„Þverpólitísk sátt“ um fjölmiðlafrumvarp í kortunum eftir að Stöð 2 boðaði læstar fréttir

Eftir að Sýn boð­aði að fréttum Stöðvar 2 yrði læst virð­ist hreyf­ing að kom­ast á frum­varp um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla. Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra telur að „þverpóli­tísk sátt“ sé að nást um styrkja­kerfi, sem sjálf­stæð­is­menn hafa lagst gegn.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Mér sýn­ist að það sé að mynd­ast þverpóli­tísk sátt um fjöl­miðla­frum­varpið sem er jákvætt,“ sagði Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra við RÚV á laug­ar­dag, en frum­varp hennar um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla á Íslandi er nú til með­ferðar á Alþingi í þriðja sinn.

Frum­varpið er í grunn­inn með svip­uðu sniði og tvö fyrri frum­vörp sem Lilja lagði fram til þings­ins, eftir að þau höfðu verið sam­þykkt í rík­is­stjórn og þing­flokkum stjórn­ar­flokk­anna þriggja. Það felur í sér að einka­reknir fjöl­miðlar á Íslandi verði styrktir um tæpar 400 millj­ónir króna á ári úr rík­is­sjóði.

Styrkirnir til fjöl­miðla eiga að verða í formi end­ur­greiðslna vegna launa­kostn­aðar fjöl­miðla­fólks og útfærslan svipuð og í ein­skipt­is­styrkjum sem fjöl­miðlar fengu til þess að takast á við áhrif kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á síð­asta ári.[links]

Í bæði fyrri skiptin sofn­uðu frum­vörp Lilju svefn­inum langa í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd Alþingis, sem Páll Magn­ús­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins stýrir. Það hefur gerst vegna and­stöðu nokk­urra þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Fá teikn virt­ust á lofti um að annað yrði uppi á ten­ingnum í þriðju til­raun.

Það vakti því tölu­verða athygli í síð­ustu viku þegar Páll sjálfur sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið að Sjálf­stæð­is­menn myndu í „grófum dráttum“ styðja fjöl­miðla­frum­varp Lilju. Þau orð lét Páll falla í sam­hengi við þá ákvörðun stjórn­enda Sýnar að frétta­tími Stöðvar 2 verði fram­vegis ein­ungis fyrir áskrif­endur.[adspot]

Það taldi Páll, sem er bæði fyrr­ver­andi frétta­stjóri Stöðvar 2 og útvarps­stjóri RÚV, baga­legt fyrir lýð­ræðið í land­inu. Af orðum Páls mátti skilja að þessi stefnu­breyt­ing Sjálf­stæð­is­manna væri vegna orða mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um að sam­þykkt fjöl­miðla­frum­varps­ins yrði fyrsta skrefið að brott­hvarfi RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði.

Lilja hefur þó boðað lengi að stefna skuli að því að RÚV hverfi þaðan.

Hvort sem það er ákvörðun Stöðvar 2 um að læsa fréttum eða ítrekun á fyr­ir­heitum Lilju um að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði sem veldur, þá virð­ist hreyf­ing vera að kom­ast á mál sem hefur til þessa verið skotið niður af þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks, sem hafa haft aðrar hug­myndir um hvernig styðja megi við einka­rekna fjöl­miðla.

Stjórn BÍ: „Þurfum ekki að finna upp hjólið“

Stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands (BÍ) sendi frá sér ályktun vegna læstra frétta Stöðvar 2 á föstu­dag. Stjórnin sagði að ákvörðun stjórn­enda Sýnar væri „þungt áfall fyrir íslenska sam­fé­lags­um­ræðu og áfell­is­dómur yfir þeim rekstr­ar­skil­yrðum sem fyr­ir­tækjum hefur verið búin á þessum mark­aði frá því að frelsi á ljós­vaka­mark­aði varð að veru­leika um miðjan níunda ára­tug síð­ustu aldar.“

Fyr­ir­ferð RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði er gagn­rýnd í álykt­un­inni, en þar segir einnig að á meðan að fjöl­miðlar reyni að fóta sig í breyttum veru­leika varð­andi tekju­öflun þurfi „hið opin­bera að koma að málum með sam­bæri­legum hætti og gert er í nágranna­löndum okkar. Við þurfum ekki að finna upp hjólið, þraut­reyndar aðferðir í þeim efnum eru fyrir hendi,“ sagði stjórn BÍ.

Ísland eina norræna ríkið sem ekki styrkir einkarekna miðla

Í grein­ar­gerð með frum­varpi Lilju um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla er dregið fram að Ísland er eina nor­ræna ríkið sem ekki veitir beina eða óbeina styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla.

„Í Finn­landi eru veittir styrkir til frétta­blaða sem gefin eru út á tungu­málum minni­hluta­hópa. Víð­tæk­ari fram­leiðslu- og dreif­ing­ar­styrkir eru veittir í Noregi og Svíþjóð. Í Danmörku er ann­ars konar styrkja­kerfi þar sem stuðn­ingur er veittur til fram­leiðslu rit­stjórn­ar­efnis á prent­uðu formi fyrir smærri fjöl­miðla með útbreiðslu á lands­vísu auk þess sem net­miðlum er veittur stuðn­ingur. Í Danmörku er einnig veittur verk­efna­styrkur vegna stofn­unar nýrra fjöl­miðla og þró­unar þeirra miðla sem fyrir eru á mark­aðnum,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þar segir enn fremur að á Norð­ur­lönd­unum hafi mikil umræða átt sér stað um að styrkja einka­rekna fjöl­miðla enn frekar til að þeir nái að fóta sig í heimi þar sem færri og færri kjósa að greiða fyrir fréttir og sam­fé­lags­miðlar hirða stóran hluta aug­lýs­inga­kök­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár