Segir þá samþjöppun sem átt hefur sér stað í sjávarútvegi ekki sanngjarna

Sjávar- og land­bún­að­ar­ráð­herra og for­maður Við­reisnar tók­ust á um sjáv­ar­út­vegs­mál á þingi í dag.

Svandís Svavarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra von­ast til að þingið geti sam­mælst um til­teknar breyt­ingar er lúta sér­stak­lega að því að auka gagn­sæi í rekstri fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, og sér­stak­lega stærstu fyr­ir­tækja lands­ins, vegna þess að sú sam­þjöppun sem átt hefur sér stað sé ekki sann­gjörn. Hún sé ekki rétt­lát og ekki í sam­ræmi við vænt­ingar sam­fé­lags­ins um það hvernig þess­ari atvinnu­grein á að vera fyrir komið.

Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar spurði hana meðal ann­ars hver skoðun hennar væri á sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu.

Þor­gerður Katrín hóf mál sitt á því að segja að birt­ing­ar­mynd sjáv­ar­út­vegs­stefnu rík­is­stjórn­ar­flokk­anna síð­ast­liðin fjögur ár kæmi fram í mun hærri arð­greiðslum til eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna en þau borg­uðu rík­inu í veiði­gjöld.

Vilja ekki kollvarpa kerfinu heldur breyta því

„Síðan er það reyndar önnur birt­ing­ar­mynd þessa dag­ana að það á skerða hlut smá­báta­sjó­manna. Við skulum líka hafa það hug­fast að ríkið á eftir þetta að greiða alla þjón­ustu fyrir útgerð­irnar sem teng­ist til að mynda Hafró, Verð­lags­stofu skipta­verðs og Fiski­stofu. Kvóta­kerfið, vel að merkja, var á sínum tíma mik­il­vægt og það var nauð­syn­legt skref fyrir hag­kvæman og sjálf­bæran sjáv­ar­út­veg. Vill Viðreisn koll­varpa kerf­inu? Nei, en við viljum breyt­ingar, tví­mæla­laust, því kerfið þarfn­ast upp­færslu fyrir þjóð­ina sem eins og sakir standa er alger­lega mis­boðið hvernig fyr­ir­komu­lagið er varð­andi einka­að­gang að auð­lind­inni.

Við þurfum auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá sem und­ir­strikar skil­yrð­is­lausan rétt þjóð­ar­innar með tíma­bundnum samn­ingum en ekki við­var­andi, óskil­yrtan rétt útgerða líkt og stjórn­ar­flokk­arnir vilja. Við þurfum mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi eins og tæp­lega 90 pró­sent þjóð­ar­innar vilja til að tryggja hennar hlut. Þjóðin treystir ekki þessu möndli stjórn­ar­flokk­anna um flókið og van­á­ætlað veiði­gjald því þetta er ekk­ert annað en möndl þeirra á milli,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Þá minnt­ist Þor­gerður Katrín á að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra ætl­aði að skipa nefnd. „Gott og vel. Við vitum ekki hvernig hún verður skipuð. Það eina sem við vitum er að það er einn fasti og það er að SFS verður örugg­lega í nefnd­inni. En hver er skoðun ráð­herr­ans sjálfs? Hún var ekki skoð­ana­laus í þverpóli­tískri nefnd sem hún sat í sjálf eftir kosn­ing­arnar 2016 og hún er það vart nú nema himn­arnir fari að hrynja yfir mig.

Ég vil því spyrja í fyrsta lagi: Mun ráð­herra beita sér fyrir mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi? Í öðru lagi: Mun hún beita sér fyrir tíma­bundnum samn­ingum líkt og hennar nálgun var í þverpóli­tísku sátta­nefnd­inni árið 2017? Og í þriðja lagi: Hver er skoðun ráð­herr­ans á kerf­inu? Hvar ætlar hún að beita sér fyrir breyt­ingum í þágu þjóð­ar­innar, í þágu þess að við sjáum aukna sann­girni og rétt­læti þegar kemur að fisk­veiði­auð­lind þjóð­ar­innar?“ spurði hún.

Vill auka gagnsæi í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja

Svandís svar­aði og sagði að hún hefði setið í emb­ætti sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra í sjö vikur en að Þor­gerður Katrín hefði verið í því emb­ætti fyrir nokkrum árum í all­nokkra mán­uði. Hún sagði að það væri rétt að hún hefði setið í nefnd sem ætlað var að fara yfir fisk­veiði­stjórn­ar­kerfið og leggja fram til­lögur til úrbóta.

„Ekki vannst tími til að gera það á þeim tíma, en þau sjón­ar­mið sem ég hélt til haga við það borð eru þau sjón­ar­mið sem ég held enn til haga og mun gera, meðal ann­ars við­horf sem ekki fóru mjög hátt við borðið í þeirri nefnd, sem er krafan um auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá. Það var mín afstaða þá og er enn að það er mik­il­vægt að það ákvæði sé í grunn­lög­gjöf íslenska rík­is­ins, þannig að það sé algjör­lega á hreinu á hverju það hvílir.

Mínar vænt­ingar standa til þess að við getum sam­mælst um til­teknar breyt­ingar sem lúta sér­stak­lega að því að auka gagn­sæi í rekstri fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, og sér­stak­lega stærstu fyr­ir­tækja lands­ins, vegna þess að sú sam­þjöppun sem átt hefur sér stað er ekki sann­gjörn. Hún er ekki rétt­lát og hún er ekki í sam­ræmi við vænt­ingar sam­fé­lags­ins um það hvernig þess­ari atvinnu­grein á að vera fyrir komið.“

Svandís sagði að meta þyrfti árangur af atvinnu- og byggða­kvóta og strand­veiðum. „Við þurfum að kanna hvort það fyr­ir­komu­lag, sem var reyndar komið á lagg­irnar í tíð Vinstri grænna í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu, hafi sann­ar­lega stutt atvinnu­líf á lands­byggð­inni.“

Skiptir máli að fá skoðun ráðherrans

Þor­gerður Katrín kom í pontu í annað sinn og sagði að það skipti engu máli hversu lengi ráð­herra væri í rík­is­stjórn, hann hefði alltaf skoðun á mál­inu. „Og það skiptir máli að við fáum að heyra hverjar skoð­anir hæst­virts ráð­herra eru á þessu.“

Hún sagði að henni sýnd­ist á öllu að það væri að ein­hverju leyti um sýnd­ar­mennska að ræða til að halda rík­is­stjórn­inni saman því að fyr­ir­staðan til rétt­látra breyt­inga væru þeir flokkar sem eru í rík­is­stjórn með VG, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

„Við sáum þetta síð­ast þegar auð­linda­á­kvæði stjórn­ar­skrár á síð­asta kjör­tíma­bili var rætt. Þegar við ræddum fyr­ir­komu­lag veiði­gjalda, það mátti engu breyta. Kerfi frekar gert flókið og lítt gegn­sætt. Og síðan nátt­úru­lega dæma­lausan felu­leik stjórn­ar­innar varð­andi skýrsl­una góðu um eigna­tengsl útgerð­ar­innar í íslensku atvinnu­lífi. Þannig að ég segi nú bara: Hvernig væri nú að setja þjóð­ina í fyrsta sæti þegar við komum að því að skoða breyt­ingar á sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu.“

Greinir á um ágæti markaðslausna

Svandís svar­aði í annað sinn og sagði að hún hefði aldrei sér­stak­lega verið þeirrar skoð­unar að mark­að­ur­inn væri leiðin til að leysa allan vanda.

„Og þar greinir okkur senni­lega á, mig og hátt­virtan þing­mann sem kemur kirfi­lega úr hægr­inu í íslenskum stjórn­málum og telur að mark­aðs­lausnir séu yfir­leitt rétta leiðin vegna þess að ég tel að það sé mjög mik­il­vægt að við höfum fyrst og fremst að leið­ar­ljósi heild­ar­hags­muni sam­fé­lags­ins og þá ekki bara byggð­anna í land­inu heldur ekki síður umhverf­is­sjón­ar­miðin. Sjálfbær nýt­ing auð­lind­anna og hags­munir Íslands á alþjóða­vett­vangi að því er varðar hafið, hvort sem þar eru umhverf­is­sjón­ar­miðin, nýt­ing­ar­sjón­ar­miðin eða utan­rík­is­sjón­ar­miðin. Þetta eru mjög mik­il­vægir þættir og verða und­ir­staða minna ákvarð­ana í þessu ráðu­neyti og ég treysti því að hátt­virtur þing­maður og for­maður Við­reisnar, að mér fylgi góðar óskir frá henni í því verk­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár