Katrín: Lilja bókaði ekkert á fundum um óánægju sína með bankasölu

Lilja Alfreðs­dóttir hefur sagt að hún hafi ekki verið hlynnt þeirri aðferð­ar­fræði sem beitt var við sölu á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka. For­sæt­is­ráð­herra segir engan ráð­herra hafa óskað þess að færa neitt til bókar um sölu­ferlið.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að hvorki Lilja Alfreðs­dóttir, ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, né nokkur annar ráð­herra hafi óskað að færa neitt til bókar um sölu­ferli á hlut Íslands­banka þegar málið var rætt í rík­is­stjórn og ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál. Þetta kemur fram á vef Frétta­blaðs­ins.

Lilja sagði í Morg­un­blað­inu í dag að hún hefði ekki verið hlynnt þeirri aðferða­fræði sem var beitt við sölu á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka 22. mars síð­ast­lið­inn. Hún hafi viljað almennt útboð, en ekki að bréf­in yrðu seld til val­ins hóps fjár­­­festa. Lilja, sem er einn þriggja ráð­herra rík­is­stjórnar sem situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins, seg­ist hafa komið þeim sjón­ar­miðum sínum skýrt á fram­færi í aðdrag­anda útboðs­ins. „Ég hef alltaf talið skyn­­sam­­legt að taka lít­il og hæg­fara skref. Hafa vaðið fyr­ir neðan sig. Ekki ein­blína á verð, held­ur gæði fram­tíð­ar­­eig­enda. Önnur leið var hins veg­ar val­in og því miður er fátt sem kem­ur á óvart í þessu máli og hver út­kom­an varð.“

Auk Lilju sitja Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Katrín í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins. Sú nefnd á meðal ann­ars að vera stefnu­mót­andi við upp­bygg­ingu fjár­mála­kerf­is­ins auk þess sem henni er ætlað að vera „vett­vangur sam­ráðs og sam­ræm­ingar við end­ur­skoðun fjár­mála­kerf­is­ins í sam­ræmi við þá áherslu í sátt­mála rík­is­stjórnar að breið sátt náist um end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins á Ísland­i“.

Kjarninn hefur kallað eftir því að fá afhentar allar fund­ar­gerðir ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál af þeim fundum þar sem banka­salan var til umfjöll­unar.

Hafa lagst gegn skipun rannsóknarnefndar

Þorri stjórn­ar­and­stöð­unnar hefur kraf­ist þess að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um söl­una en stjórn­ar­þing­menn lagst gegn því. Þess í stað lagði Bjarni fram beiðni til Rík­is­end­ur­skoð­unar um að fram­kvæma stjórn­sýslu­út­tekt á því hvort sala á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka í síð­asta mán­uði hafi sam­rýmst lögum og góðum stjórn­sýslu­hátt­um. Sú úttekt á að liggja fyrir í júní.

[adspot]Lilja sagði við Morg­un­blaðið í dag að hún teldi rétt að Rík­is­end­ur­skoðun færi yfir fram­kvæmd og aðferð­ir en að kynni einnig að vera rétt að fela fjár­­­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands að fara yfir mál­ið.

Katrín segir við vef Frétta­blaðs­ins að hún styðji ein­dregið að málið verði skoðað ofan í kjölin og að út­tekt Ríkis­endur­skoð­unar sé eðli­legt skref í þeirri skoðun.

Margháttuð gagnrýni

Salan fór fram 22. mars síð­ast­lið­inn. Þá var 22,5 pró­sent hlutur í Íslands­banka seldur til 207 fjár­festa (tveimur til­boðum var hafn­að) með 2,25 millj­arða króna afslætti. Salan fór fram eftir svo­kall­aðri til­boðs­leið og ein­ungis þeim sem upp­fylla skil­yrði laga um að telj­ast fag­fjár­festar fengu að taka þátt. Auk stórra stofn­ana­fjár­festa á borð við líf­eyr­is­sjóði, trygg­inga­fé­lög og verð­bréfa­sjóði er það hópur fjár­fest­ing­ar­fé­laga og ein­stak­linga. Hlut­irnir voru seldir á nokkrum klukku­tímum og ráð­gjafar Banka­sýsl­unnar fengu um 700 millj­ónir króna greitt fyrir að koma þeim í verð.

[links]Gagn­rýnin á ferlið hefur verið marg­þætt. Í fyrsta lagi töldu margir, meðal ann­ars þing­menn sem sitja í þeim nefndum sem gáfu álit um söl­una áður en hún fór fram, að selja ætti ein­vörð­ungu til stórra fjár­festa sem hefðu fyr­ir­ætl­anir um að vera lang­tíma­eig­endur að Íslands­banka. Komið hefur í ljós að svo var ekki, enda keyptu alls 59 fjár­festar fyrir minna en 30 millj­ónir króna og sá sem keypti fyrir lægstu upp­hæð­ina keypti fyrir ein­ungis 1,1 milljón króna. Bent hefur verið á að ekk­ert hafi kallað á að selja hafi þurfti minni fjár­festum hlut í bank­anum með afslætti. Þeir gætu ein­fald­lega keypt á eft­ir­mark­að­i.

Í öðru lagi hafa þóknana­greiðslur til ráð­gjafa verið gagn­rýndar en einn meg­in­til­gangur þess að ráð­ast í lokað útboð var að spara kostn­að. Banka­sýslan hefur sagt að kostn­að­ur­inn, um 700 millj­ónir króna, sé ásætt­an­legur en því eru ekki allir sam­mála.

Í þriðja lagi hefur verið gagn­rýnt hverjir fengu að kaupa, en listi yfir kaup­endur var loks birtur á mið­viku­dag eftir mik­inn þrýst­ing þar um. Á honum er að finna, meðal ann­arra, föður fjár­mála­ráð­herra, starfs­menn sölu­ráð­gjafa útboðs­ins, fjöl­marga aðila sem voru fyr­ir­ferða­miklir í banka­rekstri fyrir banka­hrun, fólk í virkri lög­reglu­rann­sókn, útgerð­ar­eig­endur og ein­stak­linga sem fáum hafði fyr­ir­fram dottið í hug að teld­ust vera fag­fjár­fest­ar.

Banka­sýsla rík­is­ins birti í morgun athuga­semdir sínar við fram­setta gagn­rýni þar sem henni var að öllu leyti hafnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár