„Þetta er ekki stríð en þetta er bardagi“

Frakkar ætla að grípa til refsi­að­gerða gegn Bretum í byrjun næsta mán­aðar ef ekki semst um frek­ari leyfi til veiða þeirra innan breskrar lög­sögu. Hald var í dag lagt á breskan tog­ara sem var að veiða innan frönsku lög­sög­unnar.

Breskur togari við veiðar á Ermarsundi.
Breskur tog­ari við veiðar á Ermar­sundi. Mynd: EPA

Frönsk yfir­völd lögðu í dag hald á berskan tog­ara sem var við veiðar innan lög­sögu þeirra án leyfis að þeirra sögn. Þau hafa gefið út við­vörun um sam­bæri­legar aðgerðir gegn öðrum tog­ara en málið er til komið vegna deilna í kjöl­far Brexit.

Yfirvöld í Frakk­landi eru ævareið yfir því að Bretar hafi neitað mörgum frönskum sjó­mönnum um leyfi til veiða innan breskrar fisk­veiði­lög­sögu sem Frakkar telja sig eiga rétt á. Náist ekki sættir í þessum málum ætla Frakkar að grípa til aðgerða frá 2. Nóvember, m.a. því að auka tolla­eft­ir­lit með breskum varn­ingi sem fluttur er inn til Frakk­lands. Í frétt Reuters um málið segir að slíkar tak­mark­anir gætu valdið efna­hags­legum skaða á Bret­landseyjum ofan á vanda sem þegar er þar til staðar, m.a. skorti á fólki til margra starfa og hækk­andi orku­verðs.

[adspot]

Frakkar hafa svo hótað því að grípa til enn frek­ari refsi­að­gerða ef þær fyrstu hreyfa ekki við Bretum og hafa þá ekki úti­lokað að þær teng­ist end­ur­skoðun á flutn­ingi raf­magns yfir Ermar­sundið.

„Þetta er ekki stríð en þetta er bar­dagi,“ sagði Annick Girardin sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Frakk­lands í útvarps­við­tali.

Bresk stjórn­völd segja að ef Frakkar ætli sér að fara í hefnd­ar­að­gerðir verði þeim mætt með „við­eig­andi“ hætti.

„Hótanir Frakka eru von­brigði og í engu sam­ræmi við umtals­efnið og ekki það sem við áttum von á frá nánum banda­manni,“ hefur Reuters eftir tals­manni bresku rík­is­stjórn­ar­innar. Frá stjórn­inni hefur hins vegar ekk­ert enn heyrst í morgun eftir að lagt var hald á togar­ann.

Reuters hefur eftir fram­kvæmda­stjóra sam­taka breskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja að veiði­leyfi í lög­sög­unni væru gefin út í takti við skil­mála samn­inga sem gerðir voru eftir að Bretar fóru út úr Evr­ópu­sam­band­inu um síð­ustu ára­mót. Fram­kvæmda­stjór­inn vill meina að hót­anir Frakka séu póli­tísks eðlis þar sem þar fari senn fram for­seta­kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár