Ekki búið að taka ákvörðun um rannsókn á yfirráðum Samherja yfir Síldarvinnslunni

Virði hluta­bréfa í Síld­ar­vinnsl­unni hefur auk­ist um 50 millj­arða króna frá skrán­ingu og um 30 pró­sent á síð­ustu vikum. Rúmur helm­ingur hluta­fjár er í eigu Samherja og félaga sem frum­mat sýndi að færu með sam­eig­in­leg yfir­ráð í Síld­ar­vinnsl­unni.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti þá nið­ur­stöðu frum­mats síns í febr­úar síð­ast­liðnum að til staðar væru vís­bend­ingar um um yfir­ráð Sam­herja eða sam­eig­in­leg yfir­ráð Sam­herja og tengdra félaga yfir Síld­ar­vinnsl­unni.

Síðan að sú nið­ur­staða var birt hefur, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, verið kallað eftir gögnum frá stjórn­völdum, Samherja, Síld­ar­vinnsl­unni og öðrum tengdum aðilum vegna máls­ins. Sú gagna­öflun hafi gengið vel en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort ráð­ist verði í form­lega rann­sókn á mál­inu.

Stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og félagið Kjálka­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­linga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Greni­vík. Þar er meðal ann­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­son, sem var þar til fyrir skemmstu annar for­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­skyldu­böndum. Auk þess á Kald­bak­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­ar­halds­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­ur.

[adspot]Að mati eft­ir­lits­ins voru veru­leg tengsl milli stórra hlut­hafa í Síld­ar­vinnsl­unni og þrír af fimm stjórn­ar­mönnum í Síld­ar­vinnsl­unni á þeim tíma voru skip­aðir af eða tengdir Sam­herja og Kjálka­nesi. Einn þeirra er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, sem er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unn­ar.

Síldarvinnslan skráð á markað

Frá því að frummatið var birt í ákvörðun vegna sam­runa dótt­ur­fé­lags Síld­ar­vinnsl­unnar og útgerð­ar­fé­lags­ins Bergs hafa þær vend­ingar átt sér stað að Síld­ar­vinnslan var skráð á markað. Það gerð­ist í maí síð­ast­liðnum.

Þá seldu stærstu hlut­haf­arnir í Síld­ar­vinnsl­unni 29,3 pró­sent hlut fyrir 29,7 millj­arða króna. Mest seldu Samherji og Kjálka­nes. Hvort félag fyrir sig seldi fyrir 12,2 millj­arða króna en Snæfugl seldi einnig fyrir um millj­arð króna. Kjálka­nes hefur síðan selt enn stærri hlut fyrir um tvo millj­arða króna og á nú 17,4 pró­sent eign­ar­hlut.

Sam­herji er áfram stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar þrátt fyrir að selja ofan­greindan hlut í henni með 32,6 pró­sent eign­ar­hlut. Þor­steinn Már er enn stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Snæfugl á svo 4,3 pró­sent hlut þannig að þessir þrjú félög, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi vera með yfir­ráð í Síld­ar­vinnsl­unni, eiga enn 54,37 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni. Aðrir stórið eig­endur eru Sam­vinnu­fé­lag útgerð­ar­manna á Nes­kaups­stað (10,97 pró­sent) og Gildi líf­eyr­is­sjóður (10,2 pósent).

Hagnaðist um 5,8 milljarða á fyrri hluta árs

Rekstr­ar­tekjur Síld­ar­vinnsl­unnar á fyrri hluta árs­ins 2021 voru um 5,8 millj­arðar króna. Hagn­aður félags­ins var 3,9 millj­arðar króna og skýrist að stórum hluta af því að félag utan um stóran hlut í trygg­inga­fé­lag­inu Sjóvá var fluttur til hlut­hafa hennar með arð­greiðslu í aðdrag­anda skrán­ingar Síld­ar­vinnsl­unnar á markað fyrr á árinu. Bók­fært verð félags­ins, SVN eigna­fé­lags, var 3,7 millj­arðar króna en verð­mæti hans á arð­greiðslu­degi var 2,9 millj­örðum krónum meira. Sá munur bók­færð­ist því sem hagn­að­ur.

[adspot]EBITDA-hagn­aður Síld­ar­vinnsl­unn­ar, hagn­aður fyrir afskrift­ir, skatta og fjár­magns­gjöld, var þó einnig hár eða 1,6 millj­arðar króna. Það þýðir að 28 pró­sent af rekstr­ar­tekjum sat eftir sem slíkur hagn­að­ur­. Loðnu­veið­ar, sem höfðu ekki átt sér stað tvö ár á und­an, vigt­uðu þungt í þeirri afkomu.

Markaðsvirðið rauk upp um tugi milljarða

Eignir Síld­ar­vinnsl­unnar eru metnar á sam­tals 74,4 millj­arðar króna, skuldir 26,2 millj­arða króna og eigið fé sam­stæð­unnar var 48,2 millj­arðar króna.

Verð­mætasta bók­færða eignin sem Síld­ar­vinnslan heldur á eru afla­heim­ild­ir. Þær eru bók­færðar á 34 millj­arða króna. Ef miðað er við mark­aðsvirði kvóta, út frá síð­ustu gerðu við­skiptum með afla­heim­ildir sem dótt­ur­fé­lag Síld­ar­vinnsl­unnar gerði, þá er ætti mark­aðs­verð allra afla­heim­ilda sem úthlutað hefur verið að vera 1.195 millj­arðar króna. Miðað við Síld­ar­vinnslan og dótt­ur­fé­lög hennar haldi á 7,7 pró­sent af úthlut­uðum kvóta, sam­kvæmt síð­ustu birtu upp­lýs­ingum Fiski­stofu, þá má ætla að mark­aðsvirði hans sé 92 millj­arðar króna. Eða 58 millj­örðum krónum yfir bók­færðu virð­i.

Bréf í Síld­ar­vinnsl­unni hafa hækkað gríð­ar­lega í virði síð­ast­liðnar vikur. Frá 23. sept­em­ber hefur heild­ar­mark­aðsvirði félags­ins auk­ist um 30 pró­sent, eða 35,4 millj­arða króna. Ástæðan er fyrst og síð­ast talin vera stór­auk­inn loðnu­kvóti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samkeppni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár