Þróun á fasteignamarkaði hér á landi keimlík þróuninni í nágrannalöndunum

Hraðar verð­hækk­arnir og mikil velta hafa ein­kennt fast­eigna­mark­að­inn und­an­farið, bæði hér á landi og í nágranna­löndum. Mörg lönd hafa beitt þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum með því að setja þak á lán­tökur og hlut­fall greiðslu­byrði af tekjum til að hindra bólur.

Fasteignir hafa hækkað hratt í verði undanfarið hér á landi líkt og annars staðar.
Fast­eignir hafa hækkað hratt í verði und­an­farið hér á landi líkt og ann­ars staðar. Mynd: Kjarninn.

Í kjöl­far heims­far­ald­urs COVID-19 beittu mörg ríki heims svoköll­uðum þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum til að minnka líkur á að heims­far­ald­ur­inn hefði alvar­legar efna­hags­legar afleið­ingar. Kristín Arna Björg­vins­dóttir hag­fræð­ingur í Seðla­banka Íslands fjallar um þjóð­hags­var­úð­ar­stefnu og hlut­verk hennar í að jafna sveiflur vegna heims­far­ald­urs í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Efna­hags­á­fallið í kjöl­far COVID-19-far­sótt­ar­innar er það fyrsta sem á sér stað eftir að beit­ing þjóð­hags­var­úð­ar­tækja varð útbreidd og var slakað á mörgum þeirra í fyrsta sinn, segir í grein­inni. Jafn­framt segir Kristín Arna að þró­unin nú, bæði hér og ann­ars staðar, sé að herða tökin að nýju til að koma í veg fyrir bólu­myndun, til að mynda á fast­eigna- og hluta­bréfa­mörk­uðum. „Til að tak­marka kerf­is­á­hættu sem byggst hafi upp vegna aðstæðna á eigna­mörk­uðum segir hún seðla­banka ýmissa ríkja hafa brugð­ist við með því að herða taum­hald þjóð­hags­var­úð­ar­stefnu að nýju og að ekki sjái fyrir end­ann á þeirri veg­ferð.

„Þróun á fast­eigna­mörk­uðum er mik­il­væg fyrir fjár­mála­stöð­ug­leika en fjár­mála­á­föll sem rekja má til fast­eigna­bóla og skulda­aukn­ingar heim­ila eru almennt kostn­að­ar­sam­ari, lengri og alvar­legri en áföll sem orsakast af öðrum þáttum. Því má færa rök fyrir því að þjóð­hags­legur ávinn­ingur af því að sporna gegn óhóf­legum skulda­vexti heim­ila, stuðla að stöð­ugum fast­eigna­lána­mark­aði og draga þannig úr sveiflum í hús­næð­is­verði sé tölu­verður,“ segir í grein­inni.

Lágvaxtaumhverfið ýtir eignaverði upp

„Þróunin á fast­eigna­mark­aði hér á landi á síð­ustu mán­uðum hefur á margan hátt verið keim­lík þró­un­inni í okkar helstu nágrann­löndum. Mark­að­ur­inn hefur að und­an­förnu ein­kennst af hröðum verð­hækk­unum og mik­illi veltu. Sögulega lágir vextir fast­eigna­lána hér á landi ásamt tak­mörk­uðu fram­boði eigna á sölu hefur leitt til þess að með­al­sölu­tími hefur hald­ist nálægt sögu­legu lág­marki á síð­ustu mán­uðum og eignum í sölu hefur fækkað veru­lega.

[adspot]

Lág­vaxtaum­hverfið sem nær alls staðar hefur mynd­ast ásamt skorti á vaxta­ber­andi fjár­fest­inga­kostum hefur kynt undir eigna­mörk­uðum og leitt til þess að eigna­verð bæði hér á landi og erlendis hefur hækkað mikið á síð­ustu mán­uðum, sér í lagi á hluta­bréfa- og fast­eigna­mörk­uðum.“

Kristín Arna segir sum lönd hafa sett þak á veð­setn­ing­ar­hlut­fall fast­eigna­lána á meðan önnur hafi gripið til þess að setja hámark á greiðslu­byrð­ar­hlut­föll, líkt og gert var hér á landi með ákvörðun Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar Seðla­banka Íslands í lok sept­em­ber þegar sett var hámark á greiðslu­byrð­ar­hlut­fall nýrra fast­eigna­lána. Hámarkið er 35 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum á almenna lán­tak­endur en 40 pró­sent á fyrstu kaup­endur.

Þessum úrræðum segir höf­undur að sé almennt beitt ef talið er að ójafn­vægi á fast­eigna­mark­aði geti ógnað fjár­mála­stöð­ug­leika. Búast megi við að alþjóð­legt reglu­verk um beit­ingu þjóð­hags­var­úð­ar­tækja verði end­ur­skoðað á næstu árum með reynsl­una af COVID-19 krepp­unni í huga.

Hægt er að lesa grein Krist­ínar Örnu Björg­vins­dóttur í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár