Eigandi Fréttablaðsins keypti hlutabréf fyrir tæplega 600 miljónir króna í fyrra

Félag sem eign­að­ist útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins í fyrra metur eignir sínar á 592,5 millj­ónir króna, eða sömu upp­hæð og það fékk lánað hjá tengdum aðila til að kaupa hluta­bréf á árinu 2019. Einu þekktu við­skipti félags­ins í fyrra eru kaup á fjöl­miðlum.

Félagið HFB-77 ehf. sem á fjöl­miðla­sam­steypuna Torg, keypti hluta­bréf fyrir 592,5 millj­ónir króna í fyrra. Torg, sem gefur meðal ann­ars út Frétta­blaðið og tengdra miðla, er eina þekkta eign félags­ins og var keypt á síð­asta ári.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi HFB-77 ehf. sem var nýverið birtur í árs­reikn­inga­skrá.

Torg tap­aði 212 millj­ónum króna á síð­asta ári, sam­kvæmt frétt um upp­fjör sam­steypunnar sem birt­ist í Frétta­blað­inu í byrjun ágúst. Árs­reikn­ingi Torgs hefur enn ekki verið skilað inn til árs­reikn­inga­skrár þrátt fyrir að frestur til að gera slíkt sé lið­inn fyrir rúmum mán­uði síðan.

Rekstr­ar­tekjur Torgs voru 2,3 millj­arðar króna en höfðu verið 2,6 millj­arðar króna árið áður og dróg­ust saman um yfir tíu pró­sent milli ára. Hjá Torgi starfa um 100 manns.

Hringbraut rennt inn

Frétta­blaðið og tengdir miðlar voru lengi vel hluti af stærstu einka­reknu fjöl­miðla­sam­steypu lands­ins, 365 miðlum, sem var að uppi­stöðu í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur og stýrt af henni og eig­in­manni hennar, Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni. Árið 2017 voru ljós­vaka­miðlar 365 miðla, ásamt frétta­vefnum Vísi.is, seldir til Sýnar. Eftir stóðu Frétta­blaðið og tengdir miðlar, sem voru færðir inn í Torg ehf.

[adspot]Félag í eigu Helga Magn­ús­­son­­ar, fjár­­­festis og fyrr­ver­andi stjórn­­­ar­­for­­manns Líf­eyr­is­­sjóðs verzlunarmanna, keypti helm­ings­hlut í Torgi um mitt ár í fyrra. Kaup­verðið var trún­að­ar­mál.

Í októ­ber keyptu Helgi og sam­starfs­menn hans hinn helm­ing­inn auk þess sem sjón­varps­stöð­inni Hring­braut var rennt inn í rekst­ur­inn. Aftur var kaup­verðið sagt trún­að­ar­mál.

Hring­braut hafði þá verið rekin í umtals­verðu tapi og var skil­greind sem á fallandi fæti. Rekstr­ar­tap Hring­brautar var 84,3 millj­ónir króna í fyrra og 70 millj­ónir króna árið þar áður. Áður en að Hring­braut var tekin yfir af nýjum eig­endum var hlutafé í félag­inu lækkað úr 220 millj­ónum króna í 500 þús­und krónur til jöfn­unar á tap­rekstri þess árum saman.

Þau kaup voru gerð í gegnum nýstofnað félag, HFB-77 ehf.

Bættu DV og tengdum miðlum við

Helgi á 82 pró­sent í HFB-77 ehf. en aðrir eig­endur eru Sig­­urður Arn­gríms­­son, fyrr­ver­andi aðal­­eig­andi Hring­brautar og við­­skipta­­fé­lagi Helga til margra ára, með tíu pró­­sent hlut, Jón G. Þór­is­­son, rit­­stjóri Frétta­­blaðs­ins, með fimm pró­­sent hlut, og Guð­­mundur Örn Jóhanns­­son, fyrr­ver­andi sjón­­varps­­stjóri Hring­brautar og nú fram­­kvæmda­­stjóri sölu, mark­aðs­­­mála og dag­­­skrár­­­gerðar hjá Torg­i, með þriggja pró­senta hlut.

Torg eign­að­ist síðan DV og tengda miðla af Frjálsri fjöl­miðlun í des­em­ber 2019. Þeirri sam­ein­ingu var form­lega lokið 1. apríl 2020.

Ástæðan fyrir kaup­unum var sögð vera erfitt rekstr­­ar­um­hverfi, en Frjáls fjöl­miðlun tap­aði 317,6 millj­ónum króna í fyrra. Alls tap­aði félagið 601,2 millj­ónum króna frá því að það keypti fjöl­miðl­anna haustið 2017 og fram að síð­ustu ára­mót­um, eða 21,5 millj­ónum króna að með­al­tali á mán­uð­i.

Það var fjár­magnað með vaxta­lausu láni frá Novator, fjár­fest­inga­fé­lagi sem er að mestu í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­son­ar. Inn­borgað hlutafé á árinu 2019 var 120 millj­ónir króna en það hafði verið 190 millj­ónir króna árið áður­. Alls nam hlutafé í félag­inu 340,5 millj­ónum króna sem þýðir að um 900 millj­ónir króna hafa runnið inn í rekst­ur­inn í formi hluta­fjár og vaxta­lausra lána.

Heim­ildir Kjarnans herma að ekk­ert hafi verið greitt fyrir DV og tengda miðla, heldur rekst­ur­inn ein­fald­lega yfir­tek­inn. Fyrr­ver­andi aðal­eig­endur Hring­brautar fengu svo lít­inn hlut í HFB-77 ehf. þegar því fjöl­miðla­fyr­ir­tæki var rent inn í Torg. Helstu kaup á hluta­bréfum voru því þegar að HFB-77 ehf. keypti Torg.

Í árs­reikn­ingi HFB-77 ehf. kemur fram að hluta­bréfa­eign félags­ins sé metin á 592,5 millj­ónir króna og að félagið skuldi ónafn­greindum tengdum aðila nákvæm­lega sömu upp­hæð. Í reikn­ingnum kemur fram að kaup­verð hluta­bréfa hafi verið 592,5 millj­ónir króna á síð­asta ári.

Lestur í sögulegri lægð

Frétta­blaðið, frí­blað sem dreift er ókeypis í 80 þús­und ein­tökum á heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Akureyri, er flagg­skip Torgs. Það kemur nú út fimm sinnum í viku. Útgáfu­dögum þess var fækkað um einn í apríl síð­ast­liðnum, þegar ákveðið var að blaðið myndi ekki lengur koma út á mánu­dögum. Síðasta breyt­ing á útgáfu­tíðni fyrir það hafði verið í jan­úar 2009, skömmu eftir banka­hrunið, þegar Frétta­blaðið hætti að koma út á sunnu­dögum.

[links]Blaðið var fyrst gefið út árið 2001 og náði fljótt mik­illi fót­festu á dag­blaða­mark­aði með til­heyr­andi sneið af aug­lýs­inga­tekjukök­unni. Vorið 2007 sögð­ust 65,2 pró­sent lands­manna lesa Frétta­blaðið.

Undir lok árs 2015 fór lestur blaðs­ins í fyrsta sinn undir 50 pró­sent og tæpum þremur árum siðar fór hann undir 40 pró­sent. Nú mælist lestur Frétta­blaðs­ins 35,1 pró­sent.

Lest­ur­inn hefur að mestu dreg­ist saman hjá yngri les­endum. Vorið 2010 lásu um 64 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 18 til 49 ára blaðið. Nú lesa 25 pró­sent lands­manna undir fimm­tugu það.

Þegar 400 millj­ónum króna var útdeilt í rekstr­ar­stuðn­ing til einka­rek­inna fjöl­miðla í síð­asta mán­uði, til að mæta efna­hags­á­hrifum heims­far­ald­­urs kór­ón­u­veiru, fékk Torg alls tæp­lega 65 millj­ónir króna í sinn hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár