Torg tekjufærði styrki til einkarekinna fjölmiðla sem voru aldrei greiddir út

Eigið fé útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins næstum helm­ing­að­ist í fyrra og skuldir þess juk­ust um 55 pró­sent. Umtals­vert tap varð á rekstr­inum og sölu­tekjur dróg­ust saman um 318 millj­ónir króna milli ára.


Eigið fé Torgs ehf., sem gefur út Frétta­blaðið og tengda miðla, nálægt helm­ing­að­ist á síð­asta ári. Það var 502 millj­ónir króna í árs­lok 2018 en tæp­lega 290 millj­ónir króna um síð­ustu ára­mót.

Tap félags­ins á síð­asta ári var 212 millj­ónir króna en þar var búið að reikna með 50 millj­óna króna styrk út rík­is­sjóði til einka­rek­inna fjöl­miðla. Þeir styrkir voru aldrei greiddir út, enda frum­varp um þá ekki sam­þykkt. Hins vegar voru greiddar út sér­stakir neyð­ar­styrkir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sem á end­anum skil­uðu Torgi 64 millj­ónum króna.

[links]Sala á aug­lýs­ingum, sem er uppi­staða tekna Torgs, dróst saman um 318 millj­ónir króna á árinu 2019, eða um 12,3 pró­sent, og var 2.257 millj­ónir króna. Torg hafi skilað 39 milljón króna hagn­aði á árinu 2018.

Skuldir félags­ins juk­ust hins vegar úr 765 millj­ónum króna í 1.186 millj­ónir króna, eða um 55 pró­sent milli ára. Þar munar mestu um að nýjar skuldir við lána­stofn­anir en lang­tíma­skuldir við slíkar voru 327 millj­ónir króna í lok síð­asta árs.

Eignir Torgs eru að uppi­stöðu við­skipta­vild upp á 752 millj­ónir króna og áhöld, tæki eða inn­rétt­ingar sem metin eru á 256 millj­ónir króna. Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram að það hafi keypt tölvu­búnað, bif­reiðar eða vélar á síð­asta ári fyrir 172 millj­ónir króna.

Með­al­fjöldi starfa hjá Torgi var 81 á síð­asta ári.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2019 sem skilað var inn til árs­reikn­ing­ar­skrár fyrir helgi.

Ekki unnt að leggja mat á áhrif COVID-19

Í árs­reikn­ingnum er líka fjallað sér­stak­lega um atburði eftir reikn­ings­skila­dag.

Í skýr­ingu á þeim lið segir: „COVID-19 heims­far­ald­ur­inn sem nú gengur yfir mun hafa veru­leg áhrif á mörgum sviðum efna­hags­lífs­ins, bæði hér­lendis og erlendis. Veruleg óvissa ríkir um efna­hags­leg áhrif far­ald­urs­ins, hve lengi hann mun vara og hver áhrifin verða eftir að honum lýkur. Það er mat stjórn­enda að ekki sé unnt að leggja mat á áhrif þessa á félagið á þessum tíma­punkti. Félagið hefur brugð­ist við þessum aðstæðum með kostn­að­arað­haldi eins og með því að hætta útgáfu Frétta­blaðs­ins á mánu­dögum og gert áætl­anir sem miða að því að mæta ætl­uðum sam­drætti og hrint þeim í fram­kvæmd.“

[adspot]Á árinu 2020 tók Torg yfir rekstur sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar og vefs­ins Hring­braut.is. Þá festi félagið kaup á eignum og rétt­indum tengdum viku­blað­inu DV, vefnum dv.is, eyj­unni.is, press­unni.is, 433.is og fleiri tengdum vefum. Allir ofan­greindir fjöl­miðlar höfðu verið reknir í miklu tapi árum saman áður en að Torg tók þá yfir.

Tekjufærðu styrki sem átti eftir að greiða út

Torg tekju­færði 50 millj­ónir króna til við­bótar við sölu­tekjur sínar á síð­asta ári sem „aðrar tekjur“. Í skýr­ingum sem fylgja með árs­reikn­ingi Torgs kemur fram að þar sé um að ræða fyr­ir­hug­aða styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla vegna rekstr­ar­árs­ins 2019, í sam­ræmi við frum­varp sem Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, lagði fram á síð­asta ári. Torg áætl­aði að fyr­ir­tækið myndi fá hámarks­styrk sam­kvæmt frum­varp­inu, en sam­kvæmt því gat ekk­ert eitt fjöl­miðla­fyr­ir­tæki fengið meira en 50 millj­ónir króna.

Frumvarp Lilju var hins vegar svæft í nefnd og náði ekki fram að ganga. Hún hyggst leggja það aftur fram í þessum mán­uði sam­kvæmt þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar og í nýbirtu fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar er gert ráð fyrir að 392 millj­ónir króna fari í styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla á næsta ári. Frum­varp­inu hefur enn ekki verið dreift á Alþingi.

Þrátt fyrir að frum­varp ráð­herr­ans hefði ekki fengið braut­ar­gengi á vor­þingi, að mestu vegna and­stöðu þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var 400 millj­ónum króna útdeilt til einka­rek­inna fjöl­miðla sem sér­stökum neyð­ar­styrkjum til að mæta efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­­­urs kór­ón­u­veiru. Í þeirri útfærslu var þak á greiðslum til hvers fjöl­mið­ils hækkað í 100 millj­ónir króna. Fyrir vikið skert­ust greiðslur sem upp­runa­lega voru ætl­aðar 20 smærri fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum um 106 millj­ónir króna en sama upp­hæð flutt­ist til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­fyr­ir­tækja lands­ins, Árvak­­urs, Sýnar og Torgs. Torg fékk tæp­lega 65 millj­ónir króna greiðslu úr rík­is­sjóði vegna þessa í sept­em­ber.

Keyptu fyrir tæplega 600 milljónir króna

Frétta­blaðið og tengdir miðlar voru lengi vel hluti af stærstu einka­reknu fjöl­miðla­sam­steypu lands­ins, 365 miðl­um, sem var að uppi­stöðu í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur og stýrt af henni og eig­in­manni henn­ar, Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni. Árið 2017 voru ljós­vaka­miðlar 365 miðla, ásamt frétta­vefnum Vísi.is, seldir til Sýn­ar. Eftir stóðu Frétta­blaðið og tengdir miðl­ar, sem voru færðir inn í Torg ehf.

Félag í eigu Helga Magn­ús­­­son­­­ar, fjár­­­­­festis og fyrr­ver­andi stjórn­­­­­ar­­­for­­­manns Líf­eyr­is­­­sjóðs verzlunarmanna, keypti helm­ings­hlut í Torgi um mitt ár í fyrra. Kaup­verðið var trún­að­ar­mál.

Í októ­ber keyptu Helgi og sam­­starfs­­menn hans hinn helm­ing­inn.

Eign­ar­haldið er vistað inni í félagi sem heitir HFB-77 ehf. Helgi á 82 pró­sent í því en aðrir eig­endur eru Sig­­­urður Arn­gríms­­­son, fyrr­ver­andi aðal­­­eig­andi Hring­brautar og við­­­skipta­­­fé­lagi Helga til margra ára, með tíu pró­­­sent hlut, Jón G. Þór­is­­­son, rit­­­stjóri Frétta­­­blaðs­ins, með fimm pró­­­sent hlut, og Guð­­­mundur Örn Jóhanns­­­son, fyrr­ver­andi sjón­­­varps­­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­­kvæmda­­­stjóri sölu, mark­aðs­­­­mála og dag­­­­skrár­­­­gerðar hjá Torg­i, með þriggja pró­senta hlut.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að félagið hefði keypt hluta­bréf fyrir 592,5 millj­ónir króna í fyrra, en eina þekkta eign þess er Torg.

Í lok ágúst síð­ast­lið­ins var til­kynnt að Björn Víglunds­son hefði verið ráð­inn for­stjóri Torgs. Hann tók við starf­inu af Jóhönnu Helgu Við­ar­s­dóttur sem verið hafði for­­stjóri fé­lags­ins og sinnt stjórn­un­ar­hlut­verki tengt miðlum þess frá árinu 2016. 

Um þriðjungur les fríblaðið

Frétta­blað­ið, frí­blað sem dreift er ókeypis í 80 þús­und ein­tökum á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Akur­eyri, er flagg­skip Torgs. Það kemur nú út fimm sinnum í viku. Útgáfu­dögum þess var fækkað um einn í apríl síð­ast­liðn­um, þegar ákveðið var að blaðið myndi ekki lengur koma út á mánu­dög­um. Síð­asta breyt­ing á útgáfu­tíðni fyrir það hafði verið í jan­úar 2009, skömmu eftir banka­hrun­ið, þegar Frétta­blaðið hætti að koma út á sunnu­dög­um. 

Blaðið var fyrst gefið út árið 2001 og náði fljótt mik­illi fót­festu á dag­blaða­mark­aði með til­heyr­andi sneið af aug­lýs­inga­tekjukök­unni. Vorið 2007 sögð­ust 65,2 pró­sent lands­manna lesa Frétta­blað­ið.

Undir lok árs 2015 fór lestur blaðs­ins í fyrsta sinn undir 50 pró­sent og tæpum þremur árum siðar fór hann undir 40 pró­sent. Nú mælist lestur Frétta­blaðs­ins 34,3 pró­sent.

Lest­ur­inn hefur að mestu dreg­ist saman hjá yngri les­end­um. Vorið 2010 lásu um 64 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára blað­ið. Nú lesa 25 pró­sent lands­manna undir fimm­tugu það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár