Það helsta hingað til: Frumvarp um ríkisstyrki til einkarekinna fjölmiðla

Kjarninn tók saman helstu frétta­mál íslensks sam­fé­lags á fyrstu mán­uðum árs­ins 2019. Þar á meðal er fjöl­miðla­frum­varpið, sem verður lík­leg­ast lagt fyrir rík­is­stjórn fyrir mán­aða­mót.

Lilja D. Alfreðsdóttir kynnti fjölmiðlafrumvarpið 31. janúar 2019.
Lilja D. Alfreðs­dóttir kynnti fjöl­miðla­frum­varpið 31. jan­úar 2019. Mynd: Bára Huld Beck

Hvað?

Lilja D. Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, kynnti þann 31. jan­úar drög að frum­varpi um breyt­ingar á fjöl­miðla­lög­um.

[links]Meg­in­efni frum­varps­ins snýst um að veita stjórn­völdum heim­ild til að styðja við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla í formi end­ur­greiðslu á allt að 25 pró­sent af til­teknum hluta ­rit­stjórn­ar­kostn­að einka­rek­inna fjöl­miðla. Skil­yrði fyrir styrknum verða að við­tak­endur upp­fylli ýmis skil­yrði fjöl­miðla­laga, efni þeirra sé fjöl­breytt og fyrir allan almenn­ing og bygg­ist á frétt­um, frétta­tengdu efni og sam­fé­lags­um­ræðu í víðum skiln­ingi.

Lagt er til að lögin taki gildi 1. jan­úar 2020 og end­ur­greiðslur mið­ist við síð­ast­liðið ár.

Gert er ráð fyrir end­ur­greiðslu­hæfur kostn­aður verði bund­inn við beinan launa­kostnað blaða- og frétta­manna, rit­stjóra og aðstoð­ar­rit­stjóra, mynda­töku­manna, ljós­mynd­ara og próf­arka­les­ara auk verk­taka­greiðslna fyrir sömu störf, í frum­varps­drög­un­um.

[adspot]Hlut­fall end­ur­greiðslu verði að hámarki vera 25 pró­sent af kostn­aði við fram­an­greint, þó ekki hærri en 50 millj­ón­ir til hvers umsækj­anda vegna síð­ast­lið­ins árs. Jafn­framt kemur fram í frum­varps­drög­unum að heim­ild sé til að veita stað­bundnum fjöl­miðlum við­bótar end­ur­greiðslu.

Í frum­varps­drög­unum segir að lagt er til fram­lag ­rík­is­ins nemi 300 til 400 millj­ónum á ári. Um þau er hægt að lesa hér.

Af hverju?

Rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla hefur kúvenst vegna tækni- og upp­lýs­inga­bylt­ing­ar­innar sem hefur ger­breytt neyt­enda­hegðun og gengið nán­ast frá hefð­bundnum tekju­mód­elum fjöl­miðla. Fyrir vikið vilja færri greið fyrir fréttir og frétta­vinnslu og hefur gert það að verkum að nýjar teg­undir miðla, sér­­stak­­lega sam­­fé­lags­mið­l­­ar, eru farnir að taka til sín sífellt stærri sneið af tekjum sem áður runnu til íslenskra miðla.

Í skýrslu nefndar um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hér á landi, sem skipuð var í lok árs 2016 kom fram að rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla sé svo erf­iður að það gefi stjórn­völdum til­efni til að stuðla að bættu rekstr­ar­um­hverfi þeirra.

Það rekstr­ar­um­hverfi sem íslenskum einka­reknum fjöl­miðlum er sniðið er auk þess í and­stöðu við það sem tíðkast víð­ast hvar í Evrópu. Þannig eru beinir rík­is­styrkir til einka­rek­inna fjöl­miðla á öllum Norð­ur­lönd­unum, í Frakk­landi, Lúx­em­borg, Lett­landi og Ítalíu.

Á hinum Norð­ur­lönd­unum, sem eru þau sam­fé­lög sem Ísland ber sig mest saman við, má rekja rekstr­ar­stuðn­ing hins opin­bera til einka­rek­inna fjöl­miðla aftur til árs­ins 1990. Í Noregi og Svíþjóð hefur stuðn­ing­ur­inn verið auk­inn umtals­vert und­an­farin miss­eri. Dönsk stjórn­völd kynntu einnig aðgerðir til að bregð­ast við rekstr­ar­stöðu fjöl­miðla í fyrra, sem fólust meðal ann­ars í því að draga saman umfang DR, danska rík­is­sjón­varps­ins.

[adspot]Und­ir­liggj­andi er að tryggja að gagn­rýnin umræða, aðhald, fjöl­breyttar skoð­anir og sjón­ar­mið, menn­ing­ar­leg fjöl­breytni, rann­sókn­ar­blaða­mennska séu grund­völlur hvers lýð­ræð­is­ríkis. Til þess að ná því mark­miði þurfa fjöl­miðlar að vera fjöl­breyttir og í eigu ólíkra aðila.

Gagn­rýnendur þess að ríkið styrki einka­rekna fjöl­miðla halda því fram að slíkir styrkir geti grafið undan sjálf­stæði fjöl­miðl­anna. Að þeir muni ekki bíta hend­ina sem fóðrar þá og þar af leið­andi muni þeir ekki sinna aðhalds­hlut­verki sínu nægi­lega vel.

Hver var niðurstaðan?

Frum­varpið var kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í jan­úar og fjöl­margar athuga­semdir bár­ust við það, meðal ann­ars frá flest öllum fjöl­miðlum lands­ins. Margar voru jákvæðar en athygli vakti að tvö af stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum lands­ins, Torg sem gefur út Frétta­blaðið, og Árvakur sem gefur m.a. út Morg­un­blaðið, gerðu miklar athuga­semdir við að stærri fjöl­miðlar fengu ekki meira og vildu að minni miðlar fengu ekk­ert.

Lilja sagði í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í mars síð­ast­liðnum að það væri stjórn­ar­meiri­hluti fyrir frum­varp­inu þrátt fyrir að það hefði verið gagn­rýnt úr ýmsum áttum, meðal ann­ars af hluta þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stóð til að leggja frum­varpið fram í rík­is­stjórn í þess­ari viku en ákveðið var að bíða með það fram að næsta rík­is­stjórn­ar­fundi, sem verður hald­inn 26. apríl. Mikið sam­ráð hefur verið á milli full­trúa allra rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja til að tryggja sam­stöðu um frum­varpið svo hægt verði að leggja það fram á þingi á allra næstu vikum. Heim­ildir Kjarnans herma að það muni taka ein­hverjum breyt­ingum frá því sem kynnt var í sam­ráðs­gátt en þær séu ekki þess eðlis að grunnur aðgerð­anna rask­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár