Lilja kynnir frumvarp um bætt rekstrarumhverfi fjölmiðla

Lilja Alfreðs­dóttir kynnti í dag drög að frum­varpi um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Frum­varpið veitir stjórn­völdum heim­ild að styrkja einka­rekna fjöl­miðla með því að end­ur­greiða þeim allt að 25 pró­sent af rit­stjórn­ar­kostn­aði.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, kynnti í dag drög að frum­varpi um breyt­ingar á fjöl­miðla­lögum. Meg­in­efni frum­varps­ins snýst um að veita stjórn­völdum heim­ild til að styðja við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla í formi end­ur­greiðslu á allt að 25 pró­sent af til­teknum hluta rit­stjórn­ar­kostnað einka­rek­inna fjöl­miðla. Skilyrði fyrir styrknum er að við­tak­endur upp­fylli ýmis skil­yrði fjöl­miðla­laga, efni þeirra sé fjöl­breytt og fyrir allan almenn­ing og bygg­ist á fréttum, frétta­tengdu efni og sam­fé­lags­um­ræðu í víðum skiln­ingi. Lagt er til að lögin taki gildi 1. jan­úar 2020 og end­ur­greiðslur mið­ist við síð­ast­liðið ár. Drög að frum­varp­inu eru nú aðgengi­leg í stjórn­ar­gátt stjórn­valda.

Hámark endurgreiðslu 50 milljónir

Gert er ráð fyrir end­ur­greiðslu­hæfur kostn­aður verði bund­inn við beinan launa­kostnað blaða- og frétta­manna, rit­stjóra og aðstoð­ar­rit­stjóra, mynda­töku­manna, ljós­mynd­ara og próf­arka­les­ara auk verk­taka­greiðslna fyrir sömu störf, í frum­varps­drög­unum. Hlutfall end­ur­greiðslu verði að hámarki vera 25 pró­sent af kostn­aði við fram­an­greint, þó ekki hærri en 50 millj­ónir til hvers umsækj­anda vegna síð­ast­lið­ins árs. Jafn­framt kemur fram í frum­varps­drög­unum að heim­ild sé til að veita stað­bundnum fjöl­miðlum við­bótar end­ur­greiðslu. Í frum­varps­drög­unum segir að lagt er til fram­lag rík­is­ins nemi 300 til 400 millj­ónum á ári.

Fjölmiðill þarf að hafa starfað í 12 mánuði

Í drögnum segir að þar sem megin mark­miðið frum­varps­ins sé að tryggja lýð­ræð­is­lega umræðu og sam­ræður í sam­fé­lag­inu um mál­efni þess, þá séu gerðar kröfur um að fjöl­miðl­arnir upp­fylli til­tekin skil­yrði til þess að geta hlotið styrk eða end­ur­greiðslu á hluta kostn­aðar við öflun og miðlun frétta, frétta­tengt efni og umfjöllun um sam­fé­lags­leg mál­efni. Helstu skil­yrði fyrir styrknum eru:

  • Fjöl­mið­ill skal vera skráður eða hafa leyfi til hljóð- eða mynd­miðl­unar
  • Fjöl­mið­ill hafi starfað óslitið í tólf mán­uði eða lengur fyrir þann tíma er umsókn berst til fjöl­miðla­nefndar.
  • Aðal­mark­mið fjöl­mið­ils skal vera miðlun frétta, frétta­tengds efnis og umfjöllun um sam­fé­lags­leg mál­efni.
  • Efni fjöl­mið­ils­ins skal vera fjöl­breytt og fyrir allan almenn­ing á Íslandi.
  • Prent­miðlar skulu koma út að lág­marki fjöru­tíu og átta sinnum á ári. Net­miðlar, hljóð- og mynd­miðlar og aðrir sam­bæri­legir miðlar skulu miðla nýju efni dag­lega.
  • Rit­stjórn­ar­efni skal að lág­marki vera 40 pró­sent af því efni sem birt­ist í prent­miðlum sem dreift er end­ur­gjalds­laust til les­enda. Rit­stjórn­ar­efni í öðrum prent­miðlum og hjá net­miðlum skal að lág­marki vera helm­ingur af birtu efni.
  • Einn sjötti hluti rit­stjórn­ar­efnis skal byggja á sjálf­stæðri frétta- eða heim­ilda­öflun.

Rekstur einkarekinna fjölmiðla erfiður hér á landi

[links]Í frum­varps­drög­unum segir að frum­varpið sé í sam­ræmi við það meg­in­mark­mið stjórn­valda á sviði fjöl­miðl­unar að við­halda og efla lýð­ræð­is­lega umræðu og lýð­ræð­is­þátt­töku fólks með því að efla miðla­læsi, stuðla að fjöl­breytni, gagn­sæi og fjöl­ræði í fjöl­miðlum.

Jafn­framt segir að frum­varpið sé unnið á grund­velli stefnu­yf­ir­lýs­ingar rík­is­stjórnar og fjár­mála­á­ætl­unar 2019 til 2023 þar sem gerð er grein fyrir því að unnið verði að því að bæta rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla á tíma­bil­inu. Í skýrslu nefndar um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hér á landi, sem skipuð var í lok árs 2016 kom fram að rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla sé svo erf­iður að það gefi stjórn­völdum til­efni til að stuðla að bættu rekstr­ar­um­hverfi þeirra.

Lagt er til að lögin taki gildi 1. janúar 2020

Gert er ráð fyrir að fjöl­miðla­nefnd sjái um fram­kvæmd og að kostn­aður við hana verði tek­inn af árlegum fjár­veit­ingum til verk­efn­is­ins. Lagt er til að lögin taki gildi 1. jan­úar 2020 og end­ur­greiðslur mið­ist við síð­ast liðið ár. Lögin verði end­ur­skoðuð fyrir 31. des­em­ber 2024 .

Til að meta hvort mark­mið lag­anna hafi náðst verður gerð úttekt á áhrifum og árangri stuðn­ings við einka­rekna fjöl­miðla fyrir lok árs 2023. Athugað verður skoðað hvort stuðn­ings­kerfið hafi náð fram þeim mark­miðum sem að er stefnt með frum­varp­inu. Í því sam­bandi skal m.a. kanna hvort stuðn­ings­kerfið hafi stuðlað að aukn­ingu á miðlun frétta og frétta­tengds efnis einka­rek­inna fjöl­miðla, hvort hlut­fall efnis sem bygg­ist á sjálf­stæðri frétta- eða heim­ilda­öflun hafi auk­ist, hvort starfs­fólki á rit­stjórnum fjöl­miðla hafi fjölgað og fleira.

Frum­varps­drögin eru nú í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en umsagna­frestur er til 15. febr­úar 2019. Nið­ur­stöður sam­ráðs­ins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábend­ingum og athuga­semdum sem ber­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár