Segir að Sjálf­stæðis­menn muni í „gróf­um drátt­um“ styðja fjöl­miðlafrum­varpið

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar telur það vera áhyggju­efni að ein­ungis ein frétta­stofa sé í op­inni dag­skrá. Sjálf­stæð­is­menn muni styðja fjöl­miðla­frum­varp mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Páll Magnús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar, seg­ist eiga von á því að Sjálf­stæðis­menn muni í „gróf­um drátt­um styðja fjöl­miðla­frum­varp Lilju Al­freðs­dótt­ur sem hún seg­ir fyrsta skrefið að því að taka Rík­is­út­varpið af aug­lýs­inga­mark­aði“. Frá þessu greinir hann í sam­tali við mbl.is í dag.

[links]Þá seg­ist hann enn fremur hafa áhyggj­ur af lýð­ræði á Íslandi í ljósi þess að Stöð 2 hef­ur ákveðið að læsa frétta­tíma sín­um. Fram kom í fjöl­miðlum í gær að frétta­tími Stöðvar 2 yrði í lok­aðri dag­skrá frá 18. jan­úar næst­kom­andi, en honum hefur í 34 ára verið sjón­varpað í opinni dag­skrá. Það þýðir að aðrir en áskrif­endur að Stöð 2 munu ekki lengur geta horft á frétta­tím­ann.

Bendir Páll á að með þessu sé sam­keppni á sjón­varps­frétta­mark­aði í op­inni dag­skrá eng­in. Það sé einnig hættu­legt frétta­stofu RÚV sem þurfi á sam­keppni að halda til að halda uppi gæðum þess frétta­efn­is sem hún fram­leiðir. Páll er fyrr­ver­andi frétta­stjóri Stöðvar 2 og út­varps­stjóri RÚV.

Þrisvar verið afgreitt af ríkisstjórn

Lilja D. Alfreðs­dótt­ir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur þrisvar kynnt frum­varp um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla á rík­is­stjórn­ar­fundi og þar af leið­andi hefur það þrisvar verið afgreitt af rík­is­stjórn.

Til stóð að afgreiða frum­varpið í des­em­ber síð­ast­liðnum en af því varð ekki. Kjarninn greindi frá mál­inu á sínum tíma og hermdu heim­ildir hans að það væri vegna and­stöðu innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem situr í rík­is­stjórn með flokki mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Þing­menn hans hafa lýst yfir mik­illi and­stöðu við frum­varp­ið, þrátt fyrir að það hefði þegar verið afgreitt úr rík­is­stjórn og þing­flokkum allra stjórn­ar­flokk­anna. Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði meðal ann­ars að frum­varpið væri and­vana fætt.

Frum­varpið hefur tekið tölu­verðum breyt­ingum frá því var fyrst dreift á þingi síð­asta vor. Sú breytta útgáfa, sem var kynnt í des­em­ber, er útþynnt útgáfa af þeirri hug­mynd sem upp­haf­lega var lagt upp með, og hefur verið ráð­andi í ferli sem málið hefur nú verið í árum sam­an, að end­ur­greiða kostnað við rekstur rit­stjórnar í sam­ræmi við end­ur­greiðslur vegna fram­leiðslu kvik­mynda og hljóð­rit­unar á tón­list.

Slæm tíðindi fyr­ir lýðræðið

Páll segir í sam­tali við mbl.is að það sé við­tek­in skoðun Sjálf­stæð­is­manna að taka beri Rík­is­út­varpið af aug­lýs­inga­mark­aði og þannig að skapa vett­vang fyr­ir óbjag­aðan sam­keppn­ismarkað.

„Brott­hvarf frétta Stöðvar 2 úr op­inni dag­skrá eru slæm tíð­indi fyr­ir lýð­ræðið á Íslandi því þetta set­ur okk­ur 35 ár aft­ur í tím­ann. Eini opni frétta­tím­inn verður á veg­um rík­is­ins og það er eng­in sam­keppni. Eft­ir þessa aðgerð verðu bara einn leik­ari á svið­inu. Þetta er líka hættu­legt fyr­ir frétta­stofu rík­is­út­varps­ins því ég held að þeir sem hafi verið lengi á þess­um vett­vangi séu sam­mála um það að breyt­ing­in sem varð á frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins með til­komu Stöð 2 hafi verið mik­il. Frétt­irn­ar bötn­uðu mjög mikið. Nú erum við aft­ur kom­inn á þann stað að ein frétta­stofa er í op­inni dag­skrá og það er áhyggju­efni,“ seg­ir hann við mbl.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár