Í undirbúningi að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra skoðar leiðir til að jafna stöðu inn­lendra og erlendra fjöl­miðla á aug­lýs­inga­mark­aði. Nýr þjón­ustu­samn­ingur við RÚV tekur gildi um ára­mót og mælt verður fyrir frum­varpi um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla í haust.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í viðtali við RÚV.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, í við­tali við RÚV. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja D. Al­freðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, segir að í und­ir­bún­ingi sé að RÚV hverfi af aug­lýs­inga­mark­aði en að rík­is­miðl­inum verði bætt upp það tekju­tap með greiðslum úr rík­is­sjóði. Ráðu­neyti hennar er einnig að skoða leiðir til að jafna stöðu ís­lenskra og er­lendra fjöl­miðla á aug­lýs­inga­mark­aði. Íslenskir fjöl­miðlar greiði til að mynda virð­is­auka­skatt af aug­lýs­inga­sölu sem erlendir aðilar á þeim mark­aði, sem taka sífellt til sín stærri sneið hans, gera ekki. Við það verði inn­lendir fjöl­miðlar og rík­is­sjóður af tekjum. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í morgun.

[links]Þar segir Lilja einnig að fyr­ir­hugað fjöl­miðla­frum­varp hennar, sem kemur á end­ur­greiðslum úr rík­is­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla, geti leitt til veru­legra breyt­inga á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði.

Lilja tel­ur fyr­ir­hugað fjöl­miðla­frum­varp geta leitt til veru­legra breyt­inga á ís­lensk­um fjöl­miðla­mark­aði. Veik staða einka­rek­inna fjöl­miðla sé áhyggju­efni.

Mælt fyrir frumvarpi í haust

Lilja mun mæla fyrir frum­varpi sínu um end­ur­greiðslur á kostn­aði til einka­rek­inna fjöl­miðla á kom­andi haust­þingi. Frum­varpið hefur þegar verið skráð og verið tekið til umfjöll­unar í rík­is­stjórn.

Mark­miðið með frum­varp­inu er að efla hlut­verk rík­­is­ins, þegar kemur að fjöl­miðlaum­hverf­inu, og styrkja rekstr­­ar­um­hverf­ið, en í frum­varp­inu felst meðal ann­­ars að stíga fyrstu skrefin í átt að því sem þekkst hefur á Norð­­ur­lönd­unum um ára­bil. Í frum­varp­inu er lagt til að stuðn­­ingur rík­­is­ins við einka­rekna fjöl­miðla verði tví­­þætt­­ur. Ann­­ars vegar stuðn­­ing í formi end­­ur­greiðslu á allt að 25 pró­­sent af til­­­teknum hluta kostn­aðar af rit­­stjórn­­­ar­­störf­um, en að hámarki er hann 50 millj­­ónir króna á fjöl­mið­il. Hins vegar talað um stuðn­­ing sem nemi allt að 5,15 pró­­sent af launum starfs­­fólks á rit­­stjórn sem fellur undir lægra skatt­­þrep tekju­skatts­­stofna.

[adspot]Árlegur kostn­aður er met­inn 520 millj­­ón­ir, en fyrri hug­­myndir gerðu ráð fyrir 350 millj­­ón­­um. Breyt­ingar á hlut­verki eða tekju­­stofnum RÚV eru ekki hluti af frum­varp­inu en í grein­ar­gerð­inni segir að stefnt sé að því að skoða tekju­upp­bygg­ingu RÚV fyrir árs­lok 2019. 

Sjálfstæðisflokkurinn vill breytingar

Í mars síð­ast­liðnum sagð­i Lilja í sjón­­­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut að það væri stjórn­­­­­ar­­­meiri­hluti fyrir frum­varp­inu þrátt fyrir að það hefði verið gagn­rýnt úr ýmsum átt­um, meðal ann­­­ars af hluta þing­­­manna Sjálf­­­stæð­is­­­flokks. Frétta­blaðið greinir hins vegar frá því í lok júní að ­þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins leggi mikla á­herslu á að frum­varpið taki veru­legum breyt­ingum áður en það verður lagt fram að nýju í haust. Þær breyt­ingar snú­ast aðal­lega um stöðu RÚV á sam­keppn­is­mark­aði.

Þjón­ustu­samn­ingur RÚV við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið, sem skil­greinir hlut­verk, skyldur og umfang RÚV, rennur út í lok þessa árs. Heim­ildir Kjarnans herma að vinna við nýjan samn­ing sé þegar hafin en sá mun taka gildi í byrjun næsta árs.

Á meðal þess sem er undir í þeirri vinnu er hvernig starf­semi RÚV verður fjár­mögnuð og hvort að RÚV verði áfram heim­ilt að sækja sér tekjur á sam­keppn­is­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár