Uppsöfnuð viðhaldsþörf vegakerfisins metin yfir 450 þúsund krónur á hvern Íslending

Stærstur hluti upp­safn­aðrar við­halds­þarfar inn­viða á Íslandi er í vega­kerf­inu, eða um 160-180 millj­arðar króna. Í nýrri skýrslu frá Samtökum iðn­að­ar­ins eru stjórn­völd sögð þurfa að ráð­ast í frek­ari opin­berar fjár­fest­ingar en boðað hefur verið.

Vegakerfið uppfyllir víða ekki lágmarksviðmið vegna uppsafnaðrar viðhaldsþarfar, að sögn skýrsluhöfunda.
Vega­kerfið upp­fyllir víða ekki lág­mark­s­við­mið vegna upp­safn­aðrar við­halds­þarfar, að sögn skýrslu­höf­unda. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Á Íslandi eru um 26 þús­und kíló­metrar af vegum, sem sam­svarar um 40 metra veg­spotta á hvern ein­asta íbúa lands­ins. Þetta er mikið, sem helg­ast af því að Íslend­ingar eru lítil þjóð í hlut­falls­lega stóru landi. Til sam­an­burðar eru metr­arnir ein­ungis um sjö á hvern íbúa í Þýska­landi.

Upp­söfnuð við­halds­þörf í þessu víð­fema vega­kerfi Íslands er metin á um 160-180 millj­arða króna eða yfir 450 þús­und krónum á hvern 40 metra veg­spotta á Íslandi, sam­kvæmt nýrri skýrslu um inn­viði á Íslandi, sem Samtök iðn­að­ar­ins unnu í sam­starfi við Félag ráð­gjaf­ar­verk­fræð­inga.

Sam­bæri­leg skýrsla var gefin út árið 2017 og við­halds­þörfin í vega­kerf­inu hefur auk­ist tölu­vert síðan þá. Nú er við­halds­þörf vega­kerf­is­ins lang­veiga­mesti þátt­ur­inn í alls um 420 millj­arða upp­safn­aðri við­halds­þörf þeirra inn­viða lands­ins sem grein­ingin í skýrsl­unni frá SI tekur til.

Skýrslu­höf­undar meta því upp­safn­aða við­halds­þörf inn­viða lands­ins á um 14,5 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu.

Þörf á meiri opinberri fjárfestingu að mati skýrsluhöfunda

Í skýrsl­unni er sett fram ákall til stjórn­valda um að beita slag­krafti sínum enn meira en boðað hefur verið und­an­farin miss­eri. Betur má ef duga skal, segja skýrslu­höf­undar og bæta við að fyr­ir­huguð aukn­ing í opin­berri fjár­fest­ingu muni lítið bíta á þeirra upp­söfn­uðu við­halds­þörf sem skap­að­ist í kjöl­far síð­ustu nið­ur­sveiflu.

[adspot]

„Til þess að ástand inn­viða geti talist gott verður að setja enn meiri kraft í opin­bera fjár­fest­ingu í innviðum. Með fjár­fest­ingu í innviðum er fjár­fest í hag­vexti fram­tíð­ar­innar. ,“ segir í skýrsl­unni.

Vegakerfið ekki í nógu góðu standi

Sér­stakar áhyggjur eru settar fram af ástandi þjóð­vega­kerf­is­ins. Segir í skýrsl­unni að stórir hlutar þess upp­fylli ekki lág­mark­s­við­mið sem lúta að hrönun slit­lags, hjólfara­dýpt, sprungu­myndun, kantskemmdum og holu­myndun og fleiri þáttum.

„Ef fer fram sem horfir verður erfitt að upp­fylla ítr­ustu gæða­kröfur til fram­tíðar m.t.t. öryggis, aðgengis og umferð­ar­flæðis,“ segja skýrslu­höf­undar, sem sjá ekki útlit fyrir það að nægi­legu fjár­magni verði veitt til við­halds­verk­efna í þjóð­vega­kerf­inu til þess að bæta ástandið á tíma­bili núver­andi sam­göngu­á­ætl­unar. Upp­safn­aður vandi vegna end­ur­nýj­unar á bundnu slit­lagi sé veru­legur.

Fráveitur, flutningskerfið, fasteignir

Fyrir utan vega­kerfið eru ýmsir aðrir inn­viðir þar sem við­halds­þörfin er metin mikil. Talið er að hún nemi á bil­inu 50-85 millj­örðum króna hvað frá­veitu­kerfi lands­ins varðar og um 53 millj­örðum hvað flutn­ings­kerfi raf­orku varðar.

Í umfjöllun um þessa inn­viða­flokka í skýrsl­unni kemur þó fram það mat skýrslu­höf­unda að útlit sé fyrir að saxað verði á upp­safn­aða við­halds­þörf með boð­uðum fram­kvæmdum á næsta ára­tug.

Hvað fast­eignir varðar er sam­an­lögð upp­söfnuð við­halds­þörf fast­eigna í eigu hins opin­bera metin á um 71 millj­arð króna, 46 millj­arðar hjá rík­inu og 25 millj­arðar hjá sveit­ar­fé­lögum lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

innviðir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár