Yfir 80 prósent landsmanna óánægð með bankasöluna – Sjálfstæðismenn ánægðastir

Átta af hverjum tíu lands­menn eru óánægðir með hvernig staðið var að sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í síð­asta mán­uði og vilja að sett verði upp rann­sókn­ar­nefnd til að rann­saka söl­una. Eitt pró­sent kjós­enda Vinstri grænna eru sátt með sölu­ferlið.

Það gustar um ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur um þessar mundir.
Það gustar um rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur um þessar mundir. Mynd: Bára Huld Beck

Rúmlega átta af hverjum tíu lands­mönnum, alls 83 pró­sent aðspurðra, segj­ast óánægð með fyr­ir­komu­lag á sölu á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka þann 22. mars síð­ast­lið­inn, sam­kvæmt nýrri könnun Prósents fyrir Frétta­blaðið. Af þessum hópi eru 70 pró­sent mjög óánægð með hvernig til tókst við söl­una. Alls telja 80 pró­sent að setja eigi upp rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að rann­saka söl­una.

Þann 22. mars var ofan­greindur hlutur seldur í lok­uðu útboði með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi og 2,25 millj­arða króna afslætti frá mark­aðsvirði til 207 fjár­festa. Salan hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir að litlum fjár­festum, sem keyptu fyrir lágar upp­hæðir, hafi verið hleypt að í útboð­inu, að starfs­menn og eig­endur sölu­ráð­gjafa hafi keypt og að jafn­ræðis hafi ekki verið gætt þegar valdir voru þátt­tak­endur úr hópi skil­greindra fag­fjár­festa.

Í könnun Prósents kemur fram að ein­ungis sjö pró­sent aðspurðra eru ánægð með hvernig til tókst og þar af ein­ungis þrjú pró­sent mjög ánægð. Athygli vekur að nán­ast allir hópar sam­fé­lags­ins virð­ast jafn óánægðir með söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Í Frétta­blað­inu í dag segir að það sé nán­ast eng­inn mark­tækur munur er á afstöðu fólks er kemur að kyni, aldri, búsetu, tekjum eða menntun.

[adspot]Þeir sem kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn eru þó mark­tækt ánægð­ari með söl­una en kjós­endur ann­arra flokka. Alls segj­ast 30 pró­sent þeirra að þeir séu ánægðir með hana en 44 pró­sent segj­ast óánægðir. Til sam­an­burðar mælist óánægja með söl­una að minnsta 78 pró­sent á meðal kjós­enda allra ann­arra flokka í land­inu. Hjá hinum stjórn­ar­flokk­unum, Vinstri grænum og Framsókn, er vart mæl­an­leg ánægja með söl­una á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Einungis eitt pró­sent kjós­enda Vinstri grænna, flokks Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, segj­ast ánægð með söl­una og fimm pró­sent kjós­enda Fram­sóknar, flokks Sigurðar Inga Jóhanns­sonar inn­við­a­ráð­herra. Í Frétta­blað­inu kemur fram að eng­inn stuðn­ings­maður Sam­fylk­ingar, Pírata eða Sós­í­alista sé ánægður með söl­una.

[links]Um var að ræða net­könnun Prósents sem var gerð 13. til 19. apríl. Úrtakið var 2.150 manns, 18 ára og eldri og svar­hlut­fall var 50,3 pró­sent.

Formenn stjórn­ar­flokk­anna þriggja komu sér saman um það í byrjun viku að leggja niður Banka­sýslu rík­is­ins til að bregð­ast við þeirri miklu óánægju sem verið hefur í sam­fé­lag­inu með sölu­fyr­ir­komu­lagið. Þá fól Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Rík­is­end­ur­skoðun að rann­saka söl­una og sú stofnun á að skila stjórn­sýslu­út­tekt í júní. Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands rann­sakar auk þess þátt sölu­ráð­gjaf­ana fimm í útboð­inu, sér­stak­lega hvort skil­grein­ing þeirra á hæfi fag­fjár­festa stand­ist ekki skoðun og kaup starfs­manna og eig­enda sölu­ráð­gjafa í útboð­inu. Banka­sýsla rík­is­ins greindi frá því í gær að hún myndi halda eftir sölu­þóknun til ráð­gjaf­anna þar til það skýrist hvort þeir hafi gerst brot­legir, en alls eiga allir ráð­gjafar að fá um 700 millj­ónir króna í þóknun fyrir sína aðkomu að útboð­inu. Í Morg­un­blað­inu í dag er greint frá því að titr­ings gæti á meðal sölu­ráð­gjafa þar sem nei­kvæð nið­ur­staða í rann­sókn á þeim gæti leitt til þess að fyr­ir­tækin missi starfs­leyfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár