Útgáfufélag Morgunblaðsins skilaði 110 milljóna króna hagnaði í fyrra

Eftir að hafa tapað rúm­lega 2,5 millj­örðum króna á árunum 2009 til 2020 skil­aði Árvakur hagn­aði í fyrra. Sam­stæðan keypti hús­næðið sem starf­semin fer fram í á 1,6 millj­arð króna.

Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins og tengdra miðla, var rek­inn með 110 milljón króna hagn­aði í fyrra, sam­kvæmt frétt sem birt­ist í blað­inu í dag. Þar segir enn fremur að móð­ur­fé­lag Árvakurs, Þórsmörk, hafi verið rekið með 186 milljón króna hagn­aði og að tekjur þess hafi auk­ist um 300 millj­ónir króna, upp í 4,9 millj­arða króna, á síð­asta ári. Árs­reikn­ingur félag­anna tveggja fyrir árið 2021 hefur ekki verið birtur í árs­reikn­inga­skrá Skatts­ins.

Árvakur fékk rúm­lega 81 millj­ónir króna í rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði í fyrra.

Rekstr­­ar­tap félags­­ins árið 2020 var 210,3 millj­­ónir króna þrátt fyrir að það hafi fengið 99,9 millj­ónir króna í rekstr­ar­styrk úr rík­is­sjóði á því ári. Það er aðeins minna rekstr­­ar­tap en árið áður þegar það var 245,3 millj­­ónir króna.

[adspot]Í árs­­reikn­ingi Árvak­­urs fyrir árið 2020 sagði að á því ári hafi verið „unnið að hag­ræð­ing­­ar­að­­gerðum í rekstri félags­­ins til að mæta þeim rekstr­­ar­­vanda sem einka­reknir fjöl­miðlar hér á landi búa við og mun verða haldið áfram á þeirri veg­­ferð til að ná jafn­­vægi í rekstri þess, en hvenær það næst er erfitt að meta með áreið­an­­legum hætti. Það er mat stjórn­­enda félags­­ins að ekki sé vafi á rekstr­­ar­hæfi félags­­ins eins og staða þess er í dag. En gangi áætl­­­anir stjórn­­enda ekki eftir ríkir ákveðin óvissa um rekstr­­ar­hæfi félags­­ins til lengri tíma.“

Í Morg­un­blað­inu í dag er haft eftir Haraldi Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóra Árvakurs og ann­ars rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, að rekst­ur­inn hafi verið að þró­ast í rétta átt und­an­far­in rúm­lega tvö ár eft­ir mjög erfið ár þar á und­an og um­fangs­mikl­ar hag­ræð­ing­arað­gerðir sem nú séu að skila sér í já­kvæðri af­komu.

Keyptu húsnæðið á 1,6 milljarða króna

Í Morg­un­blað­inu í dag segir enn fremur frá því að annað dótt­ur­fé­lag Þórs­merkur, Ár og Dagur ehf. hafi keypt hús­næðið sem rit­stjórn­ar­skrif­stofur Árvakurs eru til húsa í Hádeg­is­móum á tæp­lega 1,6 millj­arð króna af fast­eigna­fé­lag­inu Regin. Dótt­ur­fé­lag Þórs­merkur á einnig prent­smiðju sem er við hlið hús­næð­is­ins.

Samnefnt félag, Ár og Dagur ehf., var eitt sinn útgáfu­fé­lag frí­blaðs sem bar nafnið Blaðið. Árvakur keypti þá útgáfu í tveimur skrefum fyrir banka­hrun og breytti nafni frí­blaðs­ins í 24 Stundir. Það blað hætti að koma út í sömu viku og bank­arnir féllu í októ­ber 2008. Núver­andi Ár og Dagur ehf. var hins vegar stofnað 2008. Samkvæmt árs­reikn­ingi átti það félag eignir upp á 262 þús­und krón­urum síð­ustu ára­mót í formi kröfu á tengdan aðila og skuld­aði ekk­ert. Í árs­reikn­ingi Árvakurs 2020 er félagið sagt ekki vera í rekstri.

Hlutafé aukið í upphafi árs

Kjarninn greindi frá því í mars að hlutafé í Þórs­mörk hafi verið aukið um 100 millj­ónir króna þann 31. jan­úar síð­ast­lið­inn. Aðilar tengdir Ísfé­lagi Vest­manna­eyja og félag í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga greiddu stærstan hluta hennar.

Þetta var í þriðja sinn frá árinu 2019 sem nýtt hlutafé er sett inn í rekstur fjöl­miðla­sam­steypunnar til að mæta tap­rekstri henn­ar. Í byrjun árs 2019 var hluta­féð aukið um 200 millj­ónir króna. Kaup­­­fé­lag Skag­­­firð­inga og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­­sent þeirrar aukn­ing­ar. Sum­arið 2020 var hluta­féð aukið um 300 millj­ónir króna og kom allt féð frá þeim eig­enda­hópi sem var þegar til stað­ar. Að við­bættri þeirri hluta­fjár­aukn­ingu sem ráð­ist var í í upp­hafi árs hefur móð­ur­fé­lagi Árvak­urs því verið lagt til 600 millj­ónir króna á þremur árum.

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstri Árvakurs í febr­úar 2009 undir hatti Þórs­merkur og til loka árs 2020 hefur útgáfu­fé­lagið tapað yfir 2,5 millj­örðum króna. Eig­enda­hóp­ur­inn, sem hefur tekið ein­hverjum breyt­ingum á tíma­bil­inu, hefur nú lagt Árvakri til sam­tals tvo millj­arða króna í nýtt hluta­fé.

Þegar nýju eig­end­­urnir tóku við rekstr­inum var Morg­un­­blað­ið, flagg­­skip útgáf­unn­­ar, lesið af rúm­­lega 40 pró­­sent þjóð­­ar­inn­­ar. Í síð­­­ustu birtu mæl­ingu Gallup á lestri prent­miðla var sá lestur kom­inn niður í 18,3 pró­­sent og hefur aldrei mælst lægri. Lestur blaðs­ins hjá 18-49 ára mælist 10,3 pró­sent.

Vefur útgáf­unn­­ar, Mbl.is, var lengi vel mest lesni vefur lands­ins en síð­­­ustu mis­s­eri hefur Vísir.is, vefur í eigu Sýn­­ar, stöðugt mælst með fleiri not­end­­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár