Hröktust að heiman yfir jólin vegna bensínstybbu

Fimm manna fjöl­skylda á Hofsósi hrakt­ist að heiman í byrjun des­em­ber og hefur enn ekki treyst sér til að snúa til baka vegna bens­ín­lyktar. N1 neitar að stað­festa hversu mikið magn hefur lekið úr tanki fyr­ir­tæk­is­ins.

Hröktust að heiman yfir jólin vegna bensínstybbu
Hröktust að heiman Þegar grafin var skurður fyrir utan húsið Suð­ur­braut á Hofsósi gaus upp megn bens­ín­lykt að sögn Valdísar. Hún segir að sama lýkt hafi valdið því að fjöl­skyld­unni var ekki vært heima hjá sér. Mynd: Valdís Brynja Hálfdánardóttir

Fimm manna fjöl­skylda neydd­ist til að halda jólin heima hjá ætt­ingjum eftir að hafa hrak­ist úr íbúð­ar­húsi sínu á Hofsósi vegna þess sem þau telja vera bens­ín­lykt. Eftir mikla eft­ir­gangs­muni var gerð athugun á bens­íntanki N1 hinum megin við göt­una og kom þá í ljós að á honum var rifa sem olli því að einn til tveir lítrar af bens­íni láku úr honum á klukku­stund. Óeðlileg rýrnun á bens­íni á bens­ín­stöð­inni mun hafa verið á bil­inu 5.000 til 8.000 lítrar á síð­asta ári, þar til umræddur tankur var tek­inn úr notkun. Þrátt fyrir þetta hefur N1 ekki brugð­ist við kröfu fjöl­skyld­unnar um aðgerðir til að hreinsa jarð­veg í kringum hús hennar og ber fyr­ir­tækið fyrir sig að ekki hafi mælst elds­neyti í jarð­vegs­sýnum við húsið. Gestir hafa hins vegar hrak­ist úr hús­inu vegna lyktar og fjöl­skyldan treystir sér ekki til að flytja heim.

Valdís Brynja Hálf­dán­ar­dóttir býr í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár