Bankasýsla ríkisins hafnar allri gagnrýni sem sett hefur verið fram á söluferli Íslandsbanka

Banka­sýsla rík­is­ins er ánægð með afslátt­inn sem var gef­inn á hlut í Íslands­banka, telur kostn­að­inn við útboðið ásætt­an­legan, segir að útboð­inu hafi verið beint að öllum „hæfum fjár­festum“ og að aldrei hafi staðið til að selja bara stærri aðilum.

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri stofnunarinnar.
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri stofn­un­ar­innar. Mynd: RÚV

Banka­sýsla rík­is­ins segir að 2,25 millj­arða króna afsláttur sem hafi verið gefin á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka í lok­uðu útboði til fag­fjár­festa 22. mars síð­ast­lið­inn hafi verið umtals­vert minni en almennt ger­ist í slíkum útboðum. Í athuga­semdum sem Banka­sýslan birti á heima­síðu sinni í dag vegna full­yrð­inga sem settar hafa verið fram um útboðið segir að með útboðs­leið­inni sem farin var varð raunin sú að mis­mun­ur­inn nam aðeins 4,1 pró­sent. Það var góður árangur.“

Salan fór fram 22. mars síð­ast­lið­inn. Þá var áður­nefndur hlutur í Íslands­banka seldur til 207 fjár­festa (tveimur til­boðum var hafn­að) með afslætti. Salan fór fram eftir svo­kall­aðri til­boðs­leið og ein­ungis þeim sem upp­fylla skil­yrði laga um að telj­ast fag­fjár­festar fengu að taka þátt. Auk stórra stofn­ana­fjár­festa á borð við líf­eyr­is­sjóði, trygg­inga­fé­lög og verð­bréfa­sjóði er það hópur fjár­fest­ing­ar­fé­laga og ein­stak­linga. Hlut­irnir voru seldir á nokkrum klukku­tímum og ráð­gjafar Banka­sýsl­unnar fengu um 700 millj­ónir króna greitt fyrir að koma þeim í verð.

Gagn­rýnin á ferlið hefur verið marg­þætt. Í fyrsta lagi töldu margir, meðal ann­ars þing­menn sem sitja í þeim nefndum sem gáfu álit um söl­una áður en hún fór fram, að selja ætti ein­vörð­ungu til stórra fjár­festa sem hefðu fyr­ir­ætl­anir um að vera lang­tíma­eig­endur að Íslands­banka. Komið hefur í ljós að svo var ekki, enda keyptu alls 59 fjár­festar fyrir minna en 30 millj­ónir króna og sá sem keypti fyrir lægstu upp­hæð­ina keypti fyrir ein­ungis 1,1 milljón króna. Bent hefur verið á að ekk­ert hafi kallað á að selja hafi þurfti minni fjár­festum hlut í bank­anum með afslætti. Þeir gætu ein­fald­lega keypt á eft­ir­mark­að­i.

[adspot]Í öðru lagi hafa þókn­ana­greiðslur til ráð­gjafa verið gagn­rýndar en einn meg­in­til­gangur þess að ráð­ast í lokað útboð var að spara kostn­að. Banka­sýslan hefur sagt að kostn­að­ur­inn, um 700 millj­ónir króna, sé ásætt­an­legur en því eru ekki allir sam­mála.

Í þriðja lagi hefur verið gagn­rýnt hverjir fengu að kaupa, en listi yfir kaup­endur var loks birtur á mið­viku­dag eftir mik­inn þrýst­ing þar um. Á honum er að finna, meðal ann­arra, föður fjár­mála­ráð­herra, starfs­menn sölu­ráð­gjafa útboðs­ins, fjöl­marga aðila sem voru fyr­ir­ferða­miklir í banka­rekstri fyrir banka­hrun, fólk í virkri lög­reglu­rann­sókn, útgerð­ar­eig­endur og ein­stak­linga sem fáum hafði fyr­ir­fram dottið í hug að teld­ust vera fag­fjár­fest­ar.

Kostnaðurinn ekki hærri en almennt megi gera ráð fyrir

Í athuga­semd­unum sem birtar voru í dag hafnar Banka­sýslan allri gagn­rýni sem sett hefur verið fram á fram­kvæmd útboðs­ins. Þar segir að kostn­að­ur­inn við útboðið, rúm­lega 700 millj­ónir króna, hafi ekki verið hærri en almennt megi gera ráð fyrir í slíkum útboðum. Hún segir það ekki nákvæmt þegar sagt er að mark­mið útboðs­ins hafi verið að lág­marka kostnað heldur hafi eitt af mark­miðum þess verið að halda kostn­aði í lág­marki. Það hafi tek­ist.

[links]Þá segir Banka­sýslan að það hafi verið gagn­rýnt að „sumir fengu að kaupa, en aðrir ekki“.Að hennar mati sé rétt­ara að segja að sumir hæfir fjár­festar hafi keypt en aðrir ekki. „Útboðinu var beint að öllum hæfum fjár­festum. Til hæfra fjár­festa telj­ast við­ur­kenndir gagn­að­ilar, svo sem líf­eyr­is­sjóðir, fjár­mála­fyr­ir­tæki og vátrygg­inga­fé­lög, og aðrir fag­fjár­festar, sem fjár­mála­fyr­ir­tæki hafa metið sem slíka, á grund­velli laga­skil­yrða um eigna­stöðu, við­skiptaum­svif, og reynslu og þekk­ingu á fjár­mála­mark­aði. Engin veru­leg hindrun var í vegi hæfra fjár­festa að óska þátt­töku í útboð­inu. Banka­sýsla rík­is­ins leggur ekki mat á hvort fjár­festar upp­fylli skil­yrði þess að telj­ast fag­fjár­festar. Slíkt mat liggur lögum sam­kvæmt hjá fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Gagnrýnt hefur verið harð­lega að engin þörf hafi verið á því að selja mörgum litlum fjár­festum sem keyptu í útboð­inu á afslátt­ar­kjörum í lok­uðu útboði. Þannig keyptu 59 þeirra 207 sem tóku þátt í útboð­inu fyrir minna en 30 millj­ónir króna. Sá sem keypti fyrir lægstu upp­hæð­ina keypti fyrir um 1,1 millj­ónir króna. Þingmenn sem sátu í þeim nefndum sem skil­uðu áliti um sölu­ferlið í aðdrag­anda þess hafa flestir sagt að það hafi verið þeirra skiln­ingur að til stæði að selja hlut­inn til stærri aðila.

Í athuga­semdum Banka­sýsl­unnar segir að það hafi aldrei komið fram í til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins, grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynn­ingum stofn­un­ar­innar fyrir þing­nefndum eða áliti þing­nefnd­anna sjálfra að til stæði að selja ein­ungis til stærri aðila. „Þá hefði slíkt útboð að mati Banka­sýsl­unnar síður sam­rýmst meg­in­reglum laga um dreift og fjöl­breytt eign­ar­hald, jafn­ræði bjóð­enda og að leita skyldi mark­aðs­verðs.“

Vildi að Bankasýslan segði af sér

Um helg­ina sagði Bjarni Jóns­son, þing­maður Vinstri grænna, að hann teldi að for­stjóri og stjórn Banka­sýslu rík­is­ins, sem hafði umsjón með sölu á hlut rík­is­ins í umboði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ættu að víkja til að auð­velda end­ur­heimt á traust­i. Jón Gunnar Jóns­son, for­stjóri Banka­sýsl­unn­ar, sagði við mbl.is í gær að hann ætli ekki að víkja.

Enginn stjórn­ar­þing­maður hefur hins vegar farið fram á að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, verði lát­inn sæta ábyrgð á söl­unni en hann tók ákvörðun um að hefja umrætt sölu­ferli og tók end­an­lega ákvörðun um að selja hlut­ina í Íslands­banka með þeim hætti sem gert var. Þorri stjórn­ar­and­stöð­unnar hefur kraf­ist þess að skipuð verði rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um söl­una en stjórn­ar­þing­menn lagst gegn því. Þess í stað lagði Bjarni fram beiðni til Rík­is­end­ur­skoð­unar um að fram­kvæma stjórn­sýslu­út­tekt á því hvort sala á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka í síð­asta mán­uði hafi sam­rýmst lögum og góðum stjórn­sýslu­hátt­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár