Árið 2005 hóf afurðastöðin Mjólka starfsemi með framleiðslu á fetaosti. Á bakvið verkefnið stóð Ólafur M. Magnússon. Skömmu síðar færði hún út kvíarnar og hóf framleiðslu á öðrum mjólkurafurðum á borð við jógúrt, sýrðum rjóma, rifnum osti, skyri og skyrtertum.
Þessi rekstur var erfiður, enda samkeppnisumhverfið í mjólkurvöruframleiðslu á Íslandi mjög á forsendum risans sem þegar var fyrir á þeim markaði, Mjólkursamsölunnar. Mjólka sameinaðist á endanum Kaupfélagi Skagfirðinga sem varð eigandi fyrirtækisins að öllu leyti.
Ólafur var þó ekki að baki dottinn. Hann stofnaði nýtt fyrirtæki, Mjólkurbúið Kú sem hóf starfsemi á árinu 2010.
Síðla árs 2012 fékk stjórnandi hjá Kú í pósti afrit reikninga frá Mjólkursamsölunni sem stílaðir voru á Mjólku, en áttu að berast til Kaupfélags Skagfirðinga, þáverandi eigenda þess félags. Kaupfélagið átti einnig 15 prósent hlut í Mjólkursamsölunni á móti Auðhumlu, stærsta eiganda hennar. Um var að ræða kreditreikninga fyrir kaupum Mjólku á hrámjólk, sem notuð er í vinnslu ýmissa mjólkurafurða og fæst nær einvörðungu hjá Mjólkursamsölunni, fyrir tímabilið 2009 til 2012.
Þegar Ólafur og aðrir hjá Kú skoðuðu reikningana sáu þeir að Kaupfélag Skagfirðinga hafði verið að fá hrámjólkina á 77,69 krónur á lítra á sama tíma og Mjólka, sem þeir neyddust síðar til að selja til Kaupfélagsins, þurfti að borga 90,74 krónur á hvern lítra. Munurinn á verðinu var um 17 prósent.
Ólafur sendi ábendingu til Samkeppniseftirlitsins með þessum upplýsingum þann 18. desember 2012. Eftirlitið hóf rannsókn og málarekstur, sem átti eftir að standa árum saman, hófst. Honum lauk endanlega í síðustu viku þegar Hæstiréttur Íslands staðfesti að Mjólkursamsalan hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína og henni var gert að greiða 480 milljónir króna í ríkissjóð vegna þessa.
Taka eitt
En dveljum aðeins við upphaf málsins. Í stefnu sem stofnendur Mjólku létu lögmann vinna í fyrra kemur fram að Mjólkursamsalan hafi fyrst borið það fyrir sig, þegar Samkeppniseftirlitið falaðist eftir útskýringum á þessum verðmun, að verðið hefði verið ákvarðað af verðlagsnefnd búvara. Það reyndist röng staðhæfing. Það sem raunverulega átti sér stað var að Mjólka var ekki látin greiða hrámjólkurverð heldur það verð sem gilti fyrir gerilsneydda nýmjólk, sem er unnin mjólkurvara.
Síðar sagði Mjólkursamsalan að mismunur á verði væri svokölluð verðtilfærsla sem væri heimil samkvæmt búvörulögum. Þessi staðhæfing var þó dregin til baka.
Samkeppniseftirlitið tók málið til skoðunar og komst að þeirri niðurstöðu 22. september 2014 að Mjólkursamsalan hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína í málinu og þar með brotið gegn samkeppnislögum. Vegna alvarleika brotsins ætti Mjólkursamsalan að greiða 370 milljóna króna sekt í ríkissjóð.
Niðurstöðunni var áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Við munnlegan málflutning fyrir henni hefði Mjólkursamsalan lagt fram áður óframkominn samning milli sín og Kaupfélags Skagfirðinga, eins eigenda sinna, og byggt málflutning sinn fyrir nefndinni á þeim samningi. Þar hélt Mjólkursamsalan því fram einfaldlega fram að aðgerðirnar hefðu verið löglegar þar sem hún og Kaupfélag Skagfirðinga hefðu verið að skipta með sér verkum í hagræðingarskyni. Ekki fengist staðist að aðilar utan þess samstarfs ættu að fá hlutdeild í þeim ábata sem af yrði.
Vegna þess að Mjólkursamsalan hafði látið undir höfuð leggjast að upplýsa um þennan samning milli sín og eins eiganda hennar, Kaupfélags Skagfirðinga, komst áfrýjunarnefndin að þeirri niðurstöðu að fella yrði fyrri úrskurð Samkeppniseftirlitsins úr gildi og rannsaka málið aftur.
Taka tvö
Sú rannsókn hófst aftur í desember 2014 og ákvörðun eftirlitsins lá svo fyrir 7. júlí 2016. Hún var sú að alls ætti Mjólkursamsalan að greiða alls 480 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna þess að fyrirtækið hafði misnotað markaðsráðandi stöðu sína og mismunað viðskiptaaðilum sínum með því að að selja hrámjólk til vinnslu mjólkurafurða á hærra verði til keppinauta en til eigin framleiðsludeildar og tengdra aðila. Í ákvörðuninni sagði að háttsemi Mjólkursamsölunnar hefði verið til þess fallin að veita Kaupfélagi Skagfirðinga verulegt samkeppnisforskot. Hluti sektarinnar, 40 milljónir króna, var vegna brots á samkeppnislögum sem snýr að upplýsingagjöf til Samkeppniseftirlitsins.
Málinu var þó fjarri því lokið. Mjólkursamsalan skaut málinu til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem felldi í nóvember 2016 úr gildi ákvörðun eftirlitsins að öðru leyti en því að Mjólkursamsalan þyrfti að greiða 40 milljónirnar vegna brots á ákvæði laga um upplýsingagjöf. Nefndin, sem telur þrjá einstaklinga, klofnaði í afstöðu sinni.
Niðurstaðan byggði á því að hagræðingarsamkomulagið sem Mjólkursamsalan hafði gert við annan eiganda sinn, Kaupfélag Skagfirðinga, rúmaðist innan búvörulaga. Þess vegna þyrfti Mjólkursamsalan ekki að fara eftir samkeppnislögum sem öðrum er gert að fara eftir.
Taka þrjú
Báðir aðilar skutu málinu til Héraðsdóms Reykjavíkur. Í byrjun árs 2018 sendi Mjólkursamsalan frá sér tilkynningu þar sem hún ásakaði Samkeppniseftirlitið um óhlutdrægni í málinu. „Ljóst er af afskiptum samkeppnisyfirvalda af málefnum mjólkuriðnaðarins, að Samkeppniseftirlitið fjallar ekki um málefni MS og mjólkuriðnaðarins af þeirri hlutlægni, sem gera verður kröfu um til stofnunar á vegum ríkisins,“ sagði þar.
Héraðsdómur féllst hins vegar á málatilbúnað Samkeppniseftirlitsins í dómi sem féll 29. maí 2018. Þeirri niðurstöðu var áfrýjað til Landsréttar sem komst að sömu niðurstöðu 27. mars í fyrra. Enn var málinu áfrýjað og nú til Hæstaréttar. Hann kvað upp endanlegan úrskurð í síðustu viku, þann sama önnur dómstig höfðu kveðið upp.

Í dómi Hæstaréttar sagði að telja verði brot Mjólkursamsölunnar gegn samkeppnislögum alvarlegt „auk þess sem það stóð lengi og var augljóslega mjög til þess fallið að raska samkeppnisstöðu. Þá laut það að mikilvægri neysluvöru og snerti á þann hátt almenning í landinu.“
Reynt að afnema málskotsrétt eftirlitsins
Málið fékk pólitískan vinkil á meðan að á málsmeðferð þess stóð yfir. Samkeppniseftirlitið hefur, samkvæmt lögum, haft heimild til þess að áfrýja niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála til dómstóla.
Síðla árs 2019 lagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Íslands, fram drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda þar sem þar sem lagt var til að þessi áfrýjunarheimild yrði felld út. Í greinargerð var því haldið fram að beiting heimildarinnar gæti skapað „fyrirtækjum hér á landi ákveðna réttaróvissu“.
Frumvarpið var gagnrýnt víða. Gylfi Magnússon, forseti Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, birti meðal annars stöðuuppfærslu á Facebook þar sem hann gagnrýndi afnám málskotsréttarins og aðrar breytingar sem lagðar voru til á starfsumhverfi eftirlitsins í frumvarpi ráðherrans.

Í stöðuuppfærslunni sagði Gylfi: „Einfalda framkvæmd samkeppnislaganna og auka skilvirkni“ hljómar einhvern veginn betur en „Láta blauta drauma fákeppnismógúla rætast með því að draga tennurnar úr samkeppniseftirliti á Íslandi eins og frekast er unnt“. Nú á að koma í veg fyrir að Samkeppniseftirlitið geti borið niðurstöður áfrýjunarnefndar undir dómstóla og gætt þannig m.a. hagsmuna brotaþola. Jafnframt á að koma í veg fyrir að eftirlitið geti þvingað fram breytingar á skipulagi fyrirtækja þegar ekkert annað virðist duga til að ná fram eðlilegri samkeppni. Þetta eru ekki ný baráttumál mógúlanna, hugmyndir í þessa veru hafa oft verið viðraðar áður en ekki fengið brautargengi vegna harðrar andstöðu. Nú sjá þeir hins vegar greinilega lag til að knýja þetta fram.“
Þegar mælt var fyrir frumvarpinu á Alþingi fyrir um ári var afnám málskotsheimildarinnar ekki lengur á meðal efnisatriða þess.
Stofnendur Mjólku stefna
Í fyrrasumar, eftir að niðurstaða Landsréttar í málinu lá fyrir, stefndu Ólafur M. Magnússon og aðrir stofnendur Mjólku Mjólkursamsölunni vegna ofangreindra brota. Með stefnunni fóru þeir fram á að Mjólkursamsalan viðurkenndi skaðabótaskyldu gagnvart þeim.
Þegar Hæstiréttur hafði kveðið upp sína niðurstöðu fyrr í þessum mánuði sendi Mjólkursamsalan frá sér tilkynningu þar sem fyrirtækið sagðist hafa verið „„í góðri trú og taldi sig vera að vinna í samræmi við lög“ með viðskiptaháttum sínum.
Þegar málið hafi komið upp fyrir tæpum áratug síðan hafi skipulagi og framkvæmd á samstarfi afurðastöðva í mjólkuriðnaði og sölu á hrámjólk til aðila utan samstarfsins verið breytt. „Dómsniðurstaðan snýr því að afmörkuðum ágreiningi um túlkun laga í liðnum tíma, en hefur ekki bein áhrif á starfsemina í dag. Við blasir að hagræðing í mjólkuriðnaði hefur náð þeim markmiðum sem að var stefnt með lagabreytingum sem heimiluðu verkaskiptingu og samstarf afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Þær breytingar eru forsenda framleiðniaukningar sem skilað hefur milljarða króna ávinningi til samfélagsins á hverju ári.“
Þetta með undanrennuduftið
Félag atvinnurekenda, sem gætir hagsmuna ýmissa aðila í verslunarrekstri á Íslandi, voru ekki alveg sammála þessari túlkun Mjólkursamsölunnar, að þessar breytingar væru að skila milljarða króna ávinningi til samfélagsins á hverju ári.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri félagsins, skrifaði grein daginn eftir að dómur Hæstaréttar birtist þar sem hann benti til að mynda á að í krafti einokunarstöðu sinnar væri Mjólkursamsalan eini seljandi mjólkur- og undanrennudufts á Íslandi. „Hún hefur enga innlenda samkeppni. Í skjóli tollverndarinnar eiga önnur innlend matvælafyrirtæki, sem nota mjólkurduft í framleiðslu sína, í raun ekki annan kost en að kaupa vörurnar af MS og hún hefur því enga erlenda samkeppni heldur. Í búvörusamningi stjórnvalda og Bændasamtaka Íslands um starfsskilyrði nautgriparæktar, sem var undirritaður í febrúar 2016, var samið um að stjórnvöld myndu hækka tolla á innfluttu mjólkurdufti duglega og þeir tækju síðan árlegum hækkunum til samræmis við gengisþróun. Það er einsdæmi í seinni tíð að atvinnugrein hafi samið þannig við stjórnvöld um að hækka skattana á keppinautum sínum.“

Tollar á innflutt mjólkur- og undanrennuduft, sem notað er í margs konar vörur, gerðu það að verkum að kíló af undanrennudufti, sek kosti 340 krónur á erlendum mörkuðum, þrefaldist vegna tolla og endi í 1.091 krónum.
Mjólkursamsalan selji hins vegar öðrum matvælafyrirtækjum nýmjólkurduft á 623 krónur kílóið og undanrennuduft á 608 krónur, sem sé langt yfir heimsmarkaðsverði en langt undir því verði sem þarf að borga fyrir innflutta duftið eftir að verndartollar hafa verið lagðir á það.
En þetta verð á einungis við ef viðskiptavinurinn er íslenskt fyrirtæki. Ólafur bendir á, og vitnar í tölur frá Hagstofu Íslands, að Mjólkursamsalan flytji einnig út um 500 tonn af undanrennudufti á ári. Meðalverðið sem það er selt á er 333 til 345 krónur á kíló. Verðið á duftinu til íslenskra fyrirtækja er því 87 prósent hærra en það sem erlend fyrirtæki geta keypt það á.
Mjólkursamsalan í útrás
Mjólkursamsölunni var skipt upp í þrjú félög í nóvember í fyrra. innlend starfsemi verður áfram í Mjólkursamsölunni en Ísey útflutningur og eignarhlutur í móðurfélagi Ísey Skyr Bars færast í félagið MS erlend starfsemi ehf. og eignarhlutur í bandaríska skyrfyrirtækinu Icelandic Provisions í félagið MS eignarhald ehf.

Ari Edwald, sem verið hafði forstjóri Mjólkursamsölunnar frá árinu 2015, og framkvæmdastjóri Ísey útflutnings samhliða því starfi, færði sig alfarið yfir í erlendu starfsemina og stýrir nú MS erlendri starfsemi og MS eignarhaldi. Pálmi Vilhjálmsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri, varð forstjóri Mjólkursamsölunnar.
Í fyrra varð líka sú breyting á að Kaupfélag Skagfirðinga jók eignarhlut sinn í Mjólkursamsölunni og á nú 20 prósent á móti Auðhumlu, samvinnufélagi kúabænda, sem á 80 prósent.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




























Athugasemdir