Segja óháða kunnáttumanninn gegna „mikilvægu hlutverki“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að þekkt sé að kostn­aður vegna óháðra kunn­áttu­manna geti verið mis­mun­andi. Lúðvík Berg­vins­son, sem gegnir þeirri stöðu vegna sam­runa Festi við N1, hefur fengið rúmar tvær millj­ónir á mán­uði í rúm tvö ár fyrir að gegna starf­inu.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Mynd: Hringbraut

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir að Lúðvík Berg­vins­son, sem skip­aður var óháður kunn­áttu­maður til að fylgj­ast með sátt vegna sam­ein­ingar N1 og Festi, hafi gegnt mik­il­vægu hlut­verki í að varpa ljósi á fram­kvæmd Festi á þeim skil­yrðum sem félagið skuld­batt sig til að fylgja. Kjarninn greindi frá því fyrr í vik­unni að kostn­aður vegna starfa Lúðvíks hafi numið um 56 millj­ónum króna frá októ­ber 2018 og út síð­asta ár. Það gera rúm­lega tvær millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali.

Í til­kynn­ingu sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið birtir á heima­síðu sinni í dag segir að Lúðvík hafi, í sam­ræmi við starfs­skyldur sínar, gert eft­ir­lit­inu grein fyrir mögu­legum brotum á sátt­inni og að þau brot séu nú til rann­sóknar.

Í skýrslu stjórnar Festi, sem stjórn­ar­for­mað­ur­inn Þórður Már Jóhann­es­son flutti á aðal­fundi félags­ins fyrr í vik­unni, sagði að sam­starfið við Lúð­vík hafi ekki gengið eins vel og Festi hefði kosið og að félag­inu hafi „á tíðum þótt skorta á að leið­bein­ingar kunn­áttu­manns væri með þeim hætti sem vænta mætti.“ Festi ætlar að óska eftir breyt­ingum á aðkomu Lúð­víks að sátt félags­ins við Sam­keppn­is­eft­ir­litið en skip­ana­tími hans á að óbreyttu ekki að renna út fyrr en í októ­ber 2023.

Tímafrestur liðnir

Umrædd sátt var und­ir­rituð síðla árs 2018 og heim­il­aði Festi, sem rak Krón­una og fleiri mat­vöru­versl­an­ir, Elko og vöru­hót­elið Bakk­ann að sam­ein­ast eld­neyt­is­ris­anum N1. Í sátt­inni fólst meðal ann­ars að selja átti fimm sjálfs­af­greiðslu­stöðvar til nýrra, óháðra aðila á elds­neyt­is­mark­aði. Um var að ræða þrjár sjálfs­af­greiðslu­stöðvar undir merkjum Dæl­unnar við Fells­múla og Staldrið í Reykja­vík og Hæð­ar­smára 8 í Kópa­vogi, og tvær stöðvar undir merkjum N1 við Salarveg í Kópa­vogi og Vatna­garða í Reykja­vík. Þá átti sam­einað félag að selja verslun Kjar­vals á Hellu.

Festi seldi bens­ín­stöðv­arnar fimm til Ein­ars Arnar Ólafs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Skelj­ungs og umsvifa­mik­ils fjár­fest­is, og hann seldi þær síðar áfram til Skelj­ungs.

Þrí­vegis hefur verið reynt að selja verslun Kjar­vals á Hellu, en án árang­urs.

[adspot]Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir meg­in­á­stæður þess tví­þættar. „Annars vegar kom í ljós að Festi hafði ekki tryggt sér heim­ild til að fram­selja til­tekin leigu­rétt­indi að hús­næði á svæð­inu. Við und­ir­bún­ing sátt­ar­innar upp­lýsti Festi ekki Sam­keppn­is­eft­ir­litið um að félagið skorti full­nægj­andi rétt­indi að þessu leyti. Hins vegar hefur félagið í a.m.k. eitt skipti gert sölu­samn­ing við aðila sem upp­fyllti ekki skil­yrði um að vera óháður keppi­nautur sem myndi veita Festi sam­keppn­is­legt aðhald. Ef kaup­andi er óburð­ugur eða tengdur Festi nær þetta skil­yrði ekki mark­miði sínu.“

Af þessum sökum hafi Festi ekki staðið við þær skuld­bind­ingar sem félagið hafði und­ir­geng­ist að eigin frum­kvæði og segir Sam­keppn­is­eft­ir­litið að tíma­frestir sem Festi hafði til að selja verslun Kjarvals á Hellu séu nú liðnir.

Næsta skref sem Festi hafi skuld­bundið sig til að fylgja er að stíga frá sölu­til­raunum á versl­un­inni á Hellu og fall­ast á að óháður aðili með fullt umboð selji til­teknar eignir Festi til að tryggja það að mark­mið sátt­ar­innar nái fram. Nákvæm útfærsla á þessu úrræði er hins vegar háð trún­aði og því ekki greint frá henni í til­kynn­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Benda á að Festi stakk sjálft upp á Lúðvík

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir enn fremur að störf kunn­áttu­manns­ins Lúðvíks hafi lotið að fjöl­mörgum öðrum þáttum en sölu versl­unar á Hellu og bendir á að hann hafi verið skip­aður eftir að Eggert Þór Krist­ó­fers­son, þá for­stjóri N1 og nú for­stjóri Festi, hafi til­nefnt Lúðvík og tvo aðra í hlut­verkið.

[links]Að und­an­gengnu hæf­is­mati féllst Sam­keppn­is­eft­ir­litið á að Lúðvík yrði falið hlut­verk óháða kunn­áttu­manns­ins þar sem hinir ein­stak­ling­arnir sem Festi til­nefndi upp­fylltu ekki skil­yrði um óhæði gagn­vart Festi og eft­ir­lits­verk­efnum sátt­ar­innar.

Þekkt sé í sam­keppn­is­málum að kostn­aður af störfum kunn­áttu­manna geti verið mis­mun­andi, en það hefur verið gagn­rýnt af stjórn­endum Festi að kostn­aður vegna kunn­áttu­manns sem skip­aður var vegna sam­runa Haga og Olís sé ein­ungis brot af kostn­að­inum sem hlot­ist hefur vegna starfa Lúðvíks.

Eft­ir­litið segir að kostn­að­ur­inn ráð­ist meðal ann­ars af „því hvort og hvernig við­kom­andi fyr­ir­tæki fara að þeim skuld­bind­ingum sem þau hafa lofað að hlíta. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur gefið fyr­ir­tækjum leið­bein­ingar um kostn­að­arað­hald með kunn­áttu­mönnum eða eft­ir­lits­nefndum sem starfa sam­kvæmt sáttum við fyr­ir­tæki. Þar kemur m.a. fram að fyr­ir­tækjum sé rétt að sýna kunn­áttu­mönnum kostn­að­arað­hald með svip­uðum hætti og með annarri aðkeyptri þjón­ustu, án þess að sjálf­stæði starfs­ins sé stefnt í hættu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samkeppni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár