Kostnaður Festi vegna óháðs kunnáttumanns 56 milljónir króna á rúmum tveimur árum

Festi ætlar að óska eftir breyt­ingum á aðkomu Lúðvíks Berg­vins­sonar, sem skip­aður var sem óháður kunn­áttu­maður vegna sáttar við Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Skipun Lúðvíks á að gilda fram í októ­ber 2023.

Lúðvík Bergvinsson var skipaður sem óháður kunnáttumaður vegna sáttar Festi við Samkeppniseftirlitið.
Lúðvík Berg­vins­son var skip­aður sem óháður kunn­áttu­maður vegna sáttar Festi við Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Mynd: Skjáskot/RÚV

Í skýrslu stjórnar Festi hf., sem Þórður Már Jóhann­es­sonar stjórn­ar­for­maður flutti á aðal­fundi félags­ins í dag, kom fram að kostn­aður við óháðan kunn­áttu­mann, lög­mann­inn Lúðvík Berg­vins­son, vegna sáttar við Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem gerð var vegna sam­runa Festi og N1 árið 2018 sé kom­inn upp í 55,6 millj­ónir króna. Hann var 7,2 millj­ónir króna frá októ­ber 2018 og út það ár, 33,1 millj­ónir króna árið 2019 og 15,3 millj­ónir króna í fyrra.

Til við­bótar hafa reikn­ingar lög­fræð­inga Festi vegna sátt­ar­innar verið 24,4 millj­ónir króna á tíma­bil­inu og sam­an­lagður kostn­aður félags­ins frá upp­hafi sáttar því 80 millj­ónir króna.

Þessi kostn­aður er, sam­kvæmt skýrslu stjórnar, „veru­lega hærri en vænt­ingar voru til um“ og bent á að kostn­aður Haga af óháðum kunn­áttu­manni sem skip­aður var vegna sam­runa þess félags við Olís sé brot af þeim kostn­aður sem Festi hefur borið. Þá hefði verið búist við því að draga myndi úr kostn­að­inum vegna starfa Lúðvíks þegar liði á skip­un­ar­tíma hans, en þær vænt­ingar hafi ekki gengið eftir.

Stjórn Festi segir að sam­starfið við Lúðvík hafi ekki gengið eins vel og Festi hefði kosið og að félag­inu hafi „á tíðum þótt skorta á að leið­bein­ingar kunn­áttu­manns væri með þeim hætti sem vænta mætti.

Festi mun í fram­haldi aðal­fund­ar­ins sem fór fram í dag óska eftir breyt­ingum á aðkomu Lúðvíks að sátt félags­ins við Sam­keppn­is­eft­ir­litið en skip­ana­tími hans á að óbreyttu ekki að renna út fyrr en í októ­ber 2023.

Þrívegis reynt að selja verslunina á Hellu

Umrædd sátt var und­ir­rituð síðla árs 2018 og heim­il­aði Festi, sem rak Krónuna og fleiri mat­vöru­versl­anir, Elko og vöru­hót­elið Bakkann að sam­ein­ast eld­neyt­is­ris­anum N1. Í sátt­inni fólst meðal ann­ars að selja átti fimm sjálfs­af­greiðslu­stöðvar til nýrra, óháðra aðila á elds­neyt­is­mark­aði. Um var að ræða þrjár sjálfs­af­greiðslu­stöðvar undir merkjum Dælunnar við Fells­múla og Staldrið í Reykja­vík og Hæð­ar­smára 8 í Kópavogi, og tvær stöðvar undir merkjum N1 við Salarveg í Kópavogi og Vatna­garða í Reykja­vík. Þá átti sam­einað félag að selja verslun Kjarvals á Hellu.

Festi seldi bens­ín­stöðv­arnar fimm til Einars Arnar Ólafs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Skelj­ungs og umsvifa­mik­ils fjár­festis, og hann seldi þær síðar áfram til Skelj­ungs.

Þrívegis hefur verið reynt að selja verslun Kjarvals á Hellu. Í fyrstu tvö skiptin sam­þykktu bæði óháði kunn­áttu­mað­ur­inn og Sam­keppn­is­eft­ir­litið söl­una en hún gekk ekki eftir af öðrum ástæðum. Síðasta sölu­ferli hennar lauk svo í des­em­ber í fyrra þegar gengið var frá sölu versl­un­ar­innar til félags í eigu Sigurðar Elíasar Guð­munds­sonar. • Sam­keppn­is­eft­ir­litið, að fengnu áliti óháðs kunn­áttu­manns, heim­il­aði hins vegar ekki kaupin og hafn­aði kaup­and­anum.

[adspot]Í skýrslu stjórnar segir að leigu­samn­ingur Fesi við við Rangár­þing ytra rennur út í lok apríl og versl­un­inni verður lokað finn­ist ekki annar kaup­andi, en um er að ræða einu mat­vöru­versl­un­ina á svæð­inu.

Festi segir að mikil and­staða sé hjá bæj­ar­búum og sveit­ar­stjórn á svæð­inu við söl­una, þar sem ekki sé áhugi á að missa Kjarval úr bæj­ar­fé­lag­inu. „Í sölu­ferli versl­unar á Hellu hefur stærstu sam­keppn­is­að­ilum verið boðin versl­unin til kaups en eng­inn áhugi nema Festi greiði með söl­unni umtals­verða fjár­muni.“

Samkeppniseftirlitið rannsakar Festi

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur nú til rann­sóknar mögu­leg brot Festi á umræddri sátt, meðal ann­ars vegna tafa við sölu á eignum félags­ins.

Í frétt sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti á heima­síðu sinni í síð­ustu viku sagði að í rök­studdu áliti Lúðvíks, hins óháða kunn­áttu­manns, hefði hann kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Sigurður Elías hefði ekki upp­fyllt skil­yrði sátt­ar­innar um að vera óháður Festi og ekki í neinum tengslum við félagið. „Einnig léki vafi á um fjár­hags­legan styrk og hvata kaup­anda til þess að veita Festi umtals­vert sam­keppn­is­legt aðhald á svæð­inu líkt og sáttin áskilur. Í kjöl­far rann­sóknar og athug­unar með til­liti til fyr­ir­liggj­andi gagna komst Sam­keppn­is­eft­ir­litið að efn­is­lega sömu nið­ur­stöðu.“

Í frétt­inni segir að ef Festi tekst ekki að selja verslun Kjarvals á Hellu geri skil­yrði sátt­ar­innar ráð fyrir því að aðrar eignir félags­ins verði þess í stað seldar. „Sam­keppn­is­eft­ir­litið áréttar að mjög brýnt er að fyr­ir­tæki hlíti skil­yrðum sam­runa og að treysta megi því að sáttir í slíkum málum séu virtar. Mik­il­vægt er fyr­ir­tæki og aðilar að sam­runa­málum taki alvar­lega þau skil­yrði sem þau leggja til og sett eru fyrir sam­r­unum, ekki síður í ljósi þess að fyr­ir­tækin sjálf taka þátt í mótun þeirra. Rétt er í þessu sam­bandi að minna á að sam­runa­að­ilar lögðu umrædd skil­yrði til með það fyrir augum að efla sam­keppni á svæð­inu til hags­bóta íbúa á svæð­inu og aðra not­endur umræddrar þjón­ustu.“

Stefndi ritstjóra Viðskiptablaðsins

Við­skipta­blaðið tók Lúðvík, og hlut­verk hans sem óháðs kunn­áttu­manns, til umfjöll­unar í nafn­lausa skoð­ana­dálknum Óðni í apríl í fyrra. Þar sagði meðal ann­ars að „öll skyn­semis-og rétt­læt­is­rök virð­ast hníga að því að Festi kæri kunn­áttu­mann­inn fyrir til­hæfu­lausa reikn­inga.“

Lúðvík stefndi í kjöl­farið Trausta Haf­liða­syni, rit­stjóra og ábyrg­ar­manni Við­skipta­blaðs­ins, fyrir meið­yrði og sagði í stefnu sinni að í skrifum sínum hefði Óðinn gefið í skyn að hann hefði haft fjár­muni af Festi með ólög­mætum hætti. Hann hefði þannig gerst sekur um alvar­leg hegn­ing­ar­laga­brot og væri gefið að sök fégræðgi og spill­ingu. Krafðist Lúðvík þess að Trausti greiddi sér þrjár millj­ónir króna í bætur.

Trausti var sýkn­aður í mál­inu í febr­úar síð­ast­liðnum. Lúðvík ákvað hins vegar að áfrýja þeirri nið­ur­stöðu til Lands­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár