður BHM.
Friðrik Jónsson er for­maður BHM. Mynd: Bára Huld Beck

Hröð aukn­ing fjár­magnstekna í fyrra gerði það að verkum að ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirrar tíundar lands­manna sem höfðu hæstu tekj­urnar, og hafa helst tekjur af fjár­magni, juk­ust um tólf pró­sent á föstu verð­lagi. Restin af lands­mönnum, 90 pró­sent, juku sínar ráð­stöf­un­ar­tekjur á raun­virði um fjögur pró­sent. Því juk­ust ráð­stöf­un­ar­tekjur, laun að frá­dregnum sköttum og öðrum lög­bundnum gjöldum, efstu tíu pró­sent­anna þrefalt á við aðra þegar þær eru reikn­aðar á föstu verð­lagi.

Þetta kemur fram í umsögn BHM um fjár­laga­frum­varpið sem skilað var inn til fjár­laga­nefndar nýverið.

Þar segir enn­fremur að þessi þróun sé fram­hald af lengri sögu og að fjár­magnstekjur hafi auk­ist um 120 pró­sent að raun­virði á síð­asta ára­tug. „Á sama tíma juk­ust atvinnu­tekjur í íslenska hag­kerf­inu aðeins um 53 pró­sent. Flest bendir til að nokkur kjaragliðnun hafi átt sér stað milli launa­fólks og fjár­magns­eig­enda á ára­tugnum 2011-2021 og hún hafi auk­ist til muna á árunum 2020 og 2021.“

Kaup­máttur með­al­tals fjár­magnstekna hefur auk­ist um 85 pró­sent á sama tíma en um 31 pró­sent í til­felli með­al­tals atvinnu­tekna.

Efsta tíundin tók til sín 81 pró­sent fjár­magnstekna

Fjár­­­­­­­magnstekjur eru þær tekjur sem ein­stak­l­ingar hafa af eignum sín­­­­um. Þær eru til að mynda vext­ir, arð­­­­ur, sölu­hagn­aður eða leig­u­­­­tekjur af lausafé og af útleigu á fast­­­­eign­­­­um. Þeir sem fá mestar fjár­­­­­magnstekjur á Íslandi eru því sá hópur ein­stak­l­inga sem á flest hluta­bréf og flestar fast­­­eign­­­ir. Sá hópur sem hefur sankað að sér flestum eign­­­um.

Sá hópur sem jók fjár­­­magnstekjur sínar mest í fyrra var allra tekju­hæsta tíund lands­­manna. Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­­­tí­und­um, sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á rík­­­­is­­­­stjórn­­­­­­­ar­fundi 22. júní síð­­­­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­­­­sent lands­­­­manna sem höfðu mestar fjár­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­­­­sent allra fjár­­­­­­­magnstekna ein­stak­l­inga á árinu 2021.

[adspot]Alls höfðu ein­stak­l­ingar 181 millj­­­­arð króna í fjár­­­­­­­magnstekjur í fyrra og því liggur fyrir að efsta tíund­in, sem telur nokkur þús­und fjöl­­­­skyld­­­­ur, var með tæp­­­­lega 147 millj­­­­arða króna í fjár­­­­­­­magnstekjur á síð­­­­asta ári. Heild­­­­ar­fjár­­­­­­­magnstekjur ein­stak­l­inga hækk­­­­uðu um 57 pró­­­­sent milli ára, eða alls um 65 millj­­­­arða króna. Mest hækk­­­­­aði sölu­hagn­aður hluta­bréfa sem var 69,5 millj­­­­­arðar króna á árinu 2021.

Girða þurfi fyrir tekjutilflutning

BHM segir í umsögn sinni að það þurfi að auka sann­girni í skatt­kerf­inu. Frá 2019 hafi und­ir­liggj­andi afkoma verið veikt kerf­is­bundið vegna breyt­ingar á tekju­skatti ein­stak­linga, lækk­unar banka­skatts og trygg­inga­gjalds, hækk­unar á frí­tekju­marki fjár­magnstekna og hækk­unar á skatt­frels­is­marki erfða­fjár­skatts. Þá hafi ekki verið vilji hjá stjórn­völdum til að taka á und­ir­liggj­andi afkomu­halla.

Banda­lagið vill einnig girða fyrir tekju­til­flutn­ing milli launa og fjár­magnstekna. „Þegar tekið hefur verið til­lit til skatts á hagnað lög­að­ila og síðan skatts á fjár­magnstekjur er heild­ar­skatt­lagn­ing um 38 pró­sent á móti 46 pró­sent í kerfi tekju­skatts launa. Um leið er ekki greitt trygg­ing­ar­gjald af útgreiddum arði. Þessu þarf að breyta. Hin nor­ræna nálgun um tví­þætt skatt­kerfi með hlut­leysi í skatt­lagn­ingu fjár­magns og vinnu­afls ætti að vera leið­ar­ljós í þessum efnum. Sér­stak­lega í ljósi kjaragliðn­unar milli launa­fólks og fjár­magns­eig­enda.“

[adspot]Í umsögn­inni segir að koma þurfi til móts við heim­ili í vanda vegna hús­næð­is­kostn­aðar með því að hækka stofn­fram­lög til almenna íbúða­kerf­is­ins og beita þarf hús­næð­is­stuðn­ings­kerfum mark­visst til að hjálpa þeim sem búa við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað. Til að slíkur kostn­aður telj­ist íþyngj­andi fyrir fólk þarf það að nota yfir 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í hús­næði. BHM vill líka að almenn heim­ild til skatt­lausrar ráð­stöf­unar sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán verði fram­lengd til 2025, að barna­bætur hætti að vera fátækra­styrkur og að barna­bóta­kerfið nái lengra upp tekju­stig­ann til að koma til móts við ungt og háskóla­menntað fólk með milli­tekjur.

Þá telur BHM að marka þurfi lang­tíma­sýn um fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins og sveit­ar­fé­laga­stigs­ins. „Full­fjár­magna þarf sveit­ar­fé­laga­stigið og sér­stak­lega eftakast á að leið­rétta skakkt verð­mæta­mat kvenna­starfa á íslenskum vinnu­mark­aði.“

Vilja hækka bankaskatt á ný og endurvekja gistináttaskatt

Til að auka tekjur rík­is­sjóðs, og bæta und­ir­liggj­andi afkomu og borga fyrir ofan­greindar aðgerðir, telur BHM meðal ann­ars að draga ætti var­an­lega lækkun banka­skatts til baka og að inn­leiða eigi á ný gistin­átta­skatt. Sér­­stakur skattur á fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki, svo­­kall­aður banka­skatt­­ur, var lækk­­aður árið 2020 úr 0,376 í 0,145 pró­­sent á heild­­ar­skuldir þeirra banka sem skulda yfir 50 millj­­arða króna. Alls borga fimm fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki skatt­inn en þorra hans greiða stóru bank­­arnir þrír: Lands­­bank­inn, Íslands­­­banki og Arion banki. Fyrir vikið lækk­­aði álagður banka­skattur sem rík­­is­­sjóður lagði á bank­ana um 6,1 millj­­arði króna í 4,8 millj­­arðar króna. Það er lækkun upp á 56,2 pró­­sent. Áætlað er að hann verði 5,9 millj­­arðar króna á næsta ári sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu.

Gistin­átta­skattur var fyrst tek­inn upp árið 2012 og hefur þann til­­­gang að afla tekna til að stuðla að upp­­­bygg­ingu, við­haldi og verndun fjöl­­sóttra ferða­­manna­­staða, frið­­lýstra svæða og þjóð­­garða. Skatt­­ur­inn er nú 300 krónur fyrir hverja selda ein­ingu næt­­ur­g­ist­ingar á Íslandi. Áður en kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­inn skall á í upp­­hafi árs 2020 hafði verið gert ráð fyrir því að skatt­­ur­inn skil­aði yfir 1,2 millj­­örðum króna í rík­­is­­sjóð það ár.

En svo kom kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og skatt­­ur­inn var felldur niður tíma­bundið í einum af fyrstu aðgerða­­pökk­unum til þess að mæta efna­hags­­legum áhrifum veirunn­­ar. Skatt­­ur­inn átti hins vegar að taka gildi á ný þann 1. jan­úar 2022. Því var þó frestað til 2024 við fjár­laga­gerð­ina í fyrra.

Þá telur BHM að horfa beri til góðrar afkomu atvinnu­greina, til dæmis í sjáv­ar­út­vegi, bygg­ing­ar­starf­semi og verslun til að bregð­ast við lækk­andi tekjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár