Ráðherrar hafi ekki gagnrýnt eitt né neitt í ferlinu og stjórnvöld verið ítarlega upplýst

Stjórn og starfs­fólk Banka­sýsl­unnar segir að fram­kvæmd útboðs­ins í Íslands­banka hafi verið „í nánu sam­starfi við stjórn­völd“, sem hafi verið „ítar­lega upp­lýst um öll skref sem stigin voru“ og ekki komið fram með neina form­lega gagn­rýni.

Lárus Blöndal stjórnarformaður og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Lárus Blöndal stjórn­ar­for­maður og Jón Gunnar Jónsson for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins. Mynd: RÚV

Stjórn og starfs­fólk Banka­sýslu rík­is­ins segir að orða­lag í yfir­lýs­ingu for­manna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna í dag, um ann­marka við fram­kvæmd útboðs á hlut á Íslands­banka, hafi komið „á óvart“. Í yfir­lýs­ingu frá stjórn og starfs­fólki, sem send var á fjöl­miðla síð­degis, segir að fram­kvæmd útboðs­ins hafi verið „í nánu sam­starfi við stjórn­völd“, sem hafi verið „ítar­lega upp­lýst um öll skref sem stigin voru“.

Þar segir einnig að stjórn og starfs­fólk hafi unnið að fram­kvæmd útboðs­ins „með fag­mennsku og heið­ar­leika í fyr­ir­rúmi“ og að stofn­unin hafi litið svo á að „fram­kvæmd útboðs­ins væri þannig að fullu í sam­ræmi við vilja stjórn­valda“ enda hefðu „engin fyr­ir­mæli eða við­brögð rík­i­s­tjórnar borið merki um annað, hvorki í aðdrag­anda þess né eftir að því var lokið.“

„Þannig taldi stjórn og starfs­fólk Banka­sýsl­unnar sig vinna í fullu umboði fjár­mála­ráð­herra og rík­is­stjórnar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni og er því bætt við að engin form­leg gagn­rýni hafi borist Banka­sýsl­unni frá ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar á fram­kvæmd útboðs­ins, þó komið hafi fram að ráð­herrar hafi verið ósáttir við að Banka­sýsla rík­is­ins taldi ekki heim­ilt að birta lista yfir kaup­endur í útboð­inu.

„Það mat Banka­sýsl­unnar byggði á álitum fleiri en eins utan­að­kom­andi lög­fræði­ráð­gjafa stofn­un­ar­innar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni sem stjórnin og starfs­menn stofn­un­ar­innar senda frá sér í dag.[links]

Hana má lesa í heild sinni hér að neðan, en í morgun birt­ist skyndi­lega til­kynn­ing á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands frá for­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja þess efnis að til stæði að leggja niður Banka­sýslu rík­is­ins.

Þar sagði að „þeir ann­markar“ sem í ljós hefðu komið „við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd sölu á eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum“ hefðu „leitt í ljós þörf­ina fyrir end­ur­skoðun á lagaum­gjörð og stofn­ana­fyr­ir­komu­lagi.“

Yfirlýsing frá stjórn og starfsfólki Bankasýslu ríkisins

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Íslands var Banka­sýslu rík­is­ins fengið það hlut­verk að selja allan eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka fyrir árs­lok 2023 væru mark­aðs­að­stæður hag­felldar.

Árið 2021 var 35% eign­ar­hlutur í Íslands­banka seldur í frumút­boði sem skil­aði rík­is­sjóði rúmum 55 millj­örðum króna. Í fram­haldi var tekin ákvörðun um að selja næsta hlut með svoköll­uðu til­boðs­fyr­ir­komu­lagi.

Í sam­ræmi við lög var óskað eftir umsögn og athuga­semdum frá bæði fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis. Þá var einnig óskað eftir form­legri umsögn Seðla­banka Íslands. Allt ferlið var opin­bert og nákvæm tíma­setn­ing þess er skráð á heima­síðu Banka­sýslu rík­is­ins og í frétta­til­kynn­ingum til kaup­hallar.

Þann 22. mars síð­ast­lið­inn var 22,5% hlutur rík­is­ins í Íslands­banka seldur með til­boðs­fyr­ir­komu­lagi og feng­ust rúmir 52,6 millj­arðar króna fyrir hlut­inn. Sala með þessu fyr­ir­komu­lagi felur í sér lokað útboð á hlutum í þegar skráðu félagi til hæfra fjár­festa og er algeng­asta sölu­að­ferð eftir frumút­boð á hluta­bréfum í evr­ópskum fyr­ir­tækjum.

[adspot]

Í öllum gögnum frá Banka­sýsl­unni kom fram að helsti gall­inn við til­boðs­fyr­ir­komu­lag væri að ekki væri gert ráð fyrir þátt­töku almennra fjár­festa í ferl­inu. Rík­is­sjóður á enn 42,5% hlut í Íslands­banka og er hlut­ur­inn met­inn á um 100 millj­arða. Þann hlut á eftir að selja og var m.a. gert ráð fyrir þátt­töku almenn­ings í næstu skrefum.

Útboð á 22,5% hlut í fullu sam­ræmi við yfir­lýst áform

Fram­kvæmd við söl­una sem fram fór í mars var á grund­velli for­senda sem fram komu í frum­varpi til fjár­laga fyrir árið 2022 og í fullu sam­ræmi við ákvörðun fjár­mála­ráð­herra, kynn­ingar Banka­sýsl­unnar fyrir ráð­herra­nefnd rík­i­s­tjórn­ar­innar um efna­hags­mál, fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis og Seðla­banka Íslands, eig­anda­stefnu rík­is­ins fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki, ákvæði laga nr. 88/2009 og laga nr. 155/2012 og við­teknum venjum á hluta­bréfa­mörk­uðum.

Fram­kvæmd útboðs­ins fór eins fram og því hafði verið lýst af hálfu stofn­unnnar frá upp­hafi til loka, í nánu sam­starfi við stjórn­völd sem voru ítar­lega upp­lýst um öll skref sem stigin voru.

Stjórn og starfs­fólk Banka­sýslu rík­is­ins hafa unnið að fram­kvæmd útboðs­ins í sam­ræmi við ofan­greindar for­sendur með fag­mennsku og heið­ar­leika í fyr­ir­rúmi. Leit stofn­unin svo á að fram­kvæmd útboðs­ins væri þannig að fullu í sam­ræmi við vilja stjórn­valda enda hafa engin fyr­ir­mæli eða við­brögð rík­i­s­tjórnar borið merki um annað, hvorki í aðdrag­anda þess né eftir að því var lokið. Þannig taldi stjórn og starfs­fólk Banka­sýsl­unnar sig vinna í fullu umboði fjár­mála­ráð­herra og rík­is­stjórnar.

Engin form­leg gagn­rýni hefur borist Banka­sýsl­unni frá ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar á fram­kvæmd útboðs­ins þó komið hafi fram að ráð­herrar hafi verið ósáttir við að Banka­sýsla rík­is­ins taldi ekki heim­ilt að birta lista yfir kaup­endur í útboð­inu. Það mat Banka­sýsl­unnar byggði á álitum fleiri en eins utan­að­kom­andi lög­fræði­ráð­gjafa stofn­un­ar­innar.

Um yfir­lýs­ingu for­manna

Stjórn Banka­sýsl­unnar telur þá umræðu sem skap­ast hefur í kjöl­far útboðs­ins að miklu leyti varða þau póli­tísku álita­efni sem sann­ar­lega koma upp vegna söl­unnar á Íslands­banka. Ljóst er að það sam­ræm­ist ekki hlut­verki Banka­sýsl­unnar að taka þátt í slíkri umræðu eða taka afstöðu til hennar.

Stjórn Banka­sýsl­unnar fagnar yfir­stand­andi skoðun á fram­kvæmd útboðs­ins af hálfu þar til bærra eft­ir­lits­að­ila og ekki mun standa á Banka­sýsl­unni við aðstoð og veit­ingu upp­lýs­inga er það varðar.

Frá því að Banka­sýslan tók til starfa í árs­byrjun 2010 hefur hún farið með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum sam­kvæmt lögum. Verðmæti þeirra eigna sem Banka­sýsl­unni var falið að hafa umsjón með hefur marg­fald­ast á starfs­tíma stofn­un­ar­innar svo nemur hund­ruðum millj­arða króna. Alls hefur stofn­unin inn­heimt 377 millj­arða króna í formi arð­greiðslna og sölu­and­virði eigna til rík­is­sjóðs og eft­ir­stæðar eignir í umsjón Banka­sýsl­unnar eru vænt­an­lega yfir 400 millj­arðar kr. Af þessum árangri er starfs­fólk og stjórn Banka­sýsl­unnar stolt.

Þrátt fyrir að lengi hafi legið fyrir að til stæði að leggja niður Banka­sýslu ríks­ins kom orða­lag yfir­lýs­ingar for­manna stjórn­ar­flokk­anna, um ann­marka við fram­kvæmd útboðs­ins, stjórn og starfs­mönnum Banka­sýsl­unnar á óvart.

Í ljósi frétta­flutn­ings fjöl­miðla í dag telur stjórn og starfs­menn Banka­sýsl­unnar nauð­syn­legt að koma ofan­greindum sjón­ar­miðum og upp­lýs­ingum á fram­færi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár