Síminn vill selja Mílu til franskra fjárfesta

Síminn hefur und­ir­ritað sam­komu­lag við franskt sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki um einka­við­ræður um sölu Mílu, sem sér um rekstur og upp­bygg­ingu fjar­skipta­inn­viða hér á landi.

Eignarhald á símamöstrum þriggja stærstu fjarskiptafyrirtækjanna hefur verið að færast úr landi á síðustu mánuðum.
Eign­ar­hald á síma­möstrum þriggja stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna hefur verið að fær­ast úr landi á síð­ustu mán­uðum. Mynd: EPA

Franska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Ardian France SA hefur gert sam­komu­lag við Símann um einka­við­ræður og helstu skil­mála í tengslum við mögu­lega sölu Símans á dótt­ur­fé­lagi sínu, Mílu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef Kaup­hall­ar­innar í morgun.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni hyggj­ast bæði Síminn og Ardian að vinna við að ljúka samn­inga­við­ræðum og skrifa undir skuld­bind­andi samn­ing eins fljótt og auðið er. Ef af verður mun franska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið bjóða íslenskum líf­eyr­is­sjóðum aðkomu að kaup­unum.

Innviðir í eigu erlendra fjárfesta

Ef kaupin ganga í gegn gæti farið svo að inn­viðir þriggja stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tækja lands­ins verði í eigu erlendra fjár­festa. Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður keypti banda­ríska fjár­fest­ing­ar­fé­lagið PT Capital Advisors hlut Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar í Nova í síð­asta mán­uði og á því nær allt hlutafé félags­ins núna.

Með þessum eign­ar­hlut hafa PT Capi­tal Advis­ors því eign­ast helm­ings­hlut í Senda­fé­lag­inu ehf. sem er í eigu Nova og Sýnar og sér um fjar­skipta­inn­viði félag­anna beggja. Nova hefur einnig und­ir­ritað kaup­samn­ing um kaup banda­ríska fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Colony Capi­tal Inc. á öllu hlutafé í öðru dótt­ur­fé­lagi sínu, Nova Senda­stað­ir, sem sér um senda­staði, síma­möstur og símat­urna félags­ins. Kaupin eru nú til yfir­ferðar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Í lok mars til­kynnti Sýn einnig að fyr­ir­tækið hefði skrifað verið undir samn­ing um sölu og end­ur­leigu á síma­möstrum og fjar­skipta­turnum félags­ins. Einnig var minnst á samn­ing­inn í síð­asta árs­hluta­upp­gjöri Sýnar, en hann á eftir að fá sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Fjár­fest­arnir voru ekki nefnd­ir, en Við­skipta­blaðið hafði áður greint frá því að um væri að ræða sjóð í stýr­ingu banda­ríska fram­taks­sjóðs­ins Digi­tal Colony.

Síminn hugað að sölu Mílu lengi

Um svipað leyti og Sýn greindi frá aðskiln­aði inn­viða og þjón­ustu til­kynnti Sím­inn flutn­ing eigin far­síma­dreifi­kerfis og IP-­nets til Mílu, inn­viða­hluta félags­ins. Þessi flutn­ingur myndi skerpa á hlut­verki Sím­ans sem þjón­ustu­fyr­ir­tækis og Mílu sem inn­viða­fyr­ir­tæk­is, sam­kvæmt fjár­festa­kynn­ingu. Félagið bætti einnig við að verið væri að skoða hvort aðskilja ætti fjár­mögnun Mílu frá fjár­mögnun Sím­ans.

[links]Kjarn­inn greindi svo frá því í fyrra­haust að fjár­festar höfðu lagt fram óform­legar fyr­ir­spurnir til Sím­ans um mögu­leg kaup á Mílu. Hins vegar sagði fyr­ir­tækið að engar ákvarð­anir hefðu verið teknar um söl­una.

Í síð­asta árs­hluta­upp­gjöri Sím­ans kemur einnig fram að fjár­fest­ing­ar­bank­inn Laz­ard ásamt Íslands­banka hafi verið ráðnir til að ráð­leggja um stefnu­mark­mið og fram­tíð­ar­mögu­leika Mílu. Einnig kæmi til greina að skoða breyt­ingar á eign­ar­haldi Mílu.

Full ástæða til að fylgjast með innviðasölu

Líkt og Kjarninn greindi frá í síð­asta mán­uði hefur þjóðar­ör­ygg­is­ráð fundað um sölu fyr­ir­tækj­anna á eigin innviðum, en að mati ráðs­ins er full ástæða til að fylgj­ast með henni.

Ráðið telur einnig mik­il­vægt að greina áhættu­þætti sem tengj­ast þess­ari sölu, en það hefur tjáð sig um álita­mál tengd henni í nýlegum skýrslum. Samkvæmt ráð­inu er nauð­syn­legt út frá þjóðar­ör­ygg­is­sjón­ar­miði og alls­herj­ar­reglu að rýna í fjár­fest­ingu í mik­il­vægum innviðum sam­fé­lags­ins, ekki síst erlendri fjár­fest­ingu. Þeirra á meðal eru inn­viðir í net- og fjar­skipta­kerfi, en ráðið telur að hætta geti skap­ast ef eig­endur geta haft áhrif á virkni þeirra.

Samkvæmt til­kynn­ingu Símans mun fyr­ir­tækið, ásamt Ardian, vinna með hinu opin­bera að upp­lýs­inga­gjöf og örygg­is­málum sem tryggja hags­muni lands­manna. Þá hafa und­ir­bún­ings­við­ræður að slíku fyr­ir­komu­lagi þegar haf­ist um að tryggja að rekstur inn­viða félags­ins sam­rým­ist þjóðar­ör­ygg­is­hags­munum hér eftir sem hingað til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár