Samkeppniseftirlitið samþykkir sölu á innviðum Sýnar

Sýn hefur nú fengið vil­yrði frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu um sölu á fjar­skipta­innviðum sínum til erlendra fjár­festa.

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar.
Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar. Mynd: Sýn

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur gefið heim­ild fyrir sölu á fjar­skipta­innviðum sínum til Digital Bridge Group Inc. sem er sjóður í stýr­ingu banda­ríska fram­taks­sjóðs­ins Digital Colony. Sýn greindi frá sam­þykk­inu með til­kynn­ingu á vef Kaup­hall­ar­innar í dag.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni telur Sam­keppn­is­eft­ir­litið ekki for­sendur til að aðhaf­ast meira í mál­inu, en Sýn hyggst ætla að leigja aftur inn­við­ina, sem inni­halda meðal ann­ars síma­möstur, frá kaup­end­unum.

Ríkisstjórnin fylgist með innviðasölu

Líkt og Kjarninn hefur áður greint frá hefur þjóðar­ör­ygg­is­ráð fundað um sölu íslenskra fjar­skipta­fyr­ir­tækja á eigin innviðum, en að mati ráðs­ins er full ástæða til að fylgj­ast með henni.

Nefnd á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vinnur nú að til­lögum að heild­stæðri lög­gjöf um fjár­fest­ingar í þýð­inga­miklum sam­fé­lags­innviðum og tengdri starf­semi vegna þjóðar­ör­ygg­is. Þess háttar lög­gjöf hefur litið dags­ins ljós í Noregi, Danmörku og Finn­landi á síð­ustu árum, auk þess sem unnið er að svip­uðum til­lögum í Svíþjóð. Búist er við því að nefndin skili til­lögum sínum í jan­úar á næsta ári.

Síminn til franskra fjárfesta

Í síð­asta mán­uði til­kynnti Síminn frá því að franska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Ardian France SA hafi gert sam­komu­lag um einka­við­ræður og helstu skil­mála í tenglsum við mögu­lega sölu á dótt­ur­fé­lag­inu Mílu. Þessi sala verður einnig háð sam­þykki yfir­valda, en Síminn seg­ist standa í við­ræðum við hið opin­bera til að tryggja að rekstur inn­viða félags­ins sam­rým­ist þjóðar­ör­ygg­is­hags­munum hér eftir sem hingað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

innviðir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár