„Vinnubrögðin kalla á afsögn ráðherrans“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar seg­ist hafa verið á móti því að selja hlut í Íslands­banka og að fjár­mála­ráð­herra þurfi að „axla ábyrgð á þessu klúðri öllu“.

Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég er sam­mála vara­for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins um að fjár­mála­ráð­herra þurfi að axla ábyrgð á þessu klúðri öllu. Hvernig datt honum í hug að það væri góð hug­mynd að gefa þessum valda hópi afslátt af eigum okkar? Er hann búinn að gleyma aðdrag­anda og eft­ir­málum hruns­ins? Eða var þetta kannski bara „svo­kallað hrun“ sem óþarfi er að draga ein­hvern lær­dóm af?“

Þetta skrifar Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á Facebook-síðu sína í morgun.

Fram kom í Morg­un­blað­inu í morgun að Lilja Alfreðs­dótt­ir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra segð­ist ekki hafa verið hlynnt þeirri aðferða­fræði sem var beitt við sölu á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka 22. mars síð­ast­lið­inn. Hún telur brýnt að í ljósi þeirrar gagn­rýni sem sett hefur verið fram á banka­söl­una þurfi Rík­is­end­ur­skoðun að fara yfir fram­kvæmd og aðferð­ir. Einni kunni að vera rétt að fela fjár­­­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands að fara yfir mál­ið.

[links]Lilja segir að hún hafi viljað almennt útboð en ekki að bréf­in yrðu seld til val­ins hóps fjár­­­festa. Lilja, sem er einn þriggja ráð­herra rík­is­stjórnar sem situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins, seg­ist hafa komið þeim sjón­ar­miðum sínum skýrt á fram­færi í aðdrag­anda útboðs­ins. „Ég hef alltaf talið skyn­­sam­­legt að taka lít­il og hæg­fara skref. Hafa vaðið fyr­ir neðan sig. Ekki ein­blína á verð, held­ur gæði fram­tíð­ar­­eig­enda. Önnur leið var hins veg­ar val­in og því miður er fátt sem kem­ur á óvart í þessu máli og hver út­kom­an varð.“

Hún segir að ábyrgðin hljóti að vera stjórn­mála­manna sem tóku ákvörðun í mál­inu.

Vega þarf og meta kosti samfélagsbanka

Oddný segir jafn­framt í stöðu­upp­færslu sinni á Facebook að vinnu­brögðin kalli á afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

„Hann selur pabba sínum á afslætti, stórum leik­endum í banka­hrun­inu, fjár­fest­inga­sjóði sem keypti og seldi strax aftur í fyrra útboði og menn sem voru að vinna við útboðið fengu að kaupa svo dæmi séu tekin úr þess­ari frá­leitu nið­ur­stöðu.

Sjálf­stæð­is­menn greiddu atkvæði gegn lögum um ferlið sem fara á eftir þegar hlutur í bönkum er seldur. Þar er ábyrgð fjár­mála­ráð­herr­ans algjör­lega skýr. Og jafn­vel þó að Sjálf­stæð­is­menn hafi ekki sam­þykkt sjálfir lögin verða þeir að fara eftir þeim!“ skrifar hún.

Þá greinir hún frá því að hún hafi verið á móti því að selja hlut­ina. „Í stefnu okkar í Sam­fylk­ing­unni segir að áður en ráð­ist sé í sölu á hlut rík­is­ins í bönk­unum þarf að svara þeirri spurn­ingu hvernig banka­kerfi tryggi góða og trausta þjón­ustu við fólk og fyr­ir­tæki. Þar þurfa leiða­stefin að vera fjöl­breytni, sam­keppni, öfl­ugt eft­ir­lit, neyt­enda­vernd og örugg ódýr inn­lend greiðslu­miðlun.

Samhliða örri tækni­þróun og nauð­syn grænna fjár­fest­inga eru aug­ljósar áskor­anir til staðar í fjár­málaum­hverf­inu. Vega þarf og meta kosti sam­fé­lags­banka og mik­il­vægt er að breytt kerfi verði til þess að áhætta í fjár­fest­inga­banka­starf­semi verði áhyggju­efni eig­enda fjár­fest­ing­ar­banka en ekki rík­is­ins. Þar liggur mik­il­vægur lær­dómur banka­hruns­ins sem stjórn­ar­flokk­arnir hirða ekki um,“ skrifar hún.

Aðeins eru rúm 12 ár frá því að einka­reknir bankar hrundu á Íslandi með afar nei­kvæðum efna­hags­legum afleið­ingum. Rannsókn á þeirri einka­væð­ingu hefur ekki farið fram, þrátt fyrir sam­þykki Alþingis á slíkri rann­sókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár