„Hvers konar viðbrögð eiga þetta eiginlega að vera?“

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýna rík­is­stjórn­ina harð­lega fyrir að axla ekki póli­tíska ábyrgð á söl­unni á Íslands­banka.

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

„Hvers konar við­brögð eiga þetta eig­in­lega að vera? Frekar en að axla póli­tíska ábyrgð á eigin klúðri ætla for­menn flokk­anna að henda starfs­fólki og stjórn Banka­sýsl­unnar undir vagn­inn.“

Þetta skrifar þing­maður Pírata, Andrés Ingi Jónsson, í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

Þing­mað­ur­inn er með orðum sínum að bregð­ast við fréttum þess efnis að rík­is­stjórnin hafi ákveðið að leggja niður Banka­sýslu rík­is­ins.

[links]Hann segir að áfram þyk­ist rík­is­stjórnin geta stýrt því hvernig emb­ætt­is­verk rík­is­stjórn­ar­innar séu rann­sökuð.

„„Rík­is­stjórnin hefur því ákveðið,“ stendur í yfir­lýs­ing­unni, en það eru bara for­menn­irnir þrír sem ákveða þetta sín á milli. Á sama tíma falla niður rík­is­stjórn­ar­fundir í tvær vikur – næstum eins og ekki sé hægt að hleypa öllum ráð­herrum að borð­inu. Það eru tólf ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni og 38 þing­menn í stjórn­ar­flokk­unum. Hafa þau ekk­ert um þetta að segja? Fylgja þau bara geð­þótta for­ingj­anna þriggja?“ spyr hann í færsl­unni.

„Árinni kennir illur ræðari“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins segir á Facebook-síðu sinni að rík­is­stjórnin við­ur­kenni að hún hafi gert mis­tök við einka­væð­ingu Íslands­banka en geri það með því að leggja niður Banka­sýsl­una.

„Þau hafa lík­lega leitað að lausn í páska­eggi og fengið máls­hátt­inn „árinni kennir illur ræð­ari“,“ skrifar hann.

Telur fjármálaráðherra bera ábyrgð

Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir á Twitter að ábyrgð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra sé ótví­ræð og bundin í lög. „Hafi hann van­rækt skyldur sínar um yfir­ferð yfir til­lögur Banka­sýslu um söl­una, aðferð og til­boð ber honum að gang­ast við þeirri hand­vömm og víkja úr emb­ætti,“ skrifar hún.

„Hafi hann með fullri með­vit­und sam­þykkt hvert ein­asta skref sem tekið var, eins og honum ber að gera ber hann einnig óskor­aða ábyrgð og ber að víkja úr emb­ætti. Það er ljóst að almenn­ingur hefur orðið fyrir óaft­ur­kræfu og mjög kostn­að­ar­sömu tjóni vegna verka fjár­mála­ráð­herra.“

Hún segir að þetta verði rík­is­stjórnin að við­ur­kenna. „Annað er óboð­legt.“

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar tjáir sig einnig um málið á Twitter. Hún spyr: „Er verið að leggja Banka­sýsl­una niður fyrir að ... fram­fylgja ákvörð­unum fjár­mála­ráð­herra?“ Hún segir jafn­framt að rík­is­stjórnin loki pásk­unum með því að kross­festa Banka­sýsl­una. „Halda svo áfram í páska­frí­inu og sleppa rík­is­stjórn­ar­fundi í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár