Úthlutar 400 milljónum til einkarekinna fjölmiðla

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur und­ir­ritað reglu­gerð um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra var falið á nýliðnu þingi að útfæra með reglu­gerð fyr­ir­komu­lag við úthlutun 400 millj­óna króna sér­staks rekstr­ar­stuðn­ings við einka­rekna fjöl­miðla til að mæta efna­hags­legum áhrifum COVID-19. Reglu­gerðin liggur nú fyrir, hún hefur verið kynnt rík­is­stjórn og birt á vef Stjórn­ar­tíð­inda. Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Reglu­gerðin er sett til að mæta efna­hags­legum áhrifum heims­far­ald­urs kór­óna­veiru sem sam­þykkt voru á Alþingi þann 11. maí. Þar er til­greint að við ákvörðun um fjár­hæð stuðn­ings verði litið til launa, fjölda starfs­manna og verk­taka­greiðsla vegna miðl­unar á fréttum og frétta­tengdu efni á rit­stjórnum árið 2019, ásamt útgáfu­tíðni mið­ils­ins og fjöl­breyti­leika.

Stuðn­ing­ur­inn verður að hámarki 25 pró­sent af stuðn­ings­hæfum rekstr­ar­kostn­aði umsækj­enda en stuðn­ingur til hvers umsækj­enda getur ekki orðið hærri en sem nemur 25 pró­sent af þeirri fjár­veit­ingu sem Alþingi hefur úthlutað til sér­staks rekstr­ar­stuðn­ings. Umsóknir skulu afgreiddar fyrir 1. sept­em­ber 2020.

Samkvæmt mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu fellur beinn launa­kostn­aður umsækj­anda til blaða- og frétta­manna, rit­stjóra og aðstoð­ar­rit­stjóra, mynda­töku­manna og ljós­mynd­ara á árinu 2019 vegna miðl­unar á fréttum og frétta­tengdu efni og beinar verk­taka­greiðslur til sam­bæri­legra aðila undir stuðn­ings­hæfan rekstr­ar­kostnað. Fari svo að heild­ar­fjár­hæð sam­þykktra umsókna um stuðn­ings­hæfan rekstr­ar­kostnað verði umfram fjár­veit­ingar Alþingis skerð­ist stuðn­ing­ur­inn til allra umsækj­enda í jöfnum hlut­föllum.

Meðal skil­yrða fyrir sér­stökum rekstr­ar­stuðn­ingi eru:

  • Fjöl­mið­ill skal vera skráður eða hafa leyfi til hljóð- eða mynd­miðl­unar
  • Efni sem birt­ist í fjöl­miðli skal vera fjöl­breytt og ætlað fyrir almenn­ing á Íslandi. Stað­bundnir fjöl­miðar eru und­an­þegnir þessu skil­yrði.
  • Fjöl­mið­ill skal hafa starfað með leyfi frá fjöl­miðla­nefnd, hafa staðið skil á árlegri skýrslu­gjöf til hennar og veitt nefnd­inni full­nægj­andi gögn og upp­lýs­ingar um eign­ar­hald sitt, þar með talin gögn um raun­veru­lega eig­endur.
  • Fjöl­mið­ill skal ekki vera í van­skilum með opin­ber gjöld, skatta og skatt­sektir.

Umsjón með umsókn­ar­ferli og mat á umsóknum verður á höndum fjöl­miðla­nefndar og mun hún skila til­lögum um úthlutun stuðn­ings­ins til ráð­herra. Nánari upp­lýs­ingar verður að finna á vef fjöl­miðla­nefndar á næstu dögum, að því er fram kemur á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­fyllir þau skil­yrði sem sett eru fyrir stuðn­ings­greiðslum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár