Framlög til RÚV skert um 310 milljónir en aðrir fjölmiðlar fá 392 milljóna stuðning

Rík­is­stjórnin boðar styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla á næsta ári. Frumvarp um slíka verður lagt fram í þriðja sinn í haust. Ráðherra telur að síð­ustu greiðslur til þeirra hafi verið sann­gjörn útfærsla.

Lilja Alfreðsdóttir er mennta- og menningarmálaráðherra og fer með málefni fjölmiðla í ríkisstjórn Íslands.
Lilja Alfreðs­dóttir er mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og fer með mál­efni fjöl­miðla í rík­is­stjórn Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar vegna árs­ins 2021, sem kynnt var í morgun, er gert ráð fyrir 310 milljón króna lækkun á fram­lögum til RÚV. Gert er ráð fyrir að rekstr­ar­fram­lag til fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins verði 4.515 millj­ónir króna á næsta ári. Þau voru 4.825 millj­ónir króna á yfir­stand­andi ári.

Þessi lækkun á fram­lögum til RÚV kemur ofan í það að fyr­ir­tækið sér fram á allt að 300 millj­óna króna tekju­sam­drátt vegna sam­keppn­is­rekst­urs síns, sem felst aðal­lega í sölu aug­lýs­inga, á starfs­ár­inu 2021. Á árinu 2020 höfðu raun­tekjur vegna sam­dráttar í aug­lýs­inga­sölu þegar verið 150 millj­ónum króna undir áætl­uðum tekjur.

Þetta kom fram í bréfi sem Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri sendi á starfs­fólk RÚV 26. júní síð­ast­lið­inn sem Kjarninn greindi frá.

RÚV hagn­að­ist um 6,6 millj­­ónir króna á árinu 2019. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins voru 6,9 millj­­arðar króna. Þar af komu 4,7 millj­­arðar króna úr rík­­is­­sjóði í formi þjón­ustu­tekna af útvarps­­gjaldi, en 2,2 millj­­arðar króna voru tekjur úr sam­keppn­is­­rekstri, sem er að upp­i­­­stöðu sala aug­lýs­inga og kost­aðs efn­­is.

[adspot]Rekstr­­ar­hagn­aður RÚV fyrir fjár­­­magns­­gjöld, afskriftir og skatta var 290 millj­­ónir króna í fyrra.

Afkoma RÚV á árunum 2013 til 2018 var jákvæð um 1,5 millj­­­arða króna, en sú afkoma skýrð­ist fyrst og fremst af hagn­aði vegna sölu bygg­inga­réttar á lóð félags­­­ins við Efsta­­­leiti. Ef litið er á afkomu félags­­­ins fyrir tekju­skatt og sölu­hagnað hefði heild­­­ar­af­koma félags­­­ins á þessu tíma­bili var hún nei­­­kvæð um 61 milljón króna. Án lóða­­­söl­unnar hefði RÚV ohf. orðið ógjald­­­fært.

392 milljónir til einkarekinna fjölmiðla

Heild­ar­fjár­heim­ild til fjöl­miðla er áætluð fimm millj­arðar króna. Það þýðir að 484 millj­ónir króna munu fara í eitt­hvað annað RÚV. Þar af fara 92 millj­ónir króna í rekstur Fjöl­miðla­nefndar en það sem út af stendur, 392 millj­ónir króna, er ætl­aður stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla.

Slíkur stuðn­ingur hefur verið í deigl­unni árum saman og drög að frum­varp­inu voru fyrst kynnt af Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­inga­mála­ráð­herra, í lok jan­úar 2019. Það kom­st hins vegar ekki á dag­skrá vor­þings þess árs vegna mik­illar and­stöðu við málið hjá hluta þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks.

Í kjöl­farið voru gerðar breyt­ingar á frum­varp­inu til að koma til móts við þá and­stöðu. Í þeim fólst aðal­lega að stærstu fjöl­miðlar lands­ins myndu fá hærri styrkja­greiðslur en minni fjöl­miðlar myndu skerð­ast á móti.

Gert ráð fyrir stuðn­ings­greiðslum til fjöl­miðla í fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árið 2020.

Nýtt frum­varp, sem átti að leggj­ast fram í sept­em­ber 2019, lét þó á sér standa. Lilja mælti á end­anum ekki fyrir frum­varpi um að lög­festa slíkt styrkja­kerfi fyrr en í des­em­ber 2019. Frum­varpið var hins vegar svæft í nefnd, aftur að mestu fyrir til­stilli þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks, og fékk ekki afgreiðslu.

Breytt í COVID-19 stuðning

Þess í stað var ákveðið að taka þá fjár­muni sem búið var að heita í styrk­ina og breyta þeim í ein­skiptis neyð­ar­styrk vegna COVID-19. Lilju var falið að útfæra greiðslu þeirra í reglu­gerð. Það gerði hún í byrjun júlí.

[links]Í reglu­gerð­inni var sú breyt­ing gerð á upp­runa­legri úthlut­un­ar­að­gerð að sú upp­hæð sem stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins gátu sótt í rík­is­sjóð var tvö­földuð, úr 50 millj­ónum króna í 100 millj­ónir króna. Fyrir vikið skert­ust greiðslur sem upp­runa­lega voru ætl­aðar 20 smærri fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum um 106 millj­ónir króna en sama upp­hæð flutt­ist til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tækja lands­ins, Árvak­urs, Sýnar og Torgs. Árvakur, sem gefur út Morg­un­blaðið og tengda miðla, fékk mest allra, eða hámarks­styrk upp á 99,9 millj­ónir króna.

Ráðherra væntir samstöðu

Lilja rit­aði grein í Morg­un­blaðið í morgun þar sem hún fjallar um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla. Þar boðar hún að frum­varp hennar um styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla, sem tví­vegis hefur verið stöðvað af stjórn­ar­þing­mönnum, verði lagt fram í þriðja sinn.

Í grein­inni segir Lilja að í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar séu fyr­ir­heit um bætt rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla. Því verki sé ekki lokið. „Ég vænti þess að sam­staða náist um frum­varpið, enda hefur málið lengi verið á döf­inni og þörfin brýn. Reynslan af COVID-19-stuðn­ingi við fjöl­miðla á þessu ári sýnir líka að hægt er að útfæra stuðn­ing af þessu tagi á sann­gjarnan hátt. Fjöl­miðlar gegna mik­il­vægu hlut­verki við að efla sam­fé­lags­lega umræðu. Stuðn­ingur gerir fjöl­miðlum kleift að efla rit­stjórnir sínar, vera vett­vangur skoð­ana­skipta og tján­ing­ar­frelsis og rækja hlut­verk sitt sem einn af horn­steinum lýð­ræð­is­ins.”

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­fyllir þau skil­yrði sem sett eru fyrir stuðn­­ings­greiðsl­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár