Fjölmiðlafrumvarpið er ekki lengur á dagskrá þingsins

Til stóð að mæla fyrir frum­varpi Lilju Alfreðs­dóttur um stuðn­ings­greiðslur til einka­rek­inna fjöl­miðla í gær. Það komst ekki á dag­skrá og er hvergi að finna á dag­skrá dags­ins í dag. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur verið andsnú­inn frum­varp­inu.

Lilja Alfreðsdóttir er mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir er mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Frumvarp Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, um stuðn­ings­greiðslur til einka­rek­inna fjöl­miðla, sem mæla átti fyrir í gær, er ekki lengur á dag­skrá þings­ins.

Í gær stóð til að mæla fyrir þremur málum sem hafa komið fram eftir að frestur til að leggja fram þing­mál var lið­inn, og þurftu þar með að sam­þykkj­ast með afbrigðum til að hægt væri að koma þeim á dag­skrá. Málin eru stjórn­ar­frum­varp um stöðu, stjórn og starfs­hætti þjóð­kirkj­unnar, frum­varp um breyt­ingu á lögum um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda þar sem fresti félaga til að gera grein fyrir þeim verður flýtt fram til 1. mars á næsta ári og svo frum­varp um stuðn­ing hins opin­bera við einka­rekna fjöl­miðla.

Þegar kom að því að greiða atkvæði um hvort að bæta ætti mál­unum við dag­skránna var ekki nægj­an­legur fjöldi þing­manna í þing­sal til að fram­kvæma slíka atkvæða­greiðslu. Stein­grím­ur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, ávítti þing­menn vegna fjar­veru þeirra. Þar voru þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar að verki en þetta bragð var til þess gert að marka þeim stöðu í samn­ingum um hvaða mál kæmust á dag­skrá fyrir þing­lok.

Nið­ur­staðan varð samt sem áður sú að ekki tókst að greiða atkvæði um að hleypa mál­unum þremur að í gær.

[adspot]Þegar dag­skrá Alþingis var birt í morgun kom í ljós að reynt verður að nýju að mæla fyrir tveimur þeirra. Það eina sem rataði ekki aftur á dag­skrá var umrætt fjöl­miðla­frum­varp. Heim­ildir Kjarnans herma að það sé vegna and­stöðu innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem situr í rík­is­stjórn með flokki mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Þingmenn hans hafa lýst yfir mik­illi and­stöðu við frum­varpið, þrátt fyrir að það hafi þegar verið afgreitt úr rík­is­stjórn og þing­flokkum allra stjórn­ar­flokk­anna. Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði meðal ann­ars í vik­unni við Morg­un­blaðið að frum­varpið væri and­vana fætt.

Breytt útgáfa kynnt á föstudag

Frum­varpið hefur tekið breyt­ingum frá því var fyrst dreift á þingi í vor. Sú breytta útgáfa, sem var kynnt á föstu­dag, er útþynnt útgáfa af þeirri hug­mynd sem upp­haf­lega var lagt upp með, og hefur verið ráð­andi í ferli sem málið hefur nú verið í árum saman, að end­ur­greiða kostnað við rekstur rit­stjórnar í sam­ræmi við end­ur­greiðslur vegna fram­leiðslu kvik­mynda og hljóð­rit­unar á tón­list.

Í þynn­ing­unni fólst aðal­lega að end­ur­greiðslu­hlut­fallið er lækkað úr 25 pró­sent í 18 pró­sent. Þessi breyt­ing hefur fyrst og síð­ast áhrif á minni fjöl­miðla. Það er að segja alla fjöl­miðla nema þá allra stærstu. Ljóst var að í henni fólst að væntur stuðn­ingur til þeirra myndi drag­ast saman um tæpan þriðj­ung en að það sem myndi falla stærstu miðl­unum í skaut myndi lítið breyt­ast.

Í nýju útgáf­unni er stefnt að því að heild­ar­stuðn­ings­greiðslur yrðu 400 millj­ónir króna en að hámarks­greiðsla til hvers og eins mið­ils yrði 50 millj­ónir króna. Að minnsta kosti þrjú fjöl­miðla­fyr­ir­tæki: Sýn, Árvakur (útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins) og Torg (Útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins) myndu fá hámarks­greiðslu og lík­lega Frjáls Fjöl­miðlun (Útgáfu­fé­lag DV og tengdra miðla) líka, ef þau myndu stand­ast þau skil­yrði sem sett voru fyrir stuðn­ingi úr rík­is­sjóði. Það eru skil­yrði á borð við að vera með öll opin­ber gjöld í skilum, að fleiri en þrír starfi á rit­stjórn, að fjöl­mið­ill­inn hafi starfað í að minnsta kosti ár og að hlut­fall rit­stjórn­ar­efnis í honum sé að minnsta kosti 40 pró­sent.

Til við­bótar við þetta átti að greiða sér­stakan stuðn­ing, alls fjögur pró­sent af launum allra starfs­manna fjöl­mið­ils sem falla undir lægra þrep núgild­andi tekju­skatts­kerfis. Ljóst er að sá sér­staki stuðn­ingur myndi fara að uppi­stöðu til stærstu miðl­anna líka.

Kjarn­inn miðlar er eitt þeirra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem upp­fylla þau skil­yrði sem sett eru fyrir end­ur­greiðslu í frum­varp­in­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár