Uppsöfnuð viðhaldsþörf innviða 372 milljarðar króna

Samtök iðn­að­ar­ins og Félag ráð­gjafa­verk­fræð­inga hafa gefið út skýrslu um ástand inn­viða lands­ins, og metið þörf­ina á fjár­fest­ingum. Mikill upp­söfnuð þörf er á inn­viða­fjár­fest­ingum.

Mikil þörf er á því að ráð­ast í inn­viða­fjár­fest­ingar hér á landi, en upp­söfnuð við­halds­þörf fjár­fest­inga í þeim er metin 372 millj­arðar króna, eða sem nemur um 11 pró­sentum af heild­ar­end­urstofn­virði inn­viða í land­inu.

Til þeirra telj­ast meðal ann­ars hafnir, flug­vellir, vegir, orku­mann­virki, veitu­kerfi, úrgangs­mál og fast­eignir í eigu ríkis og sveit­ar­fé­laga.

Þetta kemur fram í viða­mik­illi skýrslu Samtaka iðn­að­ar­ins og Félags ráð­gjafa­verk­fræð­inga, þar sem fjallað er um inn­viði í land­inu og stöðu ein­stakra þátta. Hún verður kynnt á fundi í Hörpu í dag. Í for­mála skýrsl­unnar segir dr. Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, að nú sé réttur tíma­punktur til að huga að stór­felldum inn­viða­fjár­fest­ingum. „Fjár­fest­ing í dag er hag­vöxtur á morgun,“ segir Sigurður, en með skýrsl­unni vilja SI og Félag ráð­gjafa­verk­fræð­inga stuðla að umræðu um mik­il­vægi inn­viða­fjár­fest­inga í land­inu.

Heild­ar­end­urstofn­virði ofan­greindra inn­viða er áætlað 3.493 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar stóðu heild­ar­eignir líf­eyr­is­sjóða lands­manna í 3.725 millj­örðum króna í lok júlí 2017.

Með end­urstofn­virði er átt við kaup­verð eða kostn­að­ar­verð sam­bæri­legra inn­viða með sömu fram­leiðslu og/eða þjón­ustu­getu, að því er segir í skýrsl­unni. „Færa má rök fyrir því að virði þess­ara eigna fyrir sam­fé­lagið sé mun meira þegar tekið er til­lit til þess hvað þær leggja til verð­mæta­sköp­unar efna­hags­lífs­ins. Af þessu má ljóst vera að veru­leg verð­mæti eru bundin í innviðum hag­kerf­is­ins. Af ein­stökum innviðum er end­urstofn­virðið hæst í orku­vinnslu (850–900 millj­arðar króna), vega­gerð (870–920 millj­arðar króna), fast­eignum ríkis og sveit­ar­fé­laga (440 millj­arðar króna), orku­flutn­ingum (320 millj­arðar króna) og flug­völlum (240–280 millj­arðar króna). Lægst er end­urstofn­virðið í úrgangs­málum (35–40 millj­arðar króna),“ segir í skýrsl­unni.

Að með­al­tali fá inn­viðir sem skýrslan nær til ástands­ein­kunn­ina 3,0 en ein­kunn­ar­gjöfin er á bil­inu 1 til 5 þar sem 1 er lægsta ein­kunn og 5 sú hæsta.

Miðað við þessa ein­kunn er staða inn­viða að með­al­tali við­un­andi en ekki góð. „Ein­kunnin segir að búast megi við umtals­verðu við­haldi til þess að halda uppi starf­semi þess­ara inn­viða og að nauð­syn­legt verði að leggja í fjár­fest­ingar í þeim til fram­tíðar litið,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár