Nýr meirihluti verði klár í slaginn áður en fyrsti borgarstjórnarfundur hefst

Viðræður um myndun meiri­hluta í Reykja­vík hafa staðið yfir í fjóra daga en Sam­fylk­ingin, Fram­sókn­ar­flokkur, Píratar og Viðreisn stefna að því að ljúka þeim áður en fyrsti borg­ar­stjórn­ar­fundur kjör­tíma­bils­ins verður settur þann 7. júní næst­kom­andi.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Einar Þorsteinsson, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Dagur B. Eggertsson funda stíft þessa dagana.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, Einar Þor­steins­son, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir og Dagur B. Egg­erts­son funda stíft þessa dag­ana. Mynd: Bára Huld Beck

Hús­næð­is­mál, sam­göngur og lofts­lags­mál voru á dag­skrá hjá flokk­unum fjórum sem funda nú um myndum meiri­hluta í Reykja­vík, að því er fram kom í fréttum RÚV. Sam­fylk­ingin, Fram­sókn­ar­flokkur, Píratar og Viðreisn freista þess nú að mynda nýjan meiri­hluta í borg­inni og hafa fundað í fjóra daga í Elliða­ár­dal.

„Ég held kannski að fólk hafi fundið það í kosn­inga­bar­átt­unni að flokk­arnir töl­uðu ekki alveg einum rómi í þessu og við­ræð­urnar ganga út á að finna sam­eig­in­lega fleti þannig að við náum þeim krafti sem þarf í þessa upp­bygg­ingu á næstu árum,“ sagði Dagur B. Egg­erts­son odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í sam­tali við frétta­mann RÚV.

Dagur sagði að öll helstu bygg­ing­ar­svæði í borg­inni hefðu verið rædd, Reykja­vík­ur­flug­völlur hefði enn ekki kom­ist á dag­skrá en hann vildi ekk­ert gefa upp um í hvaða málum flokk­arnir væru ósam­mála. Við­ræð­urnar væru hugs­aðar til að útkljá ágrein­ings­efni, þær gangi vel og séu í góðum anda.

Fyrsti fundur nýrrar borg­ar­stjórnar í Reykja­vík er á dag­skrá þannn 7. júní næst­kom­andi og sagði Dagur að sér fynd­ist „góður bragur “ að því að ljúka meiri­hluta­við­ræðum fyrir þann tíma.

Sam­an­lagt eru flokk­arnir fjórir með þrettán borg­ar­full­trúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár