Skýrari aðferðarfræði gæti skert greiðslur til stærstu fjölmiðla landsins

Í umsögn fjöl­miðla­nefndar um frum­varp um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla er kallað eftir því að aðferð­ar­fræði um það hvernig styrkir hvers og eins séu reikn­aðir út sé skýrð betur.

Elfa Ýr Gylfadóttir er framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar.
Elfa Ýr Gylfa­dóttir er fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar. Mynd: RÚV/Skjáskot

Fjöl­miðla­nefnd telur mik­il­vægt að stjórn­völd skýri þá aðferð­ar­fræði sem þau ætla að nota til að greiða út styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla betur.

Sá skiln­ingur sem nefndin leggur í frum­varp um styrkt­ar­greiðsl­urnar, sem nú er til með­ferðar hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd, er að ef hlutur stuðn­ings­hæfs rekstr­ar­kostn­aðar hjá fjöl­miðli sem mun sækja um styrk sé hærri en 100 millj­ónir króna beri að miða við að hlutar við­kom­andi fyrir hlut­falls­lega skerð­ingu telj­ist aldrei hærri en 100 millj­ónir króna. Stuðn­ing­ur­inn eigi svo að skerð­ast í jöfnum hlut­föllum þar til að heild­ar­upp­hæðin sé sú sama og áætl­aðar fjár­veit­ingar til verk­efn­is­ins. Nefndin telur mik­il­vægt að aðferð­ar­fræðin sem á að styðj­ast við sé skýr og gert sé sér­stak­lega ráð fyrir henni í skýr­ingum með frum­varp­inu. Þannig sé málum ekki háttað nú.

Þetta kemur fram í umsögn nefnd­ar­innar um frum­varp Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla sem nú er til með­ferðar hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd. Samkvæmt frum­varp­inu stendur til að útdeila 400 millj­ónum króna í styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla.

Þessar skýr­ingar geta skipt miklu máli um það hvernig sú upp­hæð sem ætluð er í styrk­ina skipt­ist milli fjöl­miðla. Ef skiln­ingur fjöl­miðla­nefndar, sem hún vill að skerpt verði á í skýr­ingum, er réttur mun það til að mynda leiða til þess að þau tvö fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sem fengu hæstu styrki allra fjöl­miðla í fyrra, Árvakur og Sýn, myndu fá lægri styrki nú, verði frum­varpið að lögum.

Margra ára ferli

Stuðn­ings­greiðslur úr rík­is­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla hafa verið í deigl­unni árum saman. Segja má að ferlið hafa haf­ist í lok árs 2016 þegar sett var saman nefnd til að móta til­lögur um styrk­ingu rekstr­ar­um­hverfis einka­rek­inna fjöl­miðla. Drög að frum­varpi um þær voru kynnt af mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra fyrir tveimur árum síðan en komust hins vegar ekki á dag­skrá vor­­þings þess árs vegna mik­illar and­­­stöðu við málið hjá hluta þing­­­flokks Sjálf­­­stæð­is­­­flokks.

[adspot]Í kjöl­farið voru gerðar breyt­ingar á frum­varp­inu til að koma til móts við þá and­­stöðu. Í þeim fólst aðal­­­lega að stærstu fjöl­miðlar lands­ins myndu fá hærri styrkja­greiðslur en minni fjöl­miðlar myndu skerð­­ast á mót­i.

Nýtt frum­varp, sem átti að leggj­­ast fram í sept­­em­ber 2019, lét þó á sér standa. Lilja mælti á end­­anum ekki fyrir frum­varpi um að lög­­­festa slíkt styrkja­­kerfi fyrr en í des­em­ber 2019. Frum­varpið var hins vegar svæft í nefnd, aftur að mestu fyrir til­­stilli þing­­manna Sjálf­­stæð­is­­flokks, og fékk ekki afgreiðslu.

Þess í stað var ákveðið að taka þá fjár­­muni sem búið var að heita í styrk­ina og breyta þeim í ein­­skiptis neyð­­ar­­styrk vegna COVID-19. Lilju var falið að útfæra greiðslu þeirra í reglu­­gerð. Það gerði hún í byrjun júlí.

Í reglu­­gerð­inni var sú breyt­ing gerð á upp­­runa­­legri úthlut­un­­ar­að­­gerð að sú upp­­hæð sem stærstu fjöl­miðla­­fyr­ir­tæki lands­ins gátu sótt í rík­­is­­sjóð var tvö­­­föld­uð, úr 50 millj­­ónum króna í 100 millj­­ónir króna.

Fyrir vikið skert­ust greiðslur sem upp­­runa­­lega voru ætl­­aðar 20 smærri fjöl­miðla­­fyr­ir­tækjum um 106 millj­­ónir króna en sama upp­­hæð flutt­ist til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­fyr­ir­tækja lands­ins, Árvak­­­urs, Sýnar og Torgs.

Það frum­varp sem nú er til umfjöll­unar á þingi er í anda reglu­gerð­ar­innar.

100 milljónir fyrir hlutfallslega skerðingu

Samkvæmt frum­varp­inu er hægt að sækja um 25 pró­sent end­ur­greiðslu á stuðn­ings­hæfum kostn­aði en stuðn­ingur hvers og eins getur ekki orðið meiri en 25 pró­sent af fjár­veit­ingum til verk­efn­is­ins. Það þýðir að styrkur getur aldrei orðið meiri en 100 millj­ónir króna.

Fjöl­miðla­nefnd telur hins vegar mik­il­vægt að aðferð­ar­fræði við þennan útreikn­ing á hlut­falls­legri skerð­ingu styrkja sé skýr og að gert sé sér­stak­lega grein fyrir henni í skýr­ingum. Hún segir að sam­kvæmt orða­lagi og fram­setn­ingu í frum­varp­inu sé aðferð­ar­fræðin sú að ef það komi í ljós að hlutur stuðn­ings­hæfs rekstr­ar­kostn­aðar hjá ein­hverjum umsækj­enda sé hærri en 100 millj­ónir króna beri að miða við að hlutar við­kom­andi fyrir hlut­falls­lega skerð­ingu telj­ist aldrei hærri en 100 millj­ónir króna. Stuðn­ing­ur­inn eigi svo að skerð­ast í jöfnum hlut­föllum þar til að heild­ar­upp­hæðin sé sú sama og áætl­aðar fjár­veit­ingar til verk­efn­is­ins.

Á ein­földu máli þýðir sú breyt­ing sem fjöl­miðla­nefnd leggur til á frum­varp­inu að þau tvö fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sem fengu hæstu styrk­ina síð­ast, Árvakur og Sýn, myndu fá lægri styrki nú, verði frum­varpið að lögum. Þegar styrkir voru greiddir út til fjöl­miðla sem COVID-19 styrkir í fyrra þá fékk Árvakur, sem gefur út Morg­un­blaðið og tengda miðla, 99,9 millj­ónir króna og Sýn, sem rekur frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis, fékk 91,1 milljón króna þrátt fyrir að að það hlut­fall af end­ur­greið­an­legum starfs­kostn­aði sem deilt var út hafi farið úr 25 í 17 pró­sent vegna þess að sótt var um hærri upp­hæð en var til útdeil­ingar. Ástæðan er sú að heild­ar­upp­hæð end­ur­greið­an­legs kostn­aðar var höfð til hlið­sjónar þegar greiðslan var skert..

Getur Omega fengið styrk?

Fjöl­miðla­nefnd gerir fleiri athuga­semdir í umsögn­inni, meðal ann­ars við að allir séu styrkja­hæfir sem fjalli um „sam­fé­lags­leg mál­efni“. Nefndin telur hug­takið ekki nægi­lega skýrt nægi­lega og að fyrir hendi sé mögu­leiki á því að fjöl­miðlar sem fjalla t.d. ein­vörð­ungu um beinar útsend­ingar eða texta­lýs­ingar af íþrótta­kapp­leikjum eða trú­mál, eins og sjón­varps­stöðin Omega, muni telj­ast styrkj­ar­hæf.

Þá leggur fjöl­miðla­nefnd til að skýr­ingum á hug­tak­inu „frétta­tengt efni“ verði bætt við ákvæði frum­varps­ins. „Að mati nefnd­ar­innar er t.d. ekki full­kom­lega skýrt hvort íþrótta- og veð­ur­fréttir telj­ist falla undir hug­takið. Hið sama á við um aðra umfjöllun um íþróttir, þar á meðal beinar útsend­ingar og texta­lýs­ingar frá íþrótta­kapp­leikjum og -mótum.“

[links]Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að það hefði komið fram „í sam­tölum við fram­kvæmda­stjóra fjöl­miðla­nefndar að flókið hafi verið að meta hvort efn­is­tök fjöl­mið­ils væru sann­an­lega fjöl­breytt og hefðu breiða skírskotun.“

Þessu er hins vegar hafnað í umsögn fjöl­miðla­nefndar og sagt að þar sé vísað í óform­legt sam­tal við Elfu Ýr Gylfa­dóttur, fram­kvæmda­stjóra hennar, þar sem hún hafi upp­lýst ráðu­neytið um að ekki væri unnt að útbúa lista yfir þá fjöl­miðla sem upp­fylltu slík skil­yrði fyr­ir­fram, enda þyrfti að meta inni­hald hvers mið­ils fyrir sig. „Sú hefði einmitt verið raunin þegar styrkir voru veittir árið 2020 til að mæta efna­hags­legum áhrifum heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. Þetta ber að skilja svo að ein­ungis var bent á að um mats­kennda ákvörðun væri að ræða og að meta þyrfti inni­hald hvers mið­ils fyrir sig. Því þyrfti að vanda hug­taka­notkun og tryggja að það væri alveg skýrt hvaða fjöl­miðlar féllu undir ákvæði lag­anna. Það er því ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að meta inni­hald fjöl­miðla með sam­bæri­legum hætti og gert er á hinum Norð­ur­lönd­unum en þar eru gerðar ítar­legar kröfur um breiða skírskotun og fjöl­breytt efni og vísað til þess að fag­legar unnar fréttir og frétta­tengt efni sé grund­völlur lýð­ræð­is­legrar umræðu í sam­fé­lag­inu.“

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­­­­­fyllir þau skil­yrði sem sett eru fyrir stuðn­­­­ings­greiðsl­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár