Lokatilraun gerð til að koma frumvarpi um stuðning við einkarekna fjölmiðla í gegn

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra kynnti í þriðja sinn frum­varp um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla í rík­is­stjórn í morgun. Í þriðja sinn var frum­varpið afgreitt þaðan. Það verður lagt fram á Alþingi fyrir þing­lok.

Lilja Alfreðsdóttir er mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir er mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, kynnti frum­varp um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun, og var það í kjöl­farið afgreitt af rík­is­stjórn. Frum­varpið fer nú til kynn­ingar fyrir þing­flokkum stjórn­ar­flokk­anna og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans munu þær fara fram um helg­ina.

Þann 12. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn birt­ist frétt í Morg­un­blað­inu um að nýtt fjöl­miðla­frum­varp væri í bígerð og að í því væri horft til þess að skatt­kerfið yrði notað „til þess að skjóta styrk­ari stoðum und­ir rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðl­anna“. Sú leið, sem sner­ist um að afnema trygg­inga­gjald á fjöl­miðla, er að uppi­stöðu sam­hljóma frum­varpi sem fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögðu fram í des­em­ber í fyrra.

Heim­ildir Kjarnans herma að frum­varpið sem var sam­þykkt á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag sé ekki byggt á slíkri skatta­leið heldur á sama grunni og fyrri frum­vörp Lilju, sem hafa ekki náð í gegn vegna and­stöðu sömu þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks og lögðu fram trygg­inga­gjalds­frum­varpið fyrir tæpu ári síðan.

Taka 1 í byrjun árs 2019

Í skýrslu nefndar um rekstr­­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hér á landi, sem skipuð var í lok árs 2016 kom fram að rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla væri svo erf­iður að það gefi stjórn­­völdum til­­efni til að stuðla að bættu rekstr­­ar­um­hverfi þeirra.

Frum­varp ráð­herra um slíkar stuðn­ings­greiðslur, sem byggði á vinnu nefnd­ar­innar, var kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í jan­úar 2019. Meg­in­efni frum­varps­ins sner­ist um að veita stjórn­­völdum heim­ild til að styðja við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla í formi end­­ur­greiðslu á til­­­teknum hluta ­rit­­stjórn­­­ar­­kostn­að einka­rek­inna fjöl­miðla. Skil­yrði fyrir styrknum áttu að vera að við­tak­endur upp­­­fylltu ýmis skil­yrði fjöl­miðla­laga, efni þeirra væri fjöl­breytt og fyrir allan almenn­ing og bygg­ðist á frétt­um, frétta­tengdu efni og sam­­fé­lags­um­ræðu í víðum skiln­ing­i.

[adspot]Lagt var til að lögin tækju gildi 1. jan­úar 2020 og end­­ur­greiðslur myndu mið­ast við rekstr­ar­árið 2019.

Gert var ráð fyrir end­­ur­greiðslu­hæfur kostn­aður yrði bund­inn við beinan launa­­kostnað blaða- og frétta­­manna, rit­­stjóra og aðstoð­­ar­­rit­­stjóra, mynda­­töku­­manna, ljós­­mynd­­ara og próf­­arka­­les­­ara auk verk­taka­greiðslna fyrir sömu störf, í frum­varps­drög­un­­um.

Hlut­fall end­­ur­greiðslu yrði að hámarki 25 pró­­sent af kostn­aði við fram­an­­greint, þó ekki hærri en 50 millj­­ón­ir til hvers umsækj­anda vegna síð­­ast­lið­ins árs. Jafn­­framt kom fram í frum­varps­drög­unum að heim­ild væri til að veita stað­bundnum fjöl­miðlum við­­bótar end­­ur­greiðslu.

Þessi útgáfa af frum­varp­inu mætti and­stöðu innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins og það var ekki lagt fram.

Ný útgáfa af fjöl­miðla­frum­varp­inu var kynnt á rík­is­stjórn­ar­fund­i í byrjun maí 2019. Í því var búið að gera marg­hátt­aðar breyt­ingar á upp­runa­lega frum­varp­inu sem flestar höfðu þá virkni að meira fé myndi rata til stærstu fjöl­miðla lands­ins en minna til allra hinna.

Frum­varp­inu var dreift á Alþingi þann 20. maí en það komst þó ekki til umræðu á Alþingi áður en þingið fór í sum­ar­leyf­i. Meg­in­á­stæða þess var aftur mikil and­staða hluta þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem vildu miklar breyt­ingar á því þrátt fyrir að ráð­herrar flokks­ins hefðu þegar afgreitt málið út af borði rík­is­stjórn­ar­innar.

Taka 2 í lok síðasta árs og COVID-styrkur

Í fyrra­haust stóð til að mæla fyrir mál­inu á ný í sept­em­ber en því var sífellt frestað vegna óróa um málið milli stjórn­ar­flokk­anna.

[links]Þegar breytt frum­varp var loks lagt fram í des­em­ber 2019 hafði end­ur­greiðslu­hlut­fall rit­stjórn­ar­kostn­aðar verið lækkað í 18 pró­sent og sér­stakur við­bót­ar­stuðn­ingur, sem átti að nema allt að fjórum pró­sentum af þeim hluta af launum launa­manna fjöl­mið­ils sem falla undir lægra skatt­þrep tekju­skatts­stofns, hafði líka lækkað. Kostn­að­ur­inn við frum­varpið var tak­mark­aður við þær 400 millj­ónir króna sem þegar hefur verið tryggðar til mála­flokks­ins á fjár­lögum, sem sam­þykkt voru í des­em­ber 2019.

Ráðherra fékk að mæla fyrir mál­inu en það var svo svæft í mennta- og menn­ing­ar­mála­nefnd sem Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, stýrir.

Þrátt fyrir að frum­varp ráð­herr­ans hefði ekki fengið braut­ar­gengi á vor­þingi var 400 millj­ónum króna útdeilt til einka­rek­inna fjöl­miðla sem sér­stökum neyð­ar­styrkjum til að mæta efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­­­­urs kór­ón­u­veiru. Í þeirri útfærslu var þak á greiðslum til hvers fjöl­mið­ils hækkað úr 50 í 100 millj­ónir króna. Fyrir vikið skert­ust greiðslur sem upp­­runa­­lega voru ætl­­aðar 20 smærri fjöl­miðla­­fyr­ir­tækjum um 106 millj­­ónir króna en sama upp­­hæð flutt­ist til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­fyr­ir­tækja lands­ins, Árvak­­­urs, Sýnar og Torgs. Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, fékk hæsta styrk­inn, eða rétt um 100 millj­ónir króna.

Á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar sem birt var í haust kom fram að Lilja ætl­aði sér að leggja fram fjöl­miðla­frum­varpið að nýju í októ­ber. Það kom ekki fram þá en í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar er gert ráð fyrir að 392 millj­ónir króna fari í styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla á næsta ári.

Það frum­varp var afgreitt í rík­is­stjórn í morgun og fer nú til þing­legrar með­ferðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár