Stjórn Bankasýslunnar segir að söluþóknun verði ekki greidd ef ágallar komi fram

Þriggja manna stjórn Banka­sýslu rík­is­ins seg­ist vera að skoða laga­lega stöðu sína gagn­vart þeim fyr­ir­tækjum sem höfðu milli­göngu um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Umsamdar þókn­anir verði að óbreyttu ekki greiddar ef ágallar opin­ber­ist.

Lárus L. Blöndal er stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins.
Lárus L. Blöndal er stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins. Mynd: Skjáskot/Dagmál

Stjórn Banka­sýslu rík­is­ins seg­ist vera að skoða laga­lega stöðu sína gagn­vart þeim fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem önn­uð­ust sölu á hluta­bréfum rík­is­ins í Íslands­banka í lok­aða útboð­inu sem fram fór 22. mars. Stjórnin segir að ef ágallar komi í ljós muni Banka­sýslan „að óbreyttu ekki greiða umsamda sölu­þóknum“ til fyr­ir­tækj­anna í slíkum til­vikum.

Stjórn Banka­sýslu rík­is­ins skipa þau Lárus L. Blöndal stjórn­ar­for­maður auk Mar­grétar Krist­manns­dóttur og Vil­hjálms Bjarna­sonar.

Í athuga­semd frá stjórn­inni, sem birt er á vef Banka­sýsl­unnar í dag, er rakið að upp hafi komið „vafi um hvort kröfum um hæfi fjár­festar hafi verið fylgt eftir af þeim fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem sáu um sölu á hlut rík­is­ins“ í útboð­inu og að mögu­legir hags­muna­á­rekstrar ein­stakra sölu­að­ila við kaup starfs­manna eða tengdra aðila á hlutum í bank­anum séu einnig til athug­unar, en slík skoðun er í höndum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Stjórn Banka­sýsl­unnar minnir á að stofn­unin hafi engar heim­ildir til eft­ir­grennslan eða athug­unar á þessum atriðum. „Fjár­mála­eft­ir­litið hefur aftur á móti slíkar heim­ildir skv. lögum og hefur það nú hafið athugun á áður­nefndum þáttum tengdum útboð­inu og mun skila nið­ur­stöðu innan fárra vikna. Banka­sýsla rík­is­ins fagnar þeirri athugun,“ segir í athuga­semd stjórn­ar­innar.

Þar segir einnig að fjár­mála­eft­ir­litið skoði meðal ann­ars hæfi þeirra fag­fjár­festa sem fengu að kaupa, en stjórnin minnir á að það hafi verið hlut­verk sölu­að­ila að meta það enn ekki Banka­sýslu rík­is­ins.

„Komi í ljós að ein­hverjir sölu­að­ilar hafi ekki staðið undir því trausti sem Banka­sýslan gerði til þeirra mun það hafa áhrif á sölu­þókn­anir til þeirra. Stjórn Banka­sýslu rík­is­ins skoðar nú laga­lega stöðu sína gagn­vart sölu­að­ilum og mun að óbreyttu ekki greiða umsamda sölu­þóknum í til­vikum þar sem ágallar voru við sölu á 22,5% hlut rík­is­ins til hæfra fag­fjár­festa,“ segir í athuga­semd stjórnar Banka­sýsl­unnar, stofn­un­ar­innar sem rík­is­stjórnin boðar nú að leggja skuli niður með laga­breyt­ingum við fyrsta tæki­færi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár