Morgunblaðssamstæðan frestaði greiðslu á launatengdum gjöldum upp á 193 milljónir

Stjórn­völd buðu fyr­ir­tækjum sem eftir því sótt­ust að fresta greiðslu launa­tengdra gjalda vaxta­laust í nokkur ár þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Morg­un­blaðs­sam­stæðan nýtti þetta úrræði og þarf að greiða 193 millj­ónir til baka í rík­is­sjóð til 2026.

Þórsmörk, eig­andi Árvakurs, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla, og dótt­ur­fé­lög þess frest­uðu greiðslu á stað­greiðslu launa starfs­manna og trygg­inga­gjaldi í fyrra upp á alls 192,9 millj­ónir króna. Um er að ræða vaxta­laust lán úr rík­is­sjóði sem þarf að end­ur­greið­ast fyrir mitt ár 2026. Greiðslur eiga að hefj­ast síðar á þessu ári.

Þetta kemur fram í sam­stæðu­reikn­ing Þórs­merkur sem birtur var í árs­reikn­inga­skrá Skatts­ins í gær.

Úrræðið um frestun skatt­greiðslna var ein þeirra efna­hags­legu aðgerða sem rík­is­stjórnin kynnti til leiks fyrir fyr­ir­tæki til að takast á við efna­hags­leg áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Auk þess fékk Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, rúm­lega 81 millj­ónir króna í rekstr­­ar­­styrk úr rík­­is­­sjóði í fyrra.

Leynd yfir því hverjir skipta greiðslum

Þegar rík­­is­­stjórnin kynnti svo fyrsta efna­hag­s­­pakka sinn 21. mars var ein aðgerðin þar sú að fresta mætti þremur gjald­­dögum stað­greiðslu og trygg­ing­­ar­gjalds á tíma­bil­inu 1. apríl til 1. des­em­ber til við­­bótar ef fyr­ir­tæki gæti mætt ákveðnum skil­yrð­­um.

Þegar kom að því að gera upp skuld­ina snemma árs 2021 var ákveðið að veita rýmri frest til að gera það. Í fyrra­vor töldu stjórn­völd svo að það þyrfti að veita þeim aðilum sem þurftu á því að halda vegna rekstr­ar­erf­ið­leika enn frek­ari fresti á því að standa skil á umræddum skatt­greiðsl­um.

Lögin sem heim­ildin til að dreifa þeirri skuld við rík­is­sjóð til árs­ins 2026 byggir á voru sam­þykkt á Alþingi 11. maí 2021. Þau byggja á frum­varpi sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram. Sam­kvæmt þeim gátu þau fyr­ir­tæki sem upp­fylltu ákveðin skil­yrði, sem snúa aðal­lega að því að umsækj­andi sé ekki í van­skilum með önnur opin­ber gjöld, fengið að fresta því í fjögur ár til við­bótar að gera upp upp skuld­ina. Þórsmörk og dótt­ur­fé­lög þess nýttu ekki úrræðið 2020 en gerðu það, líkt og áður sagði, í fyrra til að fresta 192,9 millj­óna króna greiðslu launa­tengdra gjalda.

[adspot]Skatt­ur­inn hefur birt yfir­lit yfir þau fyr­ir­tæki sem hafa verið þiggj­endur ýmissa úrræða sem stjórn­völd hafa boðið upp á vegna kór­ónu­veirunn­ar. Dæmi um það eru þau fyr­ir­tæki sem nýttu sér hluta­bóta­leið­ina, upp­sagn­ar­styrki, við­spyrnu­styrki og tekju­falls­styrki.

Kjarn­inn kall­aði í fyrra­sumar eftir upp­lýs­ingum um hvaða aðilar hefðu sótt um og fengið að fresta greiðslum á stað­greiðslu og trygg­inga­gjaldi í allt að sex ár, vaxta­laust. Þeirri beiðni var hafnað á grund­velli þess að gögnin falli undir sér­staka þagn­ar­skyldu laga um inn­heimtu opin­berra skatta og gjalda. Í svar­inu sagði að starfs­mönnum Skatts­ins bæri að halda þessum upp­lýs­ingum leyndum að við­lagðri refsi­á­byrgð. „Gögnin varða m.a. efna­hag gjald­anda en upp­lýs­ingar um skulda­stöðu falla undir fram­an­greint ákvæði. Þar sem gögnin falla undir sér­staka þagn­ar­skyldu­reglu [...] um inn­heimtu opin­berra skatta og gjalda, taka upp­lýs­inga­lög [...] ekki til þeirra. [...] Með vísan til þessa er beiðni þinni hafnað um að fá afhend fram­an­greind gögn.“

Birtu frétt um hagnað

Í frétt sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í byrjun maí var greint frá því að Þórsmörk hefði verið rekið með 186 milljón króna hagn­aði á síð­asta ári og að tekjur þess hefðu auk­ist um 300 millj­ónir króna á árinu 2021. Ekki var minnst á hið vaxta­lausa lán sem sam­stæðan fékk úr rík­is­sjóði. Þar kom einnig fram að Árvakur hefði skilað 110 millj­óna króna hagn­aði. Árvakur á svo nokkur dótt­ur­fé­lög, meðal ann­ars Lands­prent, sem prentar Morg­un­blaðið og ýmsa aðra prent­miðla lands­ins.

Árs­reikn­ingi Árvakurs hefur verið skilað inn til árs­reikn­inga­skrár. Það gerð­ist á mið­viku­dag. Reikn­ing­ur­inn hefur hins vegar ekki verið gerður aðgengi­legur.

Það er þó árs­reikn­ingur Lands­prents. Í honum kemur fram að prent­smiðjan hagn­að­ist um 195,4 millj­ónir króna í fyrra. Það er meiri hagn­aður en árið áður en rekstr­ar­tekjur dróg­ust þó saman og voru 709,4 millj­ónir króna. Árvakur er á meðal stærstu við­skipta­vina prent­smiðj­unnar og skuldar þessu dótt­ur­fé­lagi sínu háar fjár­hæðir. Á síð­asta ári juk­ust skuldir tengdra aðila við Lands­prent úr 476,5 millj­ónum króna í 730,2 millj­ónir króna. Lands­prent nýtti sér úrræði stjórn­valda um frestum launa­tengdra gjalda og frestaði alls 13,2 millj­óna króna greiðslum.

Stundin greindi frá því í lok sept­em­ber í fyrra að 40 pró­sent verð­hækkun eða meiri væri yfir­vof­andi á dag­blaða­pappír og vitn­aði þar í til­kynn­ingu sem Lands­prent hafði sent við­skipta­vinum sínum en Lands­prent prentar meðal ann­ars Stund­ina.

Í áður­nefndri frétt í Morg­un­blað­inu, þar sem greint var frá rekstr­ar­nið­ur­stöðu Þórs­merkur og Árvakurs, kom einnig fram að annað dótt­ur­fé­lag Árvakurs, Ár og Dagur ehf. hefði keypt hús­næðið sem rit­stjórn­ar­skrif­stofur Árvak­urs eru til húsa í Hádeg­is­móum á tæp­lega 1,6 millj­arð króna af fast­eigna­fé­lag­inu Reg­in.

Sam­nefnt félag, Ár og Dagur ehf., var eitt sinn útgáfu­fé­lag frí­blaðs sem bar nafnið Blað­ið. Árvakur keypti þá útgáfu í tveimur skrefum fyrir banka­hrun og breytti nafni frí­blaðs­ins í 24 Stund­ir. Það blað hætti að koma út í sömu viku og bank­arnir féllu í októ­ber 2008. Núver­andi Ár og Dagur ehf. var hins vegar stofnað 2008. Sam­kvæmt árs­reikn­ingi átti það félag eignir upp á 262 þús­und krón­ur um síð­ustu ára­mót í formi kröfu á tengdan aðila og skuld­aði ekk­ert. Í árs­reikn­ingi Árvak­urs 2020 er félagið sagt ekki vera í rekstri.

Í árs­reikn­ingi Þórs­merkur kemur fram að sam­hliða kaupum Árs og Dags ehf. á skrif­stofu­hús­næð­inu í Hádeg­is­móum hafi „öll banka­lán verið end­ur­fjár­mögnuð og hlutafé aukið.“

Hlutafjáraukning í byrjun árs

Kjarn­inn greindi frá því í mars að hlutafé í Þór­s­­mörk hafi verið aukið um 100 millj­­ónir króna þann 31. jan­úar síð­­ast­lið­inn. Aðilar tengdir Ísfé­lagi Vest­­manna­eyja og félag í eigu Kaup­­fé­lags Skag­­firð­inga greiddu stærstan hluta henn­ar.

[adspot]Þetta var í þriðja sinn frá árinu 2019 sem nýtt hlutafé er sett inn í rekstur fjöl­miðla­­sam­­steypunnar til að mæta tap­­rekstri henn­­ar. Í byrjun árs 2019 var hluta­­féð aukið um 200 millj­­ónir króna. Kaup­­­­fé­lag Skag­­­­firð­inga og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­­sent þeirrar aukn­ing­­ar. Sum­­­arið 2020 var hluta­­féð aukið um 300 millj­­ónir króna og kom allt féð frá þeim eig­enda­hópi sem var þegar til stað­­ar. Að við­bættri þeirri hluta­fjár­­aukn­ingu sem ráð­ist var í í upp­­hafi árs hefur móð­­ur­­fé­lagi Árvak­­urs því verið lagt til 600 millj­­ónir króna á þremur árum.

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstri Árvak­urs í febr­úar 2009 undir hatti Þórs­merkur og til loka árs 2020 hefur útgáfu­­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­­örðum króna. Eig­enda­hóp­­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals tvo millj­­arða króna í nýtt hluta­­fé.

Þegar nýju eig­end­­­urnir tóku við rekstr­inum var Morg­un­­­blað­ið, flagg­­­skip útgáf­unn­­­ar, lesið af rúm­­­lega 40 pró­­­sent þjóð­­­ar­inn­­­ar. Í síð­­­­­ustu birtu mæl­ingu Gallup á lestri prent­miðla var sá lestur kom­inn niður í 18 pró­­­sent og hefur aldrei mælst lægri. Lestur blaðs­ins hjá 18-49 ára mælist 9,1 pró­sent.

Vefur útgáf­unn­­­ar, Mbl.is, var lengi vel mest lesni vefur lands­ins en síð­­­­­ustu mis­­s­eri hefur Vísir.is, vefur í eigu Sýn­­­ar, stöðugt mælst með fleiri not­end­­­ur. Mbl.is hefur þó enn vinn­ing­inn þegar kemur að fjölda flett­inga en miðl­arnir tveir hafa und­an­farið verið með nán­ast sama fjölda inn­lita á viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár