Styðja fjölmiðlafrumvarpið en segja það ekki duga til að fréttatími Stöðvar 2 verði opnaður

Sýn leggur fram marg­hátt­aðar til­lögur að breyttu rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla í umsögn sinni um frum­varp um styrkja­greiðslur til fjöl­miðla. Félagið vill meðal ann­ars láta leggja niður „hina fjöl­mennu og ágengu aug­lýs­inga­deild“ RÚV.

Fréttatíma Stöðvar 2 var lokað fyrir öðrum en áskrifendum í síðasta mánuði. Samhliða dróst áhorf á hann saman um rúmlega helming.
Frétta­tíma Stöðvar 2 var lokað fyrir öðrum en áskrif­endum í síð­asta mán­uði. Samhliða dróst áhorf á hann saman um rúm­lega helm­ing. Mynd: Sýn

Sýn, sem rekur frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis, styður fram­lagt fjöl­miðla­frum­varp Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, eins langt og það nær. Félagið segir sam­þykkt frum­varps­ins þó ekki duga að óbreyttu til þess að þeirri ákvörðun að senda fréttir Stöðvar 2 út ein­ungis fyrir áskrif­endur verði snúið.

Þetta kemur fram í umsögn Sýnar um fjöl­miðla­frum­varpið.

Samkvæmt frum­varp­inu munu einka­reknir fjöl­miðlar sem upp­fylla skil­yrði þess geta fengið allt að 25 pró­sent af rit­stjórn­ar­kostn­aði end­ur­greiddan úr rík­is­sjóði. Hámarks­upp­hæð styrkja er 100 millj­ónir króna og sem stendur eru þeir fjár­munir sem settir hafa verið til hliðar fyrir kerfið 400 millj­ónir króna. Ef umsóknir fara yfir þá upp­hæð, sem er óum­flýj­an­legt miðað við rekstr­ar­kostnað íslenskra fjöl­miðla, þá munu fram­lög til allra skerð­ast jafnt.

Vilja RÚV af auglýsingamarkaði

Í umsögn Sýnar segir að staða einka­rek­inna fjöl­miðla muni ekki verða lag­færð fyrr en að RÚV verði tekið af aug­lýs­inga­mark­aði og sam­keppn­is­staða inn­lendra miðla við erlendar efn­isveitur verði jöfnuð.

Þar er bent á að árunum 2016 til 2019 hafi hlut­deild erlendra aðila á aug­lýs­inga­mark­aði hér á landi farið úr 29 pró­sent upp í 41 pró­sent þegar horft sé til heild­ar­greiðsla fyrir birt­ingu aug­lýs­inga. „Á sama tíma lækk­aði hlut­deild inn­lendra aðila úr 71 pró­sent niður í 59 pró­sent. Á þessu tíma­bili juk­ust greiðslur til erlendu aðil­anna um tæp­lega 2 millj­arða en greiðslur til inn­lendra fjöl­miðla dróg­ust saman um rúm­lega 3 millj­arða. Þetta er meðal þess sem sjá má í tölum Hag­stof­unnar um tekjur fjöl­miðla fyrir árið 2019 sem birtar voru 22. jan­úar.“

[links]Þá er rakið að á árunum 2018 til 2019 hafi hlutur RÚV í sam­an­lögðum auglys­inga­tekjum útvarps (hljóð­varps og sjón­varps) hækkað úr 40 pró­sent í 44 pró­sent. „Af þessu verður ráðið að brýn nauð­syn ber til að tak­marka fyr­ir­ferð RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði í áföngum, til að mynda um 25% á ári á fjög­urra ára tíma­bili. Telur Vodafone [Sýn] að þrátt fyrir slíka skerð­ingu á tekju­öfl­un­ar­mögu­leikum þá muni rekstr­ar­af­koma RÚV ekki skerð­ast í sömu hlut­föllum. Ræðst þetta af því að sam­hliða væri unnt að draga veru­lega úr starf­semi eða leggja niður hina fjöl­mennu og ágengu aug­lýs­inga­deild, sem nú er starf­rækt á RÚV. Sala RÚV á aug­lýs­ingum á tíma­bil­inu færi einkum fram á net­inu á grund­velli opin­berrar og gagn­særrar verð­skrár og með lág­marks umsýslu­kostn­aði. Kostn­aður við rekstur aug­lýs­inga­deildar myndi lækka á lág­marki um 80 pró­sent. Staða RÚV mun að lík­indum styrkj­ast þegar ákvarð­anir um dag­skrá mið­ast ekki við áhorfs­mæl­ingar og aug­lýs­inga­tekjur heldur efn­is­tök og gæði.“

[adspot]Í umsögn­inni segir enn­fremur að í kjöl­far þess að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra und­ir­rit­aði nýjan þjón­ustu­samn­ing við RÚV, sem gerð­ist fyrr á þessu ári, hafi hömlur verið settar á heim­ildir RÚV til að veita afslátt­ar­kjör á aug­lýs­inga­mark­aði. Það hafi leitt til þess að RÚV lækk­aði opin­bera birta gjald­skrá sína um 30 pró­sent að með­al­tali. „Með öðrum orðum stundar RÚV nú stór­felldar nið­ur­greiðslur á aug­lýs­inga­mark­aði með til­heyr­andi sam­keppn­is­röskun.“

Hafa áhyggjur af efnisveitum

Sýn hefur verið að missa spón úr aski sínum und­an­farið, en efn­isveitan Viaplay hefur náð til sín hluta af sýn­inga­rétti á meist­ara­deild Evrópu. Í nán­ustu fram­tíð verður því sýnt frá þeirri keppni bæði á rásum Sýnar og á Viaplay. Þá tryggði síð­ar­nefnda fyr­ir­tækið sér nýverið sýn­ing­ar­rétt á leikjum íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu á ára­bil­inu 2022-2028.

Í umsögn Sýnar segir að nauð­syn­legt sé að lög­gjaf­inn tryggi að erlendar efn­isveitur beri sömu skyldur og inn­lendar til að mynda þegar kemur að kröfum til tal­setn­ingar og þýð­ingar efnis.

Félagið vill auk þess að mynd­deili­veitum á borð við Google og Facebook verði gert að afla sam­þykkis rétt­hafa fyrir deil­ingu deil­ingu á fréttum og frétta­tengdu efni og að rétt­höfum verði heim­ilt að krefj­ast sann­gjarns end­ur­gjalds fyrir afnot af slíku höf­unda­rétt­ar­vörðu efni sínu.

Þá vill Sýn að trygg­ing­ar­gjald á fjöl­miðla­veitur með skatta­legt heim­il­is­festi hér á landi verði lækkað.

Þrjú fyrirtæki fengu 64 prósent af upphæðinni

Frum­varpið sem nú liggur frammi, og virð­ist njóta nægj­an­legs stuðn­ings til að verða afgreitt, er umtals­vert breytt frá upp­runa­legum hug­myndum um styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla. Stærsta breyt­ingin felur í sér að þak á greiðslu til hvers fjöl­mið­ils hefur verið hækkað úr 50 í 100 millj­ónir króna. Frum­varpið sem nú liggur frammi tekur mið að reglu­gerð um stuðn­ing til einka­rek­inna fjöl­miðla vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru sem sett var í fyrra. Reglu­gerðin gerði það að verkum að greiðslur sem upp­­runa­­lega voru ætl­­aðar 20 smærri fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum skert­ust um 106 millj­­ónir króna en sama upp­­hæð flutt­ist til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­­­fyr­ir­tækja lands­ins, Árvak­­­urs, Sýnar og Torgs. Árvak­­ur, sem gefur út Morg­un­­blaðið og tengda miðla, fékk mest allra, eða hámarks­­­styrk upp á 99,9 millj­­ónir króna. Sýn fékk 91,1 milljón króna og Torg, sem gefur út Frétta­blaðið og tengda miðla, fékk 64,7 millj­ónir króna. Alls fóru 64 pró­sent styrkj­anna til þess­arra þriggja fjöl­miðla­fyr­ir­tækja.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­fyllir þau skil­yrði sem sett eru fyrir stuðn­ings­greiðslum eins og frum­varpið er í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár