Stærstu útgáfufyrirtækin fá rúma 81 milljón hvert í fjölmiðlastyrki

Úthlutun fjöl­miðla­styrkja fyrir árið 2021 var birt í dag. Árvakur, Sýn og Torg, stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, fá rúmar 244 millj­ónir af þeim 389 millj­ónum sem voru til úthlut­unar í sinn hlut.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra kom frumvarpi sínu um styrki til einkarekinna fjölmiðla í gegnum þingið á vordögum.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra kom frum­varpi sínu um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla í gegnum þingið á vor­dögum. Mynd: Bára Huld Beck

Stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvakur, Sýn og Torg, fá hvert um sig rúm­lega 81,4 millj­ónir króna í opin­beran rekstr­ar­stuðn­ing árið 2021, sam­kvæmt úthlutun sem var í höndum úthlut­un­ar­nefndar sem mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra skip­aði.

Samkvæmt því sem segir á vef fjöl­miðla­nefndar í dag bár­ust alls 23 umsóknir um rekstr­ar­stuðn­ing og sam­tals sótt um stuðn­ing að fjár­hæð 880 millj­óna króna. Tveimur umsóknum var synjað og tveimur vísað frá, þar sem þær bár­ust eftir lög­bund­inn frest.

Fyrir utan stærstu fyr­ir­tækin þrjú fær Myllu­setur, útgef­andi Við­skipta­blaðs­ins, hæstan styrk eða 26,8 millj­ónir króna. Útgáfu­fé­lag Stund­ar­innar fær 25,3 millj­ónir, sjón­varps­stöðin N4 fær 19,4 millj­ónir og Kjarninn fær 14,4 millj­ónir króna.

Bænda­sam­tök Íslands, sem gefa út Bænda­blaðið, fá 12,4 millj­ónum úthlutað. Önnur útgáfu­fyr­ir­tæki fá úthlutað undir tíu millj­ónum króna.

[adspot]

Samkvæmt lögum um fjöl­miðla, sem breyt­ingar voru gerðar á fyrr á þessu ári, getur rekstr­ar­stuðn­ingur við einka­rekna miðla að hámarki numið 25 pró­sentum af stuðn­ings­hæfum rekstr­ar­kostn­aði umsækj­enda, en þó að hámarki til 100 pró­sent

Til úthlut­unar voru alls 392 millj­ónir króna að frá­dregnum kostn­aði vegna umsýslu, aug­lýs­inga, þókn­unar fyrir störf úthlut­un­ar­nefndar, sem nam um 0,8 pró­sentum af heild­ar­upp­hæð­inni eða 3.152.661 krónum. Til úthlut­unar voru því 388.847.339 krónur.

Stærstu miðlarnir skerðast frá fyrra ári

Verið er að úthluta rekstr­ar­stuðn­ingi til fjöl­miðla annað árið í röð, en í fyrra var um sér­staka COVID-19 aðgerð að ræða. Þá fengu tvö stærstu útgáfu­fé­lögin hærri úthlutun, en Árvakur fékk 99,9 millj­óna króna styrk og Sýn fékk 91,1 milljón.[links]

Nú fá þessi fyr­ir­tæki, rétt eins og Torg sem gefur út Frétta­blaðið, Hring­braut og DV, 81,4 millj­ónir, en Torg fékk 64,7 millj­ónir króna í fyrra. Ekkert fyr­ir­tæki fer upp í 100 millj­óna króna þakið sem er sett á hvert og eitt fyr­ir­tæki, eins og Árvakur gerði í fyrra.

Virðist úthlut­un­ar­nefndin því hafa not­ast við þá aðferða­fræði við úthlut­un­ina sem fjöl­miðla­nefnd setti fram í sínum skiln­ingi á regl­unum í umsögn til Alþingis snemma á þessu ári. Fjöl­miðla­nefnd horfði á hlut­ina með þeim hætti að ef hlutur stuðn­ings­hæfs rekstr­ar­kostn­aðar væri hærri en 100 millj­ónir króna bæri að miða við að hlutur við­kom­andi félags fyrir hlut­falls­lega skerð­ingu teld­ist aldrei hærri en 100 millj­ónir króna.

Stuðn­ing­ur­inn ætti svo að skerð­ast í jöfnum hlut­föllum þar til að heild­ar­upp­hæðin væri sú sama og áætl­aðar fjár­veit­ingar til verk­efn­is­ins.

Athuga­semd rit­stjórnar: Kjarninn er eitt þeirra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem nýtur opin­bers rekstr­ar­stuðn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár