„Gríðarstór sigur“ fyrir Giuffre en prinsinn sver enn af sér ábyrgð

Hvað verður um Andrew prins eftir að hann gerði sam­komu­lag við Virginu Giuffre og hvernig ætlar hann að fjár­magna sátta­greiðsl­una? Þessum, og ótal fleiri spurn­ingum, er ósvarað.

Breska pressan fjallar um dómsáttina sem Andrew prins gerði við Virginiu Giuffre. The Daily Telegraph fullyrðir á forsíðu sinni í dag að sáttagreiðslan hljóði upp á 12 milljónir punda.
Breska pressan fjallar um dómsátt­ina sem Andrew prins gerði við Virginiu Giuffre. The Daily Tel­egraph full­yrðir á for­síðu sinni í dag að sátta­greiðslan hljóði upp á 12 millj­ónir punda. Mynd: EPA

Andrew prins og Virginia Giuffre gerðu sam­komu­lag utan dóm­stóla í gær. Giuffre steig fram fyrir rúmum tveimur árum þar sem hún sagði barn­aníð­ing­inn og auð­jöf­ur­inn Jef­frey Ep­stein hafi gert hana út til Bret­lands árið 2001 þar sem hún hafi meðal ann­ars verið þvinguð af Epstein til að hafa kyn­mök við Andrew prins.

[links]Mála­ferli hafa staðið yfir gegn Andrew í New York þar sem hann er sak­aður um að hafa nauðgað Giuffre þrisvar sinnum þegar hún var 17 ára gömul. Með sam­komu­lag­inu er málið látið niður falla. Andrés féllst á greiða ákveðna upp­hæð og við­ur­kennir að Giuffre sé fórn­ar­lamb mis­notk­unar. Þá felur sam­komu­lagið einnig í sér að Andrés greiði ákveðna upp­hæð til góð­gerða­sam­taka Giuffre sem standa vörð um fórn­ar­lömb kyn­ferð­is­of­beldis.

Lisa Bloom, lög­fræð­ingur Giuffre, segir nið­ur­stöð­una stór­sigur. „Þetta er gríð­ar­stór sigur fyrir Virginiu,“ segir Bloom, sem hefur einnig tekið að sér mál nokk­urra fórn­ar­lamba Epstein. Bloom segir nið­ur­stöð­una ekki síst sigur „venju­legs fólk gegn hinum ríku og valda­miklu“. Stað­reyndin er þó sú að prins­inn sver af sér alla ábyrgð og neitar enn öllum ásök­unum.

„Viðbjóðsleg­asti dans­ari sem ég hef séð á æv­inni“

Giuffre, sem er banda­rísk, er í hópi kvenna sem saka Epstein um man­sal. Í við­tali við Panorama, frétta­skýr­inga­þátt BBC, í des­em­ber 2019, greindi hún frá fyrstu kynnum hennar af Andrew, sem voru í gegnum Ghislaine Maxwell, þáver­andi kær­ustu Epstein.

Maxwell fór með Giuf­fre á næt­ur­klúbb­inn Tramp í London þar sem prins­inn bauð henni upp í dans. „Hann er við­bjóðs­leg­asti dans­ari sem ég hef séð á æv­inni,“ sagði Giuf­fre í við­tal­inu þar sem hún lýs­ir því hvernig svita­drop­ar spýtt­ust í all­ar átt­ir frá prins­in­um. Þegar þau yf­ir­gáfu næt­ur­klúbb­inn sagði Maxwell henni að gera það sama og hún gerði fyr­ir Ep­stein. „Mér varð óglatt,“ sagði Giuf­fre. Seinna sama kvöld þving­aði hann hana til kyn­maka, að sögn Giuffre, á heim­ili Maxwell. Andrew hefur ávallt neitað að hafa átt í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við Giuffre og brást við frá­sögn hennar meðal ann­ars með því að segja að hann gæti ekki svitnað sökum áfalls sem hann varð fyrir í Falklandseyja-stríð­inu.

[adspot]Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu lög­fræð­inga Andrews og Giuffre segir að Andrew sjái eftir að hafa ving­ast við Epstein. Það stang­ast á við þar sem fram kom í við­tali við hann í BBC Newsnight árið 2019.

Tveir milljarðar í sáttagreiðslu?

Nánari útskýr­ingar á hvað felst í raun og veru í sam­komu­lag­inu hafa ekki verið gerðar opin­berar. Tel­egraph seg­ist hafa heim­ildir fyrir því að um 12 millj­óna punda greiðslu sé að ræða, eða sem nemur rúmum tveimur millj­örðum króna, og að hluti greiðsl­unnar muni koma frá bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni.

Í upp­hafi árs, þegar mála­ferlin stóðu sem hæst, afsal­aði Andrew sér titlum sínum innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar og breska hers­ins. Í til­kynn­ingu frá kon­ungs­fjöl­skyld­unni kom fram að Andrew myndi verja sig sem almennur borg­ari. Hann ber ekki lengur tit­il­inn her­tog­inn af York og þá skal ekki ávarpa hann sem yðar hátign. Í til­kynn­ing­unni segir jafn­framt að ákvörð­unin hafi verið tekin með sam­þykki Elísa­betar Eng­lands­drottn­ingar, móður Andrews.

Andrew fær líf­eyri frá kon­ungs­lega sjó­hernum auk reglu­legra greiðslna frá sjóði drottn­ingar, Duchy of Lancester. Lög­mað­ur­inn Kate Macnab segir það eðli­lega kröfu að vita hvort greiðslan muni koma úr opin­berum sjóðum eða einka­sjóðum. Þá bendi tals­maður sam­tak­anna Republic, sem eru mót­fallin breska kon­ungs­veld­inu, að skatt­greið­endur eigi rétt á að vita hvaðan pen­ingar sem nýttir verða í greiðsl­una koma.

Krafta Andrews ekki óskað í konungshöllinni

Þó svo að einka­máli Giuffre gegn Andrew sé lokið með dómsátt­inni en Giuffre mun mögu­lega geta borið vitni í öðrum málum. Gloria Allred, banda­rískur lög­maður sem hefur varið fórn­ar­lömb Epstein, segir sam­komu­lagið ekki úti­loka aðkomu Giuffre að öðrum dóms­málum. „Sak­sókn­ari gæti ákveðið að leggja fram kæru um glæp­sam­legt at­hæfi og þá gæti Virginia borið vitni, verði óskað eftir því,“ segir Allred.

Framtíð Andrews innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar er enn óljós. Hann hefur ekki komið opin­ber­lega fram svo mán­uðum skiptir og eftir að hann afsal­aði sér titlum sínum er hann ekki lengur „yðar hátign“. Í umfjöllun Tel­egraph segir að honum hafi verið ráð­lagt af ráð­gjöfum kon­ungs­hall­ar­innar að hafa hljótt um sig að minnsta kosti út árið. Krafta hans innan kon­ungs­fjöl­skyld­unnar sé ekki óskað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár