Skýrsla: Vaðlaheiðargöng geta ekki talist einkaframkvæmd

Gerð Vaðla­heið­ar­ganga er rík­is­fram­kvæmd sem kynnt var sem einka­fram­kvæmd til að kom­ast fram hjá því að lúta for­gangs­röðun sam­göngu­á­ætl­unar. Dýrara þarf að vera í göngin en Hval­fjarð­ar­göng ef ríkið á að fá end­ur­greitt. Þetta kemur fram í úttekt­ar­skýrslu.

Ný úttekt­ar­skýrsla um gerð Vaðla­heiða­ganga, sem unnin var að beiðni rík­is­stjórn­ar­innar, kemst að þeirri nið­ur­stöðu að fram­kvæmdin geti ekki talist eig­in­leg einka­fram­kvæmd. Í raun sé hún rík­is­fram­kvæmd þótt að upp­haf­lega hefði hún ekki verið kynnt sem slík til að þurfa ekki að lúta for­gangs­röðun sam­göngu­á­ætl­unar. Frá því að lög um gerð gang­anna voru sett hafi íslenska ríkið borið meg­in­á­hættu af Vaðla­heið­ar­göngum í formi fram­kvæmda­láns til verks­ins.

Rík­is­stjórn lagði til við Alþingi í apríl síð­ast­liðnum að setja 4,7 millj­arða króna til þess að ljúka við gerð Vaðla­heið­ar­ganga. Upp­haf­lega stóð til að rík­is­sjóður myndi lána 8,7 millj­arða króna til verk­efn­is­ins en sú upp­hæð dugði ekki. Þegar fyrir lá að ríkið þurfti að setja meira fé í fram­kvæmd­ina til að hægt yrði að ljúka henni var sam­þykkt í rík­is­stjórn að gera úttekt á verk­efn­inu og því sem fór úrskeiðis í því.

Verður að vera umtalsvert dýrara en í Hvalfjarðargöngin

Friðrik Frið­riks­son, rekstr­ar­ráð­gjafi hjá Advance, var feng­inn til að vinna úttekt­ina. Hann skil­aði end­an­legri skýrslu 15. ágúst og var hún kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Helstu nið­ur­stöður hennar er að verk­efnið geti ekki talist einka­fram­kvæmd heldur sé það í raun rík­is­fram­kvæmd sem hafi verið kynnt með öðrum hætti til að kom­ast á legg á undan öðrum verk­efnum sem voru ofar á sam­göngu­á­ætlun.

Skýrslu­höf­undur kemst einnig að þeirri nið­ur­stöðu að frek­ari rann­sóknir hefðu ekki dregið úr fram­kvæmda­á­hættu og telur mögu­legt að lán rík­is­sjóðs geti inn­heimst innan skyn­sam­legs láns­tíma, þótt enn sé tölu­verð óvissa um umferð­ar­þróun og greiðslu­vilja þeirra sem munu nýta sér göngin, en rukkað verður fyrir notkun þeirra. Umferð­ar­aukn­ing um Vík­ur­skarð hafi verið 50 pró­sent meiri en spá frá 2011 gerði ráð fyrir og það bæti rekstr­ar­horfur. Í skýrsl­unni segir: „Ljóst er að gjald­skrá Vaðla­heið­ar­ganga verður að vera tals­vert hærri en í Hval­firði til þess að end­ur­heimtur lána að fullu séu raun­hæfar, en gjald­skrá Hval­fjarð­ar­ganga hefur verið nán­ast óbreytt frá upp­hafi.“

Átti að vera aðlaðandi fyrir fjárfesta

Íslenska ríkið ákvað á árunum 2009 og 2010 að kanna að ráð­ist yrði í gerð Vaðla­heið­ar­ganga í einka­fram­kvæmd. Leitað var til íslenskra líf­eyr­is­sjóða um að koma að fjár­mögnun verk­efn­is­ins en ekki náð­ist saman um slíkt. Því ákvað þáver­andi rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna að verk­efnið yrði fjár­magnað af rík­is­sjóði til skamms tíma en síðar yrði leitað á almennan markað að lang­tíma­fjár­mögn­un. Verk­efnið átti að verða aðlað­andi fyrir fjár­festa m.a. vegna þess að fjár­mögn­unin átti að verða rekstr­ar­lega sjálf­bær með inn­heimtu veggjalds.

Í júní 2012 sam­þykkti Alþingi svo lög um gerð jarð­ganga undir Vaðla­heiði. Í þeim fólst að rík­is­sjóður gat lánað allt að 8,7 millj­arða króna til verk­efn­is­ins, á því verð­lagi sem var í lok árs 2011. Vextir á lán­unum voru allt að 3,7 pró­sent og átti það fé að duga fyrir stofn­kostn­aði. Sér­stakt félag var stofnað utan um fram­kvæmd­ina, Vaðla­heið­ar­göng ehf. Meiri­hluta­eig­andi þess félags er Greið leið ehf. í eigu Akur­eyr­ar­bæj­ar, fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins KEA og Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga. Minni­hluta­eig­andi í félag­inu er Vega­gerð­in. Gert var ráð fyrir að fram­kvæmdum yrði lokið í árs­lok 2016 og að ganga­gröftur myndi klár­ast í sept­em­ber 2015.

Mikil vand­ræði hafa hins vegar orðið á meðan að á fram­kvæmd­inni hefur staðið vegna erf­iðra jarð­laga og inn­rennsli á bæði heitu og köldu vatni. Betur hefur gengið að und­an­förnu og sam­kvæmt minn­is­blaði sem Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram í rík­is­stjórn í apríl síð­ast­liðnum var búið að klára um 97 pró­sent af greftri gang­anna í lok mars.

Rík­is­stjórn sam­þykkir frek­ari lán­veit­ingar

Í mars var greint frá því að það vant­aði umtals­vert fé til að klára gerð Vaðla­heið­ar­ganga. Bene­dikt sagði þá að hann myndi beita sér fyrir því að ríkið myndi lána meira fé í fram­kvæmd­ina en að hann teldi ekki úti­lokað að eig­endur Greiðrar leiðar kæmu að slíkri fjár­mögn­un. Þeir höfn­uðu því hins vegar algjör­lega, en þeir hafa þegar lagt fram 236 millj­ónir króna í eigið fé inn í félag­ið.

Þess vegna ákvað rík­is­stjórnin að ríkið myndi hækka láns­heim­ild Vaðla­heið­ar­ganga um allt að 4,7 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

innviðir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár