Ekki liggi fyrir nægilegar upplýsingar til að rifta Íslandsbankasölunni

For­sæt­is­ráð­herra ræðir við Kjarnann um Íslands­banka­söl­una, m.a. hvort hún hafi rýrt traust almenn­ings til stjórn­mál­anna og hvort fjár­mála­ráð­herra þurfi að víkja.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að hún og fleiri hafi séð fyrir sér að skil­grein­ing lag­anna á hæfum fjár­festum myndi tryggja að stærri fjár­festar myndu fjár­festa í hlutum í Íslands­banka frekar en minni.

Þetta segir ráð­herr­ann í sam­tali við Kjarnann þegar hún er spurð hvort hún hafi efn­is­legar athuga­semdir við fram­kvæmd­ina á söl­unni á Íslands­banka.

„Það er alltaf auð­velt að horfa til baka og vera mjög vitur eftir á en í þessu dæmi hafi það verið mat þess­ara sér­fræð­inga sem voru til ráð­gjafar að það ætti að beina þessum við­skiptum fremur til stærri aðila en smærri.“

Í byrjun apríl var birtur listi yfir þá 207 aðila sem fengu að kaupa í Íslands­banka í lok­uðu útboði þann 22. mars þar sem afsláttur var veittur á almenn­ings­eign. Á list­anum var meðal ann­ars að finna föður fjár­mála­ráð­herra, útgerð­ar­menn, hrun­verja, fólk í virkum lög­reglu­rann­sóknum, starfs­menn sölu­ráð­gjafa og ýmsa sem engum datt í hug að væru flokk­aðir sem „fag­fjár­festar“. Listinn hefur harð­lega verðið gagn­rýndur, og ferlið allt sömu­leiðis.

Ýmis sjónarmið komu fram hjá ráðherrum

Athygli vakti þegar Lilja Alfreðs­dóttir ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sagði að hún hefði ekki verið hlynnt þeirri aðferð­ar­fræði sem beitt var við söl­una.

Katrín sagði í fram­hald­inu að hvorki Lilja né nokkur annar ráð­herra hefði óskað að færa neitt til bókar um sölu­ferli á hlut Íslands­banka þegar málið var rætt í rík­is­stjórn og ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál.

En kom þessi gagn­rýni fram með öðrum hætti, til að mynda í óform­legu sam­tali?

Katrín útskýrir verk­lagið hjá ráð­herrum í rík­is­stjórn­inni og segir að iðu­lega sé fyrst hald­inn ráð­herra­fundur og í kjöl­farið fundur í rík­is­stjórn. „Það er alveg rétt og satt að þar koma fram ýmis sjón­ar­mið hjá ráð­herrum. Ég tala bara fyrir mig, þar sem þessar umræður eru alltaf trún­að­ar­mál, að ég setti þar fram sjón­ar­mið sem ég viðr­aði opin­ber­lega síðar sem varðar sér­stak­lega mark­mið lag­anna um gagn­sæi; að upp­lýs­inga­miðlun til almenn­ings og fleira yrði tryggð með þess­ari aðgerð.

Aðrir ráð­herrar viðr­uðu sín sjón­ar­mið en nið­ur­staðan var auð­vitað sam­eig­in­leg þar sem engin and­staða var bókuð við nið­ur­stöð­una.“

Katrín ítrekar að nið­ur­staðan hafi verið sam­eig­in­leg og engin and­staða bókuð. „Eðlilega eru þessi mál rædd og ólík sjón­ar­mið uppi, það á ekki bara við um þetta mál. Það er alveg algjör­lega rétt. En nið­ur­staðan er samt þessi og eng­inn sem bókar and­stöðu við hana.“

En þú vilt ekki tjá þig um það hvort Lilja hafi sett fram þessa gagn­rýni á fundum eða ekki?

Katrín segir að hún megi ekki tjá sig um hvað aðrir ráð­herrar segi á þessum fundum. Umræð­urnar séu sem slíkar trún­að­ar­mál en hún stað­festir að ráð­herrar hafi komið fram með ýmis sjón­ar­mið í þessu máli.

Ferlið ekki staðist væntingar

Telur þú að salan á Íslands­banka hafi rýrt traust almenn­ings til stjórn­mál­anna?

„Mér finnst það morg­un­ljóst að við þurfum að taka þá gagn­rýni mjög alvar­lega sem hefur komið fram á þessa sölu. Og þetta er við­ur­hluta­mikil ákvörðun að ákveða að selja hlut af almanna­eign. Það eru skýr ákvæði í lögum að það þurfi að vera gagn­sæi og það þurfi að vera virk upp­lýs­inga­miðlun til almenn­ings. Ég verð að segja það að það hefur ekki stað­ist mínar vænt­ingar, hvernig að því var staðið. Og það er auð­vitað und­ir­staða trausts­ins; þetta gagn­sæi.

Þess vegna finnst mér svo mik­il­vægt, því þú spyrð um traust, að við megum ekki gleyma því að þetta sam­fé­lag gekk í gegnum mikið áfall fyrir fjórtán árum sem auð­vitað er ennþá mjög ríkt í okkur. Það er hlut­verk okkar núna að það verði algjör­lega tryggt að allt í þessu ferli verði skoðað,“ segir hún.

Vill að Fjármálaeftirlitið og Ríkisendurskoðun fái svigrúm til að skoða málið

Katrín bendir á að tvær rann­sóknir séu í gangi, ann­ars vegar hjá Rík­is­end­ur­skoðun og hins­vegar Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­bank­ans. Hún segir að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi ríkar heim­ildir til þess að skoða þá aðila sem önn­uð­ust söl­una fyrir Banka­sýsl­una. Þar sé verið að skoða ákveðna þætti sem hafa verið í umræð­unni, til að mynda hvort hæfir fjár­festar upp­fylltu skil­yrði lag­anna um hæfa fjár­festa, um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga og hvort sölu­að­ilar hafi sjálfir verið að „höndla“.

„Allt þetta er til rann­sóknar hjá Seðla­bank­anum og ef það kemur í ljós til að mynda að sölu­að­ilar hafi farið rangt að þá er það auð­vitað mjög alvar­legt mál,“ segir hún.

Hún segir þegar hún er spurð út í ósk stjórn­ar­and­stöð­unnar að skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingis að Rík­is­end­ur­skoðun og Seðla­bank­inn hafi ákveðið hlut­verk sam­kvæmt lögum.

„Ég tel það mál­efna­legt og skyn­sam­legt að þær stofn­anir fái svig­rúm til að ljúka sinni skoðun á þessum máli og í kjöl­farið tökum við ákvörðun um það hvort við þurfum og viljum kafa dýpra í þetta mál og hvort þess þurfi. Ég ímynda mér að það yrði núna í vor, áður en þing fer heim, þannig að þá gefst tæki­færi til að ræða þetta á þing­inu. Það er algjör­lega skýrt af minni hálfu og okkar hálfu í VG að við viljum að allt komi upp á borðið,“ segir hún.

Veit ekki betur en að fjármálaráðherra hafi ekki vitað hverjir keyptu

Mótmæli fóru fram á Aust­ur­velli síð­ustu tvær helgar. Síð­ast­lið­inn föstu­dag mættu til að mynda mörg hund­ruð manns þar sem þess var kraf­ist að Íslands­banka­söl­unni yrði rift, stjórn Banka­sýsl­unnar viki og að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra færi úr emb­ætti.

Hvað finnst þér um þessar kröfur?

[links]Varðandi Bjarna þá segir Katrín að lög­gjöfin geri ráð fyrir því að Banka­sýslan ann­ist fram­kvæmd­ina í arms­lengd frá fram­kvæmda­vald­inu.

„Ég hef engar upp­lýs­ingar um annað en að til að mynda að fjár­mála­ráð­herra hafi ekki haft neinar upp­lýs­ingar um þessa kaup­endur frekar en ég fyrr en allt var um garð gengið.

Þess vegna segir ég að það sé svo mik­il­vægt að við ræðum það á þing­inu hvort að það sé ekki eðli­legt að hið lýð­ræð­is­lega vald hafi rík­ari eft­ir­lits­skyldu með þessu fyr­ir­komu­lagi þar sem við höldum utan um okkar eign­ar­hlut í fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Er ekki eðli­legt að hið lýð­ræð­is­lega vald hafi eft­ir­lit og meiri aðkomu að ákvörð­unum? Til dæmis ef ákveðið er að selja ein­hvern hluta í banka að það sé bein­línis borið undir Alþingi frekar en það sé ein­göngu þannig að þing­nefnd­irnar veiti umsagnir? Þannig að ég held að við þurfum að horfa á fyr­ir­komu­lagið í þessu.“

Þurfa að vanda sig

Rík­is­stjórnin sendi út yfir­lýs­ingu í morgun þar sem fram kemur að hún hafi ákveðið að leggja það til við Alþingi að Banka­sýsla rík­is­ins verði lögð niður og inn­leitt verði nýtt fyr­ir­komu­lag til að halda utan um eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. „Þar verður lögð áhersla á rík­ari aðkomu Alþingis og að styrk­ari stoðum verði skotið undir að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði, lýð­ræð­is­lega aðkomu þings­ins og upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings. Frum­varp þessa efnis verður lagt fyrir Alþingi svo fljótt sem auðið er,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Hvað varðar riftun söl­unnar þá segir Katrín að hún hafi ekki nægar upp­lýs­ingar til þess að leggja mat á það. „Við þurfum bara að bíða eftir þessum nið­ur­stöðum, við þurfum að vanda það hvernig við gerum þetta og meta í raun og veru. En eins og ég skil þetta að ef eitt­hvað kemur upp sem bendir til þess að það hafi ekki verið farið að lögum eða reglum þá eru ákveðin við­ur­lög við því í okkar lög­gjöf. En ég segi það bara skýrt að ég sé ekki að það sé hægt að leggja mat á það fyrr en þetta liggur fyrir.“

Verðum að hafa þolinmæði til að bíða eftir niðurstöðunum

Finnst þér eðli­legt að Bjarni sitji áfram í emb­ætti í ljósi þess hvernig salan fór og í sam­bandi við traust almenn­ings á stjórn­málum?

Katrín segir að for­menn stjórn­ar­flokk­anna séu allir sam­mála um að þessi sala hafi ekki upp­fyllt vænt­ingar þeirra út frá lög­unum um gagn­sæi, upp­lýs­inga­gjöf og annað – og horfi þau á þessa fram­kvæmd út frá því.

„Síðan eru það þessi atriði sem eru til rann­sóknar og ég held að ég geti líka sagt að við séum sam­mála um að það er gríð­ar­lega mik­il­vægt, einmitt upp á traustið, að allt komi upp á borð. En ég vil líka segja það að við verðum að hafa þol­in­mæð­ina til að bíða eftir þeim nið­ur­stöðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár